Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 36
„Air Promise“
F
Fátt í seinni tíð er eins fyndið, eigin-
lega absúrd, og margfrægur skóbúnaður
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar for-
sætisráðherra þegar hann gekk – eða
skakklappaðist – á fund Obama Banda-
ríkjaforseta og norrænu forsætisráðherr-
anna. Hvernig ráðherranum, með dyggri
aðstoð aðstoðarmannsins Jóhannesar
Þórs Skúlasonar, datt í hug að troða sér
í útjaskaðan Nike-strigaskó á vinstri fót
en spariskó á hægri áður en hann hélt á
fund Bandaríkjaforseta og norrænu ráð-
herranna skal ósagt látið en líklegt er að
eitthvað hafi gengið á áður en sú ákvörð-
un var tekin.
Sigmundi Davíð er vitaskuld vorkunn.
Fyrir fund með valdamesta manni heims
fékk hann slæmsku í annan fótinn, svo
vonda að hann varð að leita sér lækninga
á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi.
Þar dældu læknar sýklalyfjum í okkar
mann og bundu svo um hinar sáru tær að
vonlaust var að komast í nema annan stíf-
burstaða glansskóinn sem þykir við hæfi
að brúka við tækifæri sem þessi.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort ráðherr-
anum sjálfum eða aðstoðarmanni hans
datt þá það snjallræði í hug að finna til
strigaskóinn – eða hvort aðstoðarmaður-
inn reyndi að koma í veg fyrir fyrirætlanir
yfirmanns síns, hafi hinn síðarnefndi átt
hugmyndina. Hvernig á því stóð að þessir
Nike-strigaskór voru í farangri forsætis-
ráðherrans er svo enn önnur saga.
Ljóst er að minnsta kosti að kona var
ekki í föruneyti forsætisráðherra að þessu
sinni. Engin kona, hvorki eiginkona ráð-
herrans, aðstoðarkona né nokkur önnur
af því eðla kyni hefði nokkru sinni fallist
á það að senda sinn mann á fund Banda-
ríkjaforseta í þessari múnderingu. Striga-
skór með dökkum jakkafötum, skyrtu
og bindi fara illa saman – og enn verr ef
lakkskór er á hinum fætinum.
Óhugsandi er, til dæmis, að Svanhildur
Hólm, aðstoðarkona Bjarna Benediktsson-
ar, hefði sent hann í íþróttaskó á öðrum
fæti til fundar við Obama. Hún hefði
reddað málum með öðrum hætti, jafnvel í
tímahraki.
Kona í föruneyti Sigmundar Davíðs
hefði í snarhasti útvegað nýja skó á for-
sætisráðherrann, gert allt vitlaust á
hótelinu í nafni norrænnar samvinnu – ef
ekki heimsfriðar. Það sér hver maður að
starfsmenn á glæsihóteli í Stokkhólmi
hefðu umsviflalaust náð í nýja skó á for-
sætisráðherrann fyrir fund sem þennan
– jafnvel þótt þeir skór hefðu þurft að vera
fimm til tíu númerum stærri en þeir sem
Sigmundur Davíð brúkar hvunndags.
Hefðu þeir ekki verið til á lager hefði verið
kallaður til konunglegur skósmiður og
hann látinn smíða snimmhendis glansskó
á íslenska forsætisráðherrann – þann
hægri í eðlilegri stærð en hinn vinstri í
þeirri stærð sem þurfti vegna bólgunnar
og sárabindanna. Enginn hefði
fattað neitt – en síðar hefðu
þessir skór jafnvel orðið
safngripir og til sýnis í
Þjóðminjasafninu.
Þetta datt hvorki Sig-
mundi Davíð né Jó-
hannesi Þór, kven-
mannslausum,
í hug þegar
leið að
fundin-
um og ljóst mátti vera að forsætisráðherr-
ann kæmist aðeins í annan spariskóinn
sem hann tók með sér að heiman. „Ertu
ekki með aðra skó?“ er líklegt að Jó-
hannes hafi sagt við vinnuveitanda sinn.
„Jú,“ er trúlegt að forsætisráðherrann hafi
svarað, „ég var í íþróttaskóm í flugvélinni,
þú veist hvað fæturnir geta bólgnað þar.“
„Fínt,“ má þá reikna með að aðstoðar-
maðurinn hafi sagt, „eru það ekki svörtu
Nækararnir sem þú ert yfirleitt í? Þeir
passa alveg við jakkafötin. Það tekur
enginn eftir þessu, maður, það verða allir
með augun á Obama – og kannski Helle
Thorning því hún er nú sætust af ykkur.
Þú þarft ekki einu sinni að reima. Það
þrengir bara að.”
„Ætti ég að vera í strigaskónum á
báðum?“ er mjög sennilegt að forsætis-
ráðherrann hafi þá spurt sinn nánasta
ráðgjafa. „Nei,“ má ætla að ráðgjafinn
hafi svarað – og það af yfirlögðu ráði, „þú
verður að sýna sænska gestgjafanum og
hinum norrænu forsætisráðherrunum
tilhlýðilega virðingu og ekki síst sjálfum
Bandaríkjaforseta. Þú veist, samkvæmt
prótókollinum, að þú verður lengst til
hægri á myndunum sem teknar verða.
Þetta er allt planað frá A til Ö, eins og við
ættum að vera farnir að þekkja frá því
þú nældir þér í þetta djobb. Þú snýrð því
betri hliðinni, þeirri með lakkskónum, að
öllum hinum. Ég hef enga trú á öðru en
vinstri fóturinn á þér verði út úr mynd,
hvort sem er. Svo eru þetta svartir skór,
þrátt fyrir allt, svo þeir falla alveg inn í.
Það sér heldur enginn hvíta Nike-merkið.
Hver heldurðu að sé að horfa á lappirnar
á ykkur?“
Bestu ráðgjafar sjá ekki allt fyrir. Þess
vegna þekkja jafnvel smábörn í Tyrklandi
og Brasilíu nafn forsætisráðherra Íslands,
þótt ekki sé öllum þjóðum auðvelt að bera
nafn hans fram frekar en heiti Eyjafjalla-
jökuls þegar það eldfjall bærði á sér á
sínum tíma með alkunnum afleiðingum.
Enn þekktara en nafnið er þó fótabún-
aður leiðtogans – en óvíst er með öllu
hvort íþróttafata- og-skóframleiðandinn
Nike muni nota þann sérstaka búnað í
auglýsingaherferð víða um lönd. Þó ættu
menn þar á bæ að grípa tækifærið og vera
snöggir. Þeir hafa gert það áður, með
góðum árangri. Þegar körfuboltastjarnan
Michael Jordan var á hátindi ferils síns hóf
Nike framleiðslu á Air Jordan íþróttaskóm
sem slógu í gegn og eru enn framleidd-
ir. Jordan var þó aðeins íþróttamaður.
Sig- mundur Davíð er hins vegar
for- sætisráðherra, mestur
valdamaður sinnar
þjóðar, maður sem
fundar með Obama og
hans líkum í svörtum
Nike-skó – en aðeins á
öðrum fæti. Nýjung Nike
fælist í því að bjóða saman í
pakka svartan íþróttaskó á
vinstri fót en samlitan lakkskó á
þann hægri.
Í kjölfar mikils kosningasigurs
Sigmundar Davíðs á liðnu vori má
vel sjá fyrir sér að Nike kynnti og
seldi pakkann á alþjóðmarkaði sem
„Air Promise“. Loforðaskór á öðr-
um fæti en lakkskór á hinum.
Efling kosningaloforðanna,
þegar þar að kemur, fer svo
eftir því í hvorn fótinn
ráðherrann stígur.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Galieve Cool Mint mixtúra, dreifa /skammtapoki / Galieve Peppermint tuggutöflur.. Innihaldslýsing:
Hver 10 ml skammtur af Galieve Cool Mint inniheldur 500 mg af natríumalgínati, 267 mg af
natríumhýdrógenkarbónati og 160 mg af kalsíumkarbónati. Hver tafla Galieve Peppermint
inniheldur: 250 mg af natríumalgínati, 133,5 mg af natríumhýdrógenkarbónati og 80 mg af
kalsíumkarbónati. Ábendingar: Meðferð við einkennum maga- og vélindabakflæðis, svo sem nábít
(sýrubakflæði), brjóstsviða og meltingartruflunum (tengdum bakflæði), t.d. eftir máltíðir eða á
meðgöngu. Skammtar og lyfjagjöf: Galieve Cool Mint mixtúra: Til inntöku. Fullorðnir og börn 12 ára
og eldri: 10-20 ml (eða 1-2 skammtapokar) eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að fjórum
sinnum á dag). Galieve Peppermint tuggutöflur: Til inntöku, eftir að hafa verið tuggin vandlega.
Fullorðnir og börn 12 ára og eldri: Tvær til fjórar töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa (allt að
fjórum sinnum á sólarhring). Frábendingar: Ekki má nota lyfið hjá sjúklingum með þekkt ofnæmi fyrir
virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna, eða ef grunur er um slíkt. Sérstök varnaðarorð og
varúðarreglur við notkun: Galieve inniheldur natríum. Þetta þarf að hafa í huga þegar þörf er á mjög
saltsnauðu fæði, t.d. í sumum tilvikum hjartabilunar og skerðingar á nýrnastarfsemi. Galieve
inniheldur kalsíumkarbónat. Gæta þarf varúðar við meðferð sjúklinga með blóðkalsíumhækkun,
nýrnakölkun og endurtekna nýrnasteina sem innihalda kalsíum. Verkun er hugsanlega skert hjá
sjúklingum með mjög lága þéttni magasýru. Ef einkenni batna ekki eftir sjö daga, skal endurmeta
klínískt ástand. Yfirleitt er ekki mælt með meðferð hjá börnum yngri en 12 ára, nema samkvæmt
læknisráði. Galieve Cool Mint mixtúra/skammtapokar inniheldur metýlparahýdroxýbenzóat (E218)
og própýlparahýdroxýbenzóat (E216) sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum (hugsanlega
síðbúnum). Galieve Peppermint tuggutöflur má ekki gefa sjúklingum með fenýlketónmigu, þar sem
þær innihalda aspartam.. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi:
Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
1. V Strugala er. Al. The journal of international medical research, vol 38 (2010) A randomized,
Controlled, Crossover trial to Investigae Times of onset of the perception of soothing and cooling
by Over-the-Counter Heartburn Treatments.
2. B.Chevrel, MD. Journal of International Medical Research, vol 8 (1980) A comparative Cross-over
Study on the Treatment of heartburn and Epigastric Pain; Liquid Gaviscone and Magnesium-
Aluminum Antacid Gel.
Ert þú með
brjóstsviða?
• Dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum 1
• Virkar í allt að 4 tíma 2
Mixtúra Cool Mint 300 ml
Mixtúra með Cool Mint bragði og lykt.
Galieve Peppermint
Tuggutöflur með piparmintu bragði
36 viðhorf Helgin 13.-15. september 2013