Fréttatíminn - 13.09.2013, Side 51
heilsa 51Helgin 13.-15. september 2013
Ég æfi þríþraut með áherslu á hjólreiðar.
Æfingarnar eru mjög fjölbreyttar að lengd og
gæðum en lengstu æfingarnar eru 6 tímar.
Ég prófaði Nutrilenk Gold fyrir rúmlega ári
og fannst það hjálpa mér mikið. Ýmsar
rannsóknir í ritrýndum alþjóðlegum timaritum
hafa sýnt fram á jákvæða virkni innihalds-
efna sem eru í Nutrilenk án þess að þau séu
skráð sem lyf.
Ég prófaði að hætta að taka inn Nutrilenk
nokkrum mánuðum síðar en byrjaði aftur
og hef tekið Nutrilenk núna í rúmlega hálft
ár og ætla að halda því áfram enda hafa
æfingar og keppnir gengið mjög vel.
Nutrilenk er fáanlegt í estum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK
- hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina
Nutrilenk Gold gerir gæfumuninn
Hákon Hrafn Sigurðsson
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna.
Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum
þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó-
tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til
mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan
hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef
og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika.
Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er
öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af
kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki.
Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski
og slitnum liðum
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Hákon Hrafn er 39 ára fjölskyldumaður,
Íslandsmeistari í þríþraut síðustu þrjú ár,
þríþrautarmaður ársins og Íslandsmeistari
í tímakeppnihjólreiðum.
Hressandi
humarsúpa
Innihald
• 500 gr. humar í skel (má vera lítill
og brotinn)
• Hálfur laukur
• 1 meðalstór gulrót
• 2 hvítlauksrif
• 1 msk. og 1 tsk. kókosolía
• 1 lítri vatn
• 2 1/2 gerlausir grænmetisteningar
• 2 msk. fiskiolía (Nam Plah)
• 100 ml. léttmjólk (fyrir þykkari
súpu má nota hafrarjóma eða
matreiðslurjóma)
• 2 msk. maísmjöl (eða arrow root)
• 1 msk. tómatmauk
• Hálf tsk. karrí
• Smá salt
Aðferð
Þíðið humarinn hann ef frosinn.
Klippið í bakið á skelinni með
skærum. Takið humarinn úr
skelinni, skolið og sigtið.
Hreinsið görnina úr humrinum.
Setjið humarinn á disk og geymið
í ísskápnum. Ef humarinn er mjög
stór er gott að skera hann í minni
bita (miða við munnbita).
Skolið skeljarnar, sigtið og setjið
í skál.
Afhýðið hvítlaukinn, laukinn og
gulrótina og saxið gróft.
Setjið 1 tsk. kókosolíu og svolítið
vatn í stóran súpupott.
Setjið skeljarnar út í og hitið í 10
mínútur.
Bætið saxaða hvítlauknum,
lauknum og gulrótinni út í og hitið í
2-3 mínútur.
Bætið 1 lítra af vatni út í ásamt
grænmetisteningunum, tómat-
maukinu, karríinu og fiskisósunni.
Setjið lokið yfir pottinn og látið
malla við vægan hita í klukkutíma
(en gjarnan lengur).
Hrærið vel saman í skál, 1 msk. af
kókosolíu og maísmjölinu. Bætið
mjólkinni smám saman út í.
Þegar soðið hefur mallað í að
minnsta kosti klukkutíma skal
sigta það í stóra skál. Fleygja má
grænmetinu og skeljunum.
Setjið soðið aftur í pottinn og látið
suðuna koma upp.
Lækkið undir súpunni og hellið
mjólkurblöndunni út í.
Sumum finnst gott að setja svolitla
slettu af hafrarjóma (eða mat-
reiðslurjóma) út í súpuna og skal
það þá gert hér.
Saltið súpuna eftir smekk.
10-15 mínútum áður súpan er borin
fram skal bæta humrinum út í.
Hann ætti ekki að sjóða heldur
aðeins hitna í gegn. Hann stífnar
og verður hvítur þegar hann er
tilbúinn.
Berið fram strax.
Uppskrift af vefnum Café Sigrún
Innihald
• 1 vel þroskað, frekar stórt
mangó, afhýtt og skorið í
bita
• 2 vel þroskaðir bananar,
skornir í grófa bita
• 300-400 ml sojamjólk (eða
önnur mjólk)
• 2 msk hnetusmjör (heima-
tilbúið eða úr heilsubúð)
• Nokkrir ísmolar
Mangó- og hnetusmjörsdrykkur
Aðferð
Afhýðið mangóið, fjarlægið steininn og skerið mangókjötið í stóra bita.
Skrælið banana og skerið í grófa bita.
Setjið ísmola í blandarann ásamt 50 ml af sojamjólkinni.
Blandið í nokkrar sekúndur.
Setjið mangó, banana, hnetusmjör og 250 ml af sojamjólkinni í
blandarann og blandið áfram (í um 30-60 sekúndur á fullum krafti).
Drykkurinn ætti að verða silkimjúkur en ef hann er of þykkur bætið þá
meiri sojamjólk út í.
Hellið í glös og berið fram strax.
Uppskrift af vefnum Café Sigrún