Heimilisritið - 01.08.1943, Qupperneq 63

Heimilisritið - 01.08.1943, Qupperneq 63
venju fremur til kvöldverðarins, enda var gestur hans ung og fög- ur stúlka. Hún hafði komið með honum í bíl hans, og af því að einkabílstjóri hans átti frí Jpetta kvöld, hafði Downing sjálfur set- ið við stýrið. Ito framreiddi cock- tail, margrétfaðan kvöldverð, létt vín, konjak og fleira. Þau neyttu kræsinganna og virtust vera beztu vinir. Eftir að Ito hafði borið þeim kaffið, var honum sagt, að þau þyrftu ekki meira á aðstoð hans að halda, og að hann skyldi ekki ónáða þau nema því aðeins að húsbóndi hans hringdi bjöll- unni. Ito hafði ekki veitt þessum fyrirskipunum neina sérstaka at- hygli, því að hann var vanur þeim og auk þess laus við alla hnýsni. Skömmu eftir að hann var sendur burt, hafði kona i Pasa- dena, bezta vinkona frú Down- ings hringt til lians. I sím.tali sínu sagði hún honum, að frú Downing væri komin frá New York,- en þar hafði hún dvalið dálítinn tima á heimleiðinni frá Evrópu. Ito hafði ekki búizt við frú Downing heim þá . þegar, og hann gerði sér í hugarlund, að koma hennar kæmi Downing ó- þægilega á óvart. Honum datt þá einmitt í hug að það væri gott allra hluta vegna, að frú Down- ing kæmi ekki beina leið í sumar- húsið þá um kvöldið. Þessi kona hringdi samkvæmt beiðni frú Downings, til þess að spyrjast fyrir um það, hvort Downing notaði húsið, því að ef svo væri, ætlaði hún fyrst að koma þangað daginn eftir. Ito gaf þau andsvör að húsbóndinn dveldi þar, en færi aftur um morguninn. Japaninn skýrði því næst frá því að aldrei hefði verið kallað á sig, og að hann hefði farið að sofa rétt eftir miðnætti. Hann kvaðst hafa farið snemma á fæt- ur, til þess að taka af borðinu og þrifa til, svo að allt væri í lagi þegar beðið væri um morg- unteið. Sér til undrunar sá hann að ljósið hafði ekki verið slökkt og allar hurðir stóðu opnar. Downing lá dauður á gólfinu og stúlkan var horfin. Hún hafði skilið kápuna sína eftir og farið af stað gangandi, því að bíllinn var á sínum stað. Ito kom ekki til hugar að stúlk- an hefði á nokkurn hátt orsakað dauða Downings. Hann áleit, að ef til 'vill hefði þeim lent í orða- sennu, og að stúlkan, sem hann hafði aldrei séð áður, og vissi þá ekki hvað hét, hefði rokið í burtu í reiði. Slíkt hafði áður skeð. Downing hafði veikt hjarta og hafði sagt Ito frá því, að lækn- arnir hefðu ráðlagt sér að borða ekki of þungmeltan mat. Þegar hann hafði sannfært sig um, að Downing hefði verið lið- ið lik í margar klukkustundir, af því að líkið var kalt og stirt, símaði hann til íæknis í Los Ang- eles, sem var vanur að annast hjónin í veikindum þeirra. Síðar HEIMILISRITIÐ 61
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.