Heimilisritið - 01.08.1943, Side 61
minn hafi verið myrtur og að
morðinginn sé ung stúlka, sem
Downing var mjög vingjarnleg-
ur við. Hann hefur gefið 1 skyn
að mér verði blandað í málið, af
því að ég hef veitt stúlkunni svo-
litla aðstoð. Vilduð þið senda
nokkra menn hingað. Ég skal
reyna að tefja fyrir honum þang-
að til. Þakka yður fyrir .......
En verið ekki lengi á leiðinni!“
Klukkan tólf sama kvöld, kom
lögreglan á gistihúsið til Jolette
Jeffreys ......
n.kapítuli.
1 Hollywood þökkuðu menn sín-
um sæla fyrir það, að hún var
ekki kvikmyndastjama, imga
stúlkan, sem skyndilega hafði orð-
ið á fremur óhugnanlegan hátt,
efniviður í stærstletruðu forsíðu-
greinar dagblaðanna.
Hún hafði ætlað sér að verða
stjaraa, en ekki heppnast það og
enginn leikaranna hafði svo mik-
ið sem heyrt um hana, svo að
ekki var hægt að nefna „hneyksli
í kvikmyndaheiminum“ í sam-
bandi við hana.
Sir James Belden átti ekki
heima í Hollywood, hann var nýr
og ókunnugur. Það var samt leið-
inlegt, að jafn virðingarverður
maður og hann skyldi vera bendl-
aður við þessa ævintýradrós!
Menn furðuðu sig á því að hann
skyldi láta blekkjast af henni og
það svo, að hann tók hennar mál-
stað og var sannfærður um sak-
HEIMILISRITIÐ
leysi hennar.
Frú Downing átti ekki sérlegu
miklum vinsældum að fagna með-
al kynsystra sinna í Hollywood.
En í sorgarbúningi sínum litu
þær öðruvísi á hana. Hún hafði
sýnt hið mesta snarræði, þegar
hún lét handtaka peningakúgar-
ann. Það var ekki henni að kenna
að Jolette Jeffreys var handtek-
in. Hún hafði ætlað að veita
henni smáhlutverk, og það var
allt og sumt sem hún þekkti
hana — að því er hún sjálf sagði.
En við þetta allt bættist, að Beld-
en hafði tilkynnt henni, að hann
myndi hætta við að leika aðal-
hlutverkið í næstu kvikmynd
hennar.
Baynes Ashley, vinur hans, bar
i bætiflálca fyrir hann, þótt hann
hefði í flimtingum vöm þá, sem
Jim hélt uppi fyrir Jolette.
„Við getum ekkert sagt til
hagsbóta fyrir hana, annað en
það, að hún er snoppufríð. Allt
annað mælir gegn henni, að því
er ég get séð“, sagði hann við
kunningja sína, sem svo sögðu
það öðrum. „Auðvitað hefur Jim
leyfi til þess að hætta við að
leika í „Nætur i Feneyjum“, fyTSt
ekki er farið að filma neitt af
myndinni. En afsökun hans er sú,
að hann kveðst ekki geta leikið
hlutverk sitt nógu vel, þegar hug-
ur hans er bundinn á öðram vett-
vangi. Ég get fullvissað ykkur
um að hann ásakar Irmu ekki
fyrir neitt, enda getur hann það
ekki, og þau era líka góðir vinir.
59