Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 05.04.2013, Qupperneq 14
En hver er maðurinn sem líklegur er til þess að leiða þjóðina næstu fjögur ár – í gegnum þann ólgusjó sem framundan er? Maðurinn sem þarf að taka erfiðar ákvarðanir í hin- um ógnarstóru málum er varða hag okkar allra og framtíð þjóðarinnar: hvernig afnemum við gjaldeyrishöft- in – hvað á að gera við snjóhengjuna svokölluðu – er Íslandi best borgið innan eða utan Evrópusambandsins? Og hvernig ætlar hann að uppfylla kosningaloforðin um betri tíð með blóm í haga? Alveg að verða forsætisráðherra Sigmundur Davíð féllst á að hitta mig næstsíðasta starfsdag þingsins. Hann var önnum kafinn og tíma- bundinn vegna þeirra miklu deilna sem voru á þinginu um starfslok. Við Hari ljósmyndari fengum tæpar tvær klukkustundir með honum í blíðskaparveðri og stungum upp á því við hann að við skelltum okkur í bíltúr til Þingvalla sem hann sam- þykkti, „dauðfeginn“, að eigin sögn, að sleppa aðeins út undir bert loft. Ég hafði kynnt fyrir honum hug- myndina að mynda hann á Þing- völlum með íslenska fánann í bak- grunni, „fyrst hann væri nú alveg að verða forsætisráðherra“. Hann var til í slaginn. Ég sæki hann á vandræðalega skítugum fjölskyldubílnum í flýti, því ég hafði lofað aðstoðarmanni hans að skila Sigmundi á ákveð- inn stað að tæpum tveimur tímum liðnum. Sigmundur bíður í gler- tengiganginum milli gamla þing- hússins og viðbyggingarinnar og sér mig um leið og ég kem. Ég stekk út úr bílnum til að heilsa honum og hann kyssir mig kumpánlega á vangann þegar hann heilsar mér og óskar mér til hamingju með rit- stjórastarfið. Við keyrum upp á Fréttatíma og færum okkur yfir í ljósmyndarabílinn því áformað hafði verið að við Sigmundur sætum saman í aftursætinu þar sem viðtalið færi fram á leiðinni til og frá Þing- Við bjóðum góða þjónustu Vantar unglinginn á heimilinu smá bíópening? Við einföldum millifærslur í snjallsímanum margfalt. Með nýja Íslandsbanka Appinu má nálgast stöðuna á reikningum og færa smærri fjárhæðir á vini og vandamenn með fáeinum smellum. islandsbanki.is | Sími 440 4000 Skannaðu kóðann til að sækja Appið. Millifærðu með hraðfærslum í Appinu Þjónusta í gegnum Appið: Hraðfærslur á þekkta viðtakendur Staða reikninga með einum smelli Myntbreyta og gengi gjaldmiðla Upplýsingar um útibú og hraðbanka Aðgengi að Netbanka o.fl. sem opnar á fleiri möguleika Kynntu þér nýja Appið betur á www.islandsbanki.is/farsiminn Veldu hraðfærslur á upphafsskjámynd og smelltu á þekktan viðtakanda Veldu eða skráðu inn upphæð Millifærsla framkvæmd! Þjónustan er í boði fyrir fjárráða einstaklinga með aðgang að Netbanka Íslandsbanka. einn tveir þrír!og... 1.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 5 11 4 2 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var þekkt andlit áður en hann varð skyndilega formaður Framsóknarflokksins í janúar 2009. Hann hafði um nokkurra ára skeið unnið sem afleys- ingamaður á fréttastofu RÚV. Auk þess hafði hann vakið athygli fyrir að tala af þekkingu og ástríðu um skipulagsmál í Reykjavík og um mikilvægi þess að vernda gömul hús í borginni. Sigmundur Davíð er 38 ára, uppalinn í Breiðholtinu, en bjó frá sjö til tíu ára aldri í Washington meðan faðir hans starfaði hjá Al- þjóðabankanum þar í borg. Foreldrar hans eru Gunnlaugur Sigmundsson, athafnamaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sem oft er kenndur við Kögun, og Sigríður Sigurbjörnsdóttir, lífeindafræðingur. Sigmund- ur Davíð er elstur þriggja systkina. Sigmundur lauk stúdentsprófi frá MR árið 1995 og fór eftir það að læra viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann tók sér tíu ár eftir stúd- entspróf í að ljúka BSc prófi í viðskiptafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein. Á þeim tíma stundaði hann meðal annars skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu og einnig nám við Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasam- skiptum og opinberri stjórnsýslu. Á yngri árum vann hann sem sumarmaður á einni af bensín- stöðvum ESSÓ. Sigmundur fór síðan í náms til DPhil gráðu í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-há- skóla með áherslu á tengsl hagrænnar þró- unar og skipulagsmála. Hann fékk styrk frá breskum stjórnvöldum til að stunda námið. Hann mun vera kominn vel á veg með að ljúka doktorsprófinu en námið hefur eðlilega setið á hakanum frá því hann hellti sér í stjórnmálin. Svaraði kalli frá flokki feðranna Framganga Sigmundar Davíðs í skipulags- málum þar sem fréttamaðurinn sýndi á sér nýja hlið varð til þess að Óskar Bergsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, fékk hann til þess að taka sæti í skipulagsnefnd Reykjavíkur fyrir Framsóknarflokkinn árið 2008. Sig- mundur hafði tengsl við Framsóknarflokkinn í gegnum föður sinn en Gunnlaugur Sigmunds- son var alþingismaður Framsóknarflokksins á Vestfjörðum um tíma. Um jólaleytið þetta sama ár, 2008, var Sigmundur Davíð svo búinn að hella sér út í slag um formennsku í Framsóknarflokknum í kjölfar þess að Guðni Ágústsson sagði af sér formennsku og boðað hafði verið til lands- fundar í lok janúar. Sagt er að nokkrir aust- firskir framsóknarmenn, sem hrifist höfðu af framgöngu hans í umræðum um skipulags- málin, hafi lagt hart að Sigmundi að hella sér í stjórnmálin og taka að sér að leiða flokk feðra sinna en Framsókn var á þessum tíma í kreppu. Kallað var eftir nýju fólki og því að gert yrði hreint í flokknum eftir hrunið og óvinsæla stjórnartíð Halldórs Ásgrímssonar. Sigmundur tók áskoruninni og stóð uppi sem sigurvegari skömmu síðar. Hann var svo kjörinn á Alþingi í kosningunum í apríl 2009. Þessum tveimur störfum, þingmennsku og formennsku í Framsóknarflokknum, hefur Sigmundur Davíð gegnt lengur en nokkru öðru starfi sem hann hefur tekist á hendur á ævinni. Hannar eigin jólakort Sigmundur Davíð málar í frístundum og hefur meðal annars málað eigin jólakort. Hann hefur einnig safnað sérmerktum servíettum. Að öðru leyti hefur hann haldið einkalífi sínu fyrir utan fjölmiðla að mestu. Sigmundur Davíð er kvæntur Önnu Sigur- laugu Pálsdóttur, mannfræðingi og fjárfesti, og eiga þau rúmlega eins árs dóttur. Þau búa í einbýlishúsi í Ystaseli. Anna Sigurlaug er millj- arðamæringur og ein auðugasta kona landsins en hún hefur fengið fyrirframgreiddan arf eftir föður sinn, Pál Samúelsson, sem kenndur var við Toyota-umboðið sem fjölskyldan rak ára- tugum saman en seldi á hápunkti góðærisins. Hluti af elítunni Foreldrar Sigmundar eru einnig auðugir en Gunnlaugur faðir hans auðgaðist eftir að hann keypti ráðandi hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Kögun (sem nú er hluti af Advania) af ríkinu í viðskiptum sem löngum hafa verið umdeild hér á landi. Í aðdraganda hrunsins var Gunnlaugur einn þriggja eigenda fyrirtækisins Teton, sem hagnaðist mikið á stöðutökum í aðdraganda hrunsins. Sigmundur Davíð hefur því alist upp við alls- nægtir og hefur sjálfur sagt í viðtölum að hann sé hluti af elítunni og sé að því leyti í öfunds- verðri stöðu. Þessi bakgrunnur hans þótti líka skína í gegn í ræðu sem hann hélt á samkomu hjá Framsóknarflokknum og sagði þá frá helstu kynnum sínum af fátækt. Þau voru að hafa orðið vitni að því á skemmtun á gamla Melavell- inum að eldri maður, sem var búinn að panta ís fyrir barnabarn sitt, hafði gleymt veskinu, fann ekki peningana og varð að afþakka ísinn. Frístundamálari og servéttusafnari Sigmundur Davíð þegar hann var lýstur formaður Framsóknarflokksins í janúar 2009, þá nýliði í pólitík. 14 viðtal Helgin 5.-7. apríl 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.