Fréttatíminn - 05.04.2013, Blaðsíða 30
K ristín Einarsdóttir, kennari í Krika-skóla í Mosfellsbæ, hefur þróað sína eigin kennsluaðferð sem kallast Leik-
ur að læra. Í aðferð Kristínar felst að þriggja
til níu ára börnum eru kennd bóknámsfög
með hreyfingu á líflegan hátt. „Á milli þess
sem börnin eru að hugsa eða læra eru þau að
hreyfa sig,“ segir Kristín og útskýrir þá náms-
leiki sem hún hefur þróað.
Nemendur æfa sig til að mynda í talnaskiln-
ingi þannig að kennarinn segir einhverja
tölu. Þá fá börnin fyrirmæli um að fara frá
sínum stað samkvæmt þeim ferðamáta sem
kennarinn hefur ákveðið, til dæmis hopp-
andi á öðrum fæti, skríðandi eða gangandi
kóngulóargang. Svo eiga nemendurnir að fara
og sækja smáhluti, jafn marga og talan sem
kennarinn ákvað. Þegar því er lokið fá börnin fyrirmæli um að
sækja kubb sem táknar þessa tilteknu tölu. Þannig ná börnin
að tengja fjölda smáhlutanna við tölutáknið. Slíkur leikur getur
hentað börnum allt niður í þriggja ára. Til að byrja með nota þau
yngstu aðeins tölurnar 1 til 3 en þau eldri æfa sig með tugum.
Kristín segir margar rannsóknir á heilastarfsemi barna
hafa sýnt að þegar börn læra með skynjun sinni á umhverfinu
varðveitist þekkingin betur. Kristín segir einnig gott að byrja
snemma að kenna börnum tölur og bókstafi því þá sjáist fyrr
hverjir geta átt í erfiðleikum svo hægt sé að veita þeim stuðning
strax. Með aðferðinni þjálfa nemendur bæði færni sína í fyrr-
nefndum bóknámsgreinum og að auki gróf- og fínhreyfingar,
einbeitingu, samhæfingu, samvinnu, jafnvægi og styrk.
Kristín vinnur nú að gerð stærðfræðipakka fyrir kennara sem
mun innihalda tíu æfingar og allt sem til þarf í hreyfileikina og
hefur hún að undanförnu haldið námskeið fyrir kennara og leið-
beinendur þar sem hún kynnir kennsluaðferðir sínar sem hafa
hlotið góðar viðtökur. Kristín hefur þróað kennsluaðferðina frá
árinu 1995 þegar hún útskrifaðist sem íþróttakennari en í loka-
verkefni sínu bjó hún til kasettu með líkamsæfingum og slökun
sem kennarar geta notað til að brjóta upp kennslustundir. Það
efni er nú fáanlegt á geisladiski. Síðar lauk Kristín grunnskóla-
kennaranámi og nýtir því íþróttakennaranámið við kennslu á
bóknámi. Þegar Kristín hóf störf sem kennari í Lágafellsskóla
árið 2005 var hver kennslustund 60 mínútur. „Eftir fyrstu 40
mínúturnar voru börnin orðin leið. Þá náði ég í græjurnar í
íþróttasalnum og fór að búa til þetta, leikur að læra, með börn-
unum. Þá fór ég að búa til æfingar og skrifa niður og nota aftur
og börnunum fannst þetta gaman,“ segir Kristín
Yngstu börnin byrja að læra liti og form með aðferð Kristínar
og þau eldri einnig bókstafi, hljóð, tölur og talnaskilning. Næsta
haust stendur til að bæta við byrjendakennslu í ensku.
„Þegar ég fór að kenna yngri krökkunum þá sá ég hvað þau
eru miklir svampar. Svo sér maður tveggja ára krakka með
iPad til dæmis. Þau geta farið í leik, geta hætt í leik og farið svo í
annan leik. Það fær mann til að hugsa hvort við séum örugglega
að gera okkar besta. Gætum við verið að kenna þeim meira?“
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
NORÐURKRILL
Fæst flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Betri einbeiting og betri líðan
Þegar maður rekur sitt eigið fyrirtæki, er í fullu fjarnámi og á auk þess tvö ung börn,
þá skiptir öllu máli að heilinn virki rétt og vel. Ég byrjaði að nota Norðurkrill fyrir
fjórum mánuðum og fann nánast strax mun á mér. Einbeitingin varð betri auk þess
sem ég varð vör við mjög jákvæð áhrif á lesblinduna hjá mér. Fyrir utan skarpari
einbeitingu líður mér allri betur líkamlega og andlega.
Það skiptir mig miklu máli að Omega 3 í Norðurkrill sé hreint og ómengað og eftir að
hafa prufað þó nokkuð margar tegundir af Omega 3 olíum get ég fullyrt að Norðurkrill
er besta Omgea 3 olía sem ég hef notað.
Ég hvet alla þá sem vilja skerpa á minni og einbeitingu að taka inn Norðurkrill.
Heilinn í okkur verðskuldar aðeins það besta.
Jóhanna S. Hannesdóttir,
þjóðfræðinemi og eigandi Sunnlenska.is
NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum.
Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið.
Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta
dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð,
uppþemba eða magaólga sem oft fylgir
inntöku á fiski- og jurtaolíum.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
„Ég vil frekar kenna fag
en bók og sömuleiðis
frekar eftir markmiðum
en tiltekna blaðsíðu“, segir
Kristín Einarsdóttir grunn-
skólakennari sem hefur
þróað kennsluaðferðina
Leikur að læra sem
byggist á því að börn læra
hefðbundin bóknámsfög
með hreyfileikjum.
Læra stærðfræði
með köngulóargangi
„Eftir fyrstu 40 mínúturnar voru börnin orðin leið. Þá náði ég
í græjurnar í íþróttasalnum og fór að búa til þetta, Leikur að
læra, með börnunum,“ segir Kristín Einarsdóttir kennari.
Kristín Einarsdóttir
Gætum
við verið
að kenna
þeim
meira?
30 viðtal Helgin 5.-7. apríl 2013