Heimilisritið - 01.08.1943, Page 68
Umræðuefnið í dag=
Ný bók, söguróman
eltir Laxness
Islands-
klukkan
íslandsklukkan er raunasaga Jóns Hreggviðssonar, frá því
Lann með valdi er neyddur til þess að höggva niður streng ís-
landsklukkunnar, einu sameign íslenzku þjóðarinnar, og þar til
höfundur skilur við hann ráðþrota, óvissan um tilgang sinn og
tilverunnar í þessum ægilega heimi hungurs og dauða. Jón
Hreggviðsson gæti verið spegilmynd af hinni íslenzku þjóð bæði
fyrr og síðar. Islandsklukkan var einasta sameign hinnar íslenzku
þjóðar, og þegar hún var höggvin niður, missti þjóðin fótfest-
una og hefur hún ekki síðan náð henni aftur, frekar en Jón
Hreggviðsson?
Bókin er sígilt listaverk og ber með sér meiri skilning á
högum og háttum íslenzku þjóðarinnar en bækur þær aðrar, sem
skrifaðar hafa verið frá fyrri timum íslenzku þjóðarinnar, sér-
staklega á högum lægri stétta þjóðfélagsins, þeirri spilling og
vanmetahætti, sem auðkenndi alla landsmenn og síðast en ekki
sízt sú bersögli, sem kemur ljósar fram hjá höfundi en öðrum
þeim. sem tekið hafa sér yrkisefni frá fyrri tímabilum sögu
HELGAFELLSUTGAFAN.
vorrar.