Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 31

Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 31
Við erum svona tíu mínútur að koma okkur í gallann. Andlitsmálningin tekur mestan tíma en við erum í góðri æfingu. Við höfum líka gert þetta á ótrúlegustu stöðum, á baðhergi í flugvél og á vatnslausu Afríkuklósetti. skemmtilegur, jólin eru eitthvað svo kósí,“ segir Linda. Kollegunum finnst við klikkaðar Hrefna og Linda hafa unnið nokkuð frumkvöðlastarf í íslensku leikhúsi. Þær settu upp fyrstu ungbarnasýninguna og kynntu sýningartíma sem ekki þekktist í leikhúsi. „Við byrjuðum klukkan ellefu. Kollegar okkar halda að við séum klikkaðar að vera mættar í leikhúsið klukkan níu en okkur finnst það frábært. Við erum alla vega búnar snemma,“ segja þær og kíma. Auk þess að ná vel til ungra barna hafa Skoppa og Skrítla notið mikilla vinsælda hjá fötluðum börnum og þroskaheftum. Og þær hafa reynst ágætis íslenskukenn- arar fyrir innflytjendur. „Það hafa mikið af Tælendingum og Pól- verjum til að mynda sagt við okkur að við höfum hjálpað þeim að læra íslensku. Við sáum mikla breyt- ingu á þessu þegar við byrjuðum að sýna fyrsta leikritið okkar aftur eftir langt hlé. Þá kom hópur fólks í leikhúsið sem annars hefði kannski aldrei látið sjá sig þar.“ Koko og Kiki herja á Ameríku Hvað verðið þið lengi í þessum hlut- verkum? „Úff, það er góð spurning. Við sögðum í gríni þegar við vorum að byrja að við yrðum að leika þetta þegar við værum orðnar fertugar. Nú er það komið...“ Engan bilbug virðist á þeim að finna. Linda flytur með fjölskyldu sína til Kaliforníu um áramótin en maðurinn hennar er kominn með vinnu þar. Flutningarnir breyta ekki miklu fyrir Skoppu og Skrítlu; þær munu eftir sem áður koma fram hér á landi og áform eru uppi um að kynna þær betur fyrir yngstu kynslóðinni vestan- hafs. Hugmyndir um „útrás“ eru síður en svo nýjar af nálinni. Til að mynda var bíómyndin um Skoppu og Skrítlu bæði tekin upp á ensku og íslensku. „Við erum búnar að vera að vinna að þessu frá 2009, það kom bara eitt barn þarna á milli,“ segir Linda. Skoppa og Skrítla kallast Koko and Kiki upp á ensku. Hrefna segir að þær séu búnar að prófa efnið sitt í Bandaríkjunum og þær séu vissar um að það myndi ná í gegn. Hins vegar hefur leit þeirra að samstarfsaðilum ekki borið til- ætlaðan árangur. „Það þarf alltaf að setja allt í svo mikinn klór. Við viljum bara að þetta sé gert eins og við viljum. Þegar það er farið að eiga of mikið við efnið þá er það bara orðið eitthvað annað. Við viljum fara okkar eigin leið.“ Börnin eins og systkini og karlarnir vinir Hrefna á þrjú börn og Linda tvö börn og einn stjúpson. Þrjú barnanna taka þátt í jólasýningu Skoppu og Skrítlu. „Börnin okkar eru öllu vön. Við erum búin að drösla þeim um allan heim og þeim finnst allt sem mamma gerir vera ævintýri. Þeim finnst töff að Skoppa og Skrítla séu mömmur þeirra,“ segir Hrefna. „Pétur minn sem er að verða þriggja ára spyr hvort fólk eigi Skoppu og Skrítlu þegar hann kemur eitthvert í heimsókn. Hann vill helst ekki horfa á neitt annað,“ segir Linda og hlær. Hrefna segir að eitt fari þó stundum í taugarnar á ungviðinu. „Þeim finnst pirrandi að við þurf- um að tala við alla. Fólk gefur sig nefnilega mjög oft á tal við okkur. Og þá er mamma spurð við hvern hún hafi eiginlega verið að tala.“ Hvernig gengur samstarfið? „Þú meinar hjónabandið?“ segir Hrefna og þær hlæja. „Það gengur vel. Þetta snýst um virðingu og verkaskiptingu, að taka tillit til hvorrar annarrar – rétt eins og í hjónabandi,“ bætir Linda við. Þær segja að auðvitað geti vinn- an reynt á enda sé hún í törnum. Á móti komi meiri tími með fjöl- skyldunni inni á milli. Lykilatriðið sé þó ánægjan af starfinu sem þær deili. „Það hjálpar líka að fjölskyld- ur okkar eru samrýmdar. Börnin okkar eru eins og systkini og karl- arnir vinir.“ Tíu mínútur að koma sér í gallann Eftir öll þessi ár hljótið þið að vera orðnar nokkuð seigar við að gera ykkur klárar fyrir sýningar. „Já. Við erum svona tíu mínútur að koma okkur í gallann. Andlits- málningin tekur mestan tíma en við erum í góðri æfingu. Við höf- um líka gert þetta á ótrúlegustu stöðum, á baðhergi í flugvél og á vatnslausu Afríkuklósetti.“ Hrefna segir að þær geri allt sjálfar sem þær mögulega geti. „Þess vegna hefur þetta gengið. Ef við værum alltaf að bíða eftir að fjármagna allt í botn þá gerðist varla mikið. Við fáum ekki alltaf greitt en oft kemur eitthvað í kjöl- farið á því sem við gerum. Við eigum góðar og skilningsríkar fjölskyldur sem styðja við bakið á okkur í einu og öllu. Stundum ber þetta sig en stundum alls ekki.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Þau fyrirtæki sem þegar hafa öðlast jafn- launavottun eru: Íslenska gámafélagið, IKEA, ISS, Parlogis, Johan Rönning, Land- mælingar Íslands, Deloitte, KPMG, Logos og Ölgerðin. Óútskýrður launamunur kynjanna innan VR er nú 9,4%. Með Jafnlaunavottun VR geta framsækin fyrirtæki látið gera faglega úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf. jafnlaunavottun.vr.is Leiðréttum launamun kynjanna Jafnlaunavottun VR er fyrir öll fyrirtæki og opinberar stofnanir. Hún staðfestir að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. viðtal 31 Helgin 13.-15. september 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.