Fréttatíminn - 13.09.2013, Page 2
Heilbrigðismál á allra vörum-átakið miðar að því að safna 40 milljónum
Safna fyrir geðgjörgæslu
Söfnunarátakið „Á allra vörum“ er hafið og
í ár er kastljósinu beint að málefnum geð-
heilbrigðis á Íslandi. Forsvarsmenn átaksins
heimsóttu geðdeildir Landspítalans og fundu
strax að þar þurfti að leggja hönd á plóg. Til
stendur að opna sérstaka bráðageðdeild,
eða geðgjörgæsludeild, en einungis brot af
kostnaðinum við deildina kemur frá ríkinu.
Markmiðið er að safna 40 milljónum nú í
september. Sem fyrr verða varagloss frá Dior
seld til styrktar „Á allra vörum“ og stendur
átakið til 20. september. „Allir geta þurft að
glíma við geðveiki einhvern tímann á ævinni.
Það vilja sennilega allir búa í samfélagi þar
sem hugsað er vel um veikt fólk – óháð því
hvaða nafni sjúkdómurinn kann að nefnast,“
segir á vef átaksins.
Geðgjörgæslan opnar á geðsviði Landspít-
alans við Hringbraut og í sumar hefur deild
32C verið endurinnréttuð sem geðgjörgæsla.
Þar verða karla- og kvennasvefnálmur en
það hefur ekki verið áður á geðdeildunum. Á
deildinni munu dvelja alveikustu og óróleg-
ustu sjúklingarnir en mikil þörf hefur verið
fyrir aðskilnað á geðdeildum spítalans. Með
þessum aðskilnaði eykst öryggi og þjónusta
við sjúklinga.
Geðgjörgæslan verður á geðsviði Land-
spítalans við Hringbraut. Ljósmynd/Hari
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.
is
Ómar frumsýnir þrjár
kvikmyndir
Á Degi íslenskrar náttúru, næstkomandi
mánudag 16. september, mun Ómar
Ragnarsson frumsýna klukkan 18 þrjár
kvikmyndir í Bíó Paradís.
Heimilda- og fræðslumyndin „Akstur í
óbyggðum“ fjallar um það hvernig best sé
hægt að njóta íslenskrar náttúru í akstri
um óbyggðir landsins án þess að lenda í
vandræðum og skemma viðkvæmt land.
Tónlistarmyndbandið „Íslandsljóð“ við
samnefnt lag eftir Ómar Ragnarsson er um
Ísland, land og þjóð, sungið af Ara Jóns-
syni og Helgu Möller við undirleik Péturs
Hjaltested.
Tónlistarmyndbandið „Reykjavíkurljóð“
við samnefnt lag eftir Gunnar Þórðarson
og Ómar Ragnarsson er um Reykjavík,
mannlíf hennar, sögu og umhverfi, flutt af
Ómari Ragnarssyni, Ragnari Bjarnasyni,
Borgarbörnum, Guðrúnu Gunnarsdóttur
og stórsveit Gunnars Þórðarsonar.
Listamenn fá þriggja
ára samninga
Lista- og menningarráð Kópavogs hefur
gert þriggja ára samninga við listamennina
Björn Thoroddsen gítarleikara og Pamelu
De Sensi flautuleikara. Lista- og menn-
ingarsjóður styrkir þar með menningarvið-
burði í Kópavogi sem þau hafa haft frum-
kvæði að, um samtals 3 milljónir króna á
ári. Björn fær styrk til að halda jazz- og
blúshátíð í Salnum í Kópavogi og Pamela
til að halda Ormadaga, menningarhátíð
barna, í samstarfi við menningar- og safna-
hús á Borgarholtinu. -jh
Spila örfótbolta í bikini
Lið verkfræðikvenna hjá Marel hyggst
leika í bikini í örfótboltamóti, takist þeim
að safna 100 þúsund krónum á Alþjóðlega
fjáröflunardeginum Tour de Marel sem
haldinn verður í annað sinn í Kaplakrika
í dag, föstudag. Markaðsdeildin lætur
sitt ekki eftir liggja því hún keppir vafin í
sellófan, nái hún 25 þúsund krónum. Þriðja
liðið mun spila í pappakössum, safni það
25 þúsund krónum.
Í þetta sinn safna starfsmenn Marel víðs
vegar um heiminn áheitum til styrktar SOS
barnaþorpum á Fílabeinsströndinni. Í fyrra
söfnuðu starfsmenn félagsins um heim
allan samtals um átta milljónum króna til
styrktar ýmsum góðgerðarsamtökum. Hér
á landi söfnuðust um tvær milljónir króna
sem runnu til Krabbameinsfélags Íslands.
Nú þegar er búið að safna rúmlega nær
tveimur milljónum króna. Tekið verður á
móti áheitum á síðunni tourdemarel.com
til 30. september en þá lýkur átakinu. -jh
Arnaldur verðlaunaður á Spáni
Arnaldur Indriðason hlaut í gær spænsku RBA Novela Negra-verð-
launin. Um er að ræða alþjóðleg glæpasagnaverðlaun sem veitt
eru fyrir óútgefna bók. Arnaldur hlýtur verðlaunin fyrir bókina
Skuggasund sem kemur út samtímis á spænsku og íslensku síðar
árinu. Margir kunnir rithöfundar hafa áður fengið verðlaunin,
til að mynda Michael Connelly, Patricia Cornwell og Philip Kerr.
Skuggasund verður sautjánda bók Arnaldar en hann hefur notið
mikilla vinsælda hér á landi og víða um heim. Bækur hans
hafa selst í yfir tíu milljónum eintaka og verið þýddar
á tugi tungumála.
a lls hafa 20.623 manns borgað sig inn á nýjar íslenskar myndir í
kvikmyndahúsum í ár. Þetta
eru umtalsvert færri gestir en
undanfarin ár sem hlýtur að vera
áhyggjuefni fyrir íslenska kvik-
myndagerðarmenn.
Fimm íslenskar kvikmyndir
hafa verið frumsýndar á þessu
ári ef undan er skilin Latabæjar-
myndin sem fjögur þúsund
manns hafa séð. Fjórar þeirra
eru hættar í sýningum. Alls
komu 2.800 manns að sjá XL eftir
Martein Þórsson með Ólafi Darra
Ólafssyni í aðalhlutverki. Aðsókn-
in hefur vafalaust valdið aðstand-
endum myndarinnar vonbrigðum
því dómarnir voru góðir og Ólafur
Darri var valinn besti leikari í
aðalhlutverki á Karlovy Vary-
kvikmyndahátíðinni í Tékklandi.
Mikið var látið með kvikmyndina
Falskan fugl í fjölmiðlum en það
skilaði sér ekki í góðri aðsókn.
Myndina, sem gerð var eftir sögu
Mikaels Torfasonar, sáu aðeins
tæplega 2.500 manns. Þetta
reddast! eftir Börk Gunnarsson
sáu tæplega 1.800 manns. Þó að
yfir tíu þúsund manns hafi séð
Ófeigur gengur aftur eftir Ágúst
Guðmundsson hafa margir eflaust
búist við fleirum, enda hefur það
verið lenska að Ladda-myndir
skili 30 þúsund áhorfendum.
Fimmta íslenska myndin í
ár, Hross í oss eftir Benedikt
Erlingsson, er nýkomin í bíó og
því er ekki tímabært að segja til
um hver aðsóknin á hana verður.
Hún hefur farið ágætlega af stað
og í byrjun vikunnar höfðu ríflega
þrjú þúsund manns séð hana í
bíó. Þá á enn eftir að frumsýna
Málmhaus eftir Ragnar Bragason
sem hefur alla burði til að lyfta
aðsókninni til muna.
Síðustu þrjú ár hafa yfir hundr-
að þúsund manns séð íslenskar
myndir í bíó, ár hvert. Í fyrra sáu
yfir 60 þúsund manns Svartur á
leik og tæp 50 þúsund sáu Djúpið.
Árið 2011 var Algjör Sveppi
og töfraskápurinn vinsælasta
myndin með ríflega 30 þúsund
áhorfendur. Þá flykktust áhorf-
endur líka á Okkar eigin Osló,
Þór, Borgríki og Rokland. Árið
2010 sáu 40 þúsund manns Bjarn-
freðarson og 37 þúsund manns
sáu Algjör Sveppi og dularfulla
hótelherbergið. Mamma Gógó,
Órói og Brim nutu líka hylli.
Hilmar Sigurðsson, formaður
Samtaka íslenskra kvikmynda-
framleiðenda, segir að aðsókn-
artölurnar í ár séu áhyggjuefni
en kveðst ekki hafa skýringar
á þeim. „Það eru örugglega
margar og flóknar skýringar á
þessu. Þessar myndir sem eru að
koma út núna eru frá kreppuár-
unum okkar, 2010 og 2011. Svo
hefur einhver samdráttur verið á
kvikmyndahúsaaðsókn almennt,“
segir hann. „Annars er nú árið
ekki úti og ég hvet fólk til að fara
að sjá þessar ágætu myndir sem í
boði eru.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
bíó aðeins Hafa 20.000 manns séð íslenskar myndir í bíó í ár
Hrun í aðsókn á
íslenskar kvikmyndir
Tuttugu þúsund
manns hafa borgað
sig inn á íslenskar
kvikmyndir í ár.
Síðustu þrjú ár hafa
öll skilað yfir hundrað
þúsund áhorfendum
á íslenskar myndir.
Hross í oss og Málm-
haus gætu enn lagað
stöðuna.
Aðsókn á íslenskar
myndir í ár
Ófeigur gengur aftur 10.523
Hross í oss 3.117*
XL 2.800
Falskur fugl 2.427
Þetta reddast! 1.756
*Aðsókn til og með sunnudagsins 8. september.
Aðeins sáu tæplega 2.500 manns kvik-
myndina Falskan fugl í kvikmyndahúsum.
YFIR 20 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
� Stærð: 149 x 110 x 60 cmGrillbúðin
Er frá Þýskalandi
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Opið laugardag 11-16
Sunnudag 13-16
Gasgrill
Kolagrill
Garðhúsgögn
Aukahlutir
ÚTSÖ
LULO
K
um h
elgin
a
2 fréttir Helgin 13.-15. september 2013