Heimilisritið - 01.08.1943, Qupperneq 60

Heimilisritið - 01.08.1943, Qupperneq 60
Belden væri kunnugt um allt þaó. sem ég veit, þá myndi hann ekki opinbera trúlofun með þessari stúlku“. ,,Er um trúlofun að ræða?--' spurði Irma fljótmælt. Henry Biown var sannfærður í’m að Jole.tte hafði kræk: i Englendinginn og svaraði því hik- laust: „Já, ekki er vafi á því. Og hæpið er að þau geti leynt blöðunum samdrætti sínum lengi. Sú frétt yrði til tjóns fyrir all.t kvikmyndafélagið. Haldið þér ekki frú min, að það væri fremur ó- heppilegt fyrir yður, að hafa fröken Jeffreys sem leikara í kvikmynd yðar, ef hún hefur sálg- að aumingja manninum yðar? Það væri ekki gott að segja nema fólk héldi, að þér-----“ ,,Ég þarf ekki að óttast kjafta- sögur", tók Irma fram í fyrir honum hvatlega. „Auðvitað ekki, frú Downing, en setjum samt sem svo, að ég rækist á einhvern kunningja, til- dæmis blaðamann og minntist á það við hann, þetta sem ég komst á snoðir um kvöldið sem Down- ing andaðist — varðandi hann og stúlkuna. — Myndi það verða yður til hags eða tjóns?“ Irma hugsaði sig um andartak. Svo virtist sem ógerningur væri að halda leyndarmáli stúlkunnar leyndu, þótt hún sjálf — Irma — hefði ætlað sér það. Hún hafði ákveðið að opinbera það ekki nema nauðsyn krefði. En var þessi. aulabárður hingað kominn af því að hann héldi að hún myndi borga honum fyrir að þegja? Nei, hún ætlaði sér held- ur að hafa gagn af honum. „Þér hafið bæði gert mig undr- andi og skelkaða“, sagði hún. „Mér var vel kunnugt um vin- áttu þeirra Downings og Jolette, og ég lét mér hana í léttu rúmi liggja. En hvað viðvíkur hinu — þá verð ég að fá að hugsa mig dálítið um. Fáið yður sæti Brown — er það ekki nafn yðar? Gjör- ið þér svo vel og fáið yður sígar- ettu. Ég hef slæman höfuðverk og vona að þér afsakið, þó að ég skreppi inn í svefnherbergið mitt, til þess að taka inn aspirín. Ég kem strax aftur og þá getum við athugað málið“. Áður en Brown gat svarað, hafði hún lokað dyrunum á eftir sér. Hann gekk að borðinu, tók handfylli af sígarettum og kveikti sér i einni, en stakk hinum í vasa sinn. Irma gekk í gegnum baðher- bergið inn í svefnherbergið og lokaði hurðunum vel á eftir sér. Svo greip hún símann og hringdi á lögreglustöðina. „Þetta er Irma Rimaldi", sagði hún, strax og hún hafði fengið samband við lögregluna. „Ég er heima hjá mér. Aukaleikari sem ég hef aldrei séð, komst inn til mín undir fölsku yfirskini og er í næsta herbergi. Ég held að hann ætli að reyna að kúga út úr mér peninga. Hann segist hafa sannanir fyrir því, að maðurinn 58 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.