Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 14

Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 14
Ísland var í fyrra það Evrópuríki sem naut hlutfallslega mestrar fjölgunar ferðamanna og sama á væntanlega við um yfirstandandi ár. Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Þ Það er stutt í það að ferðaþjónustan skili þjóðarbúinu sem nemur einum milljarði króna í gjaldeyristekjur hvern einasta dag ársins. Það er líka stutt í það að hlutur ferðaþjónustunnar í gjaldeyrisöflun fari fram úr sjávarútvegi. Á liðnu ári var hlutur hennar 23,5%, í öðru sæti á eftir sjávarút- vegi sem aflaði 26,5% gjaldeyristeknanna. Hagvöxtur hérlendis hefði orðið lítill á fyrri helmingi ársins ef ekki hefði verið fyrir vöxt ferða- þjónustunnar en Hagstofa Íslands greindi nýverið frá því að hann hefði numið 2,2% að raungildi á tímabilinu. Nýliðinn ágúst sló enn eitt metið en aldrei áður hafa jafn margir erlendir ferðamenn sótt Ísland heim á einum mán- uði. Um 132 þúsund fóru um Keflavíkurflugvöll. Aukningin miðað við ágúst í fyrra nemur um 14% en hlutfallsleg aukning það sem af er ári er enn meiri, eða um 20%. Fyrstu átta mánuði ársins fóru nær 567 þúsund erlendir ferðamenn héðan miðað við 472 þúsund á sama tíma í fyrra. Erlendir ferðamenn sem hingað hafa komið í ár eru þegar orðnir fleiri en allt árið 2011. Ferðaþjónustan er því lykilgrein í ís- lenska hagkerfinu, eins og Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, benti á í viðtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni, og sú grein sem leiðir hagvöxt. Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, spáði því í sama blaði að greinin muni vaxa um 15 pró- sent að jafnaði fram til ársins 2020. Rætist það verður ferðaþjónustan farin að skapa um þrefalt meiri gjaldeyristekjur árið 2020 en sjávarútvegurinn gerði í fyrra. Ferða- þjónustan aflaði 238 milljarða króna gjald- eyristekna í fyrra. Gunnar Valur gerir ráð fyrir að tekjurnar í ár nemi 285 milljörðum og að óbreyttu 328 milljörðum á næsta ári. Samkvæmt sömu áætlun næmu tekjurnar 377 milljörðum árið 2015 og væru komnar í 759 milljarða árið 2020. Miðað við þessar forsendur væru erlendir ferðamenn sem hingað kæmu það ár rúmlega 2,1 milljón – en í ár er reiknað með því að fjöldi þeirra fari nærri 800 þúsundum. Hægt að gefa sér ýmsar forsendur í áætl- unum og bjartsýni er að gera ráð fyrir sömu hlutfallslegu fjölgun ferðamanna fram til ársins 2020 og verið hefur undanfarin metmisseri. Óhætt ætti samt að vera að reikna með umtalsverðri fjölgun. Ráðgjafa- fyrirtækið Boston Consulting telur, í nýrri skýrslu, að gera megi ráð fyrir 7 prósent árlegum vexti í ferðaþjónustu næstu tíu árin og að fjöldi erlendra ferðamanna verði 1,5 milljónir innan áratugar. Í skýrslunni kemur fram að ferðaþjónustan muni á þessu ári taka fram úr sjávarútvegi sem mikilvæg- asta útflutningsatvinnugrein þjóðarinnar. Gunnar Valur Sveinsson svarar því svo, aðspurður um hvort áætlun hans sé raun- hæf, að mikil tækifæri bíði Íslendinga: „Ef ferðaþjónustan nýtur stuðnings og ráðist er í að bæta innviði og gera þá mannsæmandi höfum við fulla möguleika á því að viðhalda góðum vexti, vegna þess að Evrópubúar og íbúar annarra heimshluta vilja ferðast til Ís- lands. Möguleikar fólks á ferðalögum eru alltaf að aukast, þ.m.t. fólks í fjölmennum ríkjum á vaxandi mörkuðum,“ segir hann og tilgreinir sérstaklega hin fjölmennu Asíulönd. Ísland var í fyrra það Evrópuríki sem naut hlutfallslega mestrar fjölgunar ferða- manna og sama á væntanlega við um yfir- standandi ár. Þessi þróun hefur mikla efna- hagslega þýðingu og stuðlar að hagvexti næstu árin. Það er vel, en að ýmsu er að hyggja. Gistirými hefur aukist mjög undan- farið en betur má ef duga skal. Nýting þess verður að vera ásættanleg sem þýðir að dreifa þarf álaginu yfir allt árið. Bæta þarf samgöngur, styðja við löggæslu vegna auk- inna verkefna og síðast en ekki síst þarf að bregðast við hættu á náttúruspjöllum sem steðja að fjölsóttum ferðamannastöðum. Með uppbyggingu þar verður að tryggja verndun náttúrunnar og um leið öryggi ferðamannanna. Ferðamannastaðir eru takmörkuð auðlind. Því er mikilvægt að þeir séu ekki ofnýttir. Taka verður tillit til þolmarka nátt- úrunnar. Ferðaþjónustan leiðir hagvöxtinn Vaxtarverkir undirstöðugreinar Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Baulaðu nú Búkolla Þannig að skera niður í Kvikmyndasjóð er eins og að skjóta mjólkurkúna. Kvikmyndagerðarmaðurinn Friðrik Þór Friðriksson var í hópi þeirra sem brást hinn versti við orðrómi um að til stæða að skera niður framlög til kvikmyndagerðar. Þúsund bitar í tíu munna Til að gleðja Egil og aðra lesendur hér sem vilja gera lítið úr Markrílhá- tíðinni á Ingólfstorgi í gær – af því að hún þjónar víst ekki pólitískum rétttrúnaði þeirra sjálfra. Þá var mjög góð stemning á fyrstu Makrílhátíðinni á Ingólfstorgi á sunnudaginn og við sem tókum þarna þátt getum staðfest að það fóru yfir 1000 smakk- skammtar af makríl. Gunnlaugur Ingvarsson gerði athugasemd við frétt um fáliðaða Makrílhátíð á Ingólfstorgi Baldur hinn hvíti Látið er eins og þetta sé allt honum Baldri að kenna. Jón Baldvin Hannibalsson boðaði að hann ætlaði að leita réttar síns gagnvart Háskóla Íslands sem gert hafi Baldur Þórhallsson að blóraböggli í hringlandanum með ráðningu hans til að stýra námskeiði við skólann. Þegar stórt er spurt Við hvað eru framsóknarmenn hræddir? Össur Skarphéðinsson botnaði lítið í munnlegri skýrslu Gunnars Braga Sveinssonar um Evrópumál á Alþingi. Ekki hætta samt að glósa Okkur fallast hreinlega hendur. María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir farir stúdenta í LÍN-málum ekki sléttar. Maðkur í moppunni Mér var gróflega misboðið. Viðskiptavinur World Class í Kópavogi var vægast sagt óhress í samtali við DV eftir að ræstingarkona kom að honum í gufubaði karlaklefans. Löglærður gluggagægir Þar voru einnig Björn Þorri Viktorsson lögmaður kvöld eftir kvöld vel klæddur í kraftgalla með marga af sínum skjól- stæðingum. Til viðbótar voru margir skjólstæðingar Útvarps Sögu og fl. Steinunn Valdís Óskarsdóttir sagði frá fjölbreytilegum söfnuði sem herjaði á heimili hennar vegna prófkjörsstyrkja. Þröngt í búi Ég ætla ekki að taka þetta tveggja metra skilti með mér, ég get hvergi komið því fyrir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra afþakkaði hvatningarskilti frá Öryrkjabandalaginu og Landssamtökum eldri borgara. Hvað er þá málið? Ég hef ekkert á móti þessari göngu, og ég hef ekkert á móti hommum og lesbíum. Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson heldur áfram stríði sínu við klámfengnar vindmyllur og slær hvergi af.  Vikan sem Var Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipatrópíumbrómíð. Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs. Skammtar og lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðaskammtur í hvora nös eftir þörfum, að hámarki þrisvar á sólarhring. Að minnsta kosti 6 klukkustundir skulu líða milli tveggja skammta, draga skal úr skömmtum þegar einkenni lagast. Ekki má nota Otrivin Comp lengur en 7 daga þar sem langvarandi notkun xýlómetazólínhýdróklóríðs getur leitt til bólgu í nefslímhúð og aukinnar slímmyndunar. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d. hýoscýamín eða skópólamín), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn, ef þú ert með nefþurrk vegna slímhúðarbólgu eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm, skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahet- tum, ef þú færð oft blóðnasir (t.d. aldraðir), ert með þarmalömun, slímseigjusjúkdóm, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Nýtt lyf sem verkar bæði gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu Nýtt! 14 viðhorf Helgin 13.-15. september 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.