Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 28

Fréttatíminn - 05.04.2013, Side 28
Losar þig við dauðahúðögur og gerir fæturna silkimjúka eir aðeins eitt skipti. Einfalt, árangursríkt og áreynslulaust Fæst í Lyu, Árbæjarapóteki, Rimaapóteki og Lyaval Vespur og nöðrur Svartleðraðar mótorhjólakempur, krúttlegu hipsterarnir á vesp- unum sínum og unglingadeildin á skellinöðrunum eru búin að vera með fiðring í tánum og kláða í bensínlúkunni lengi og nú er loks hægt að fara að viðra mótorfákana almennilega og þenja sig á auðum götum borgarinnar. Um mótorhjólafólkið leika óneitanlega rómantískir frelsis- vindar og þegar vígalegir englar vítis þeysa í hópum í umferðinni fer ekkert á milli mála að vorið er komið þótt að sumum setji kulda- hroll þegar Harley Davidson-hjólin urra. Ökumenn bifreiða fá einnig fjör- fisk í fótinn á inngjöfinni þegar akstursaðstæður skána en öllum á vegum úti er þó hollast að hafa sig mátulega hæga og fara varlega í gleðinni. Þá er einnig gott að hafa í huga að um leið og vespurnar fara að mala og leðurgengin að glenna sig fara nefnilega mótor- hjólalöggurnar líka á stjá og geta gripið hraðafíklana fyrirvaralítið með sektarblokkina á lofti og það er sko nóg pláss fyrir peninga í tómum ríkissjóði. Dúnk, dúnk, dúnk! Þetta er ungt og leikur sér og sem betur fer ekki bara í tölvum. Það vita þeir sem búa í nágrenni við skólabyggingar en um leið og hlýnar aðeins á kvöldin mæta krakk- arnir á körfu- bolta- velli skól- anna, dripla, hrópa, kalla og skjóta þriggja stiga körfum langt fram eftir björtum sum- arkvöldunum. Jákvætt og fallegt nema kannski í huga þeirra sem komnir eru af léttasta skeiði og leggjast til hvílu vel fyrir miðnætti. Subbuskapurinn í sviðsljósi Blessuð sólin elskar allt og vekur með kossi. Því miður er „allt“ lykil- orðið í þessu og þegar sólin varpar ylvolgum geislum sínum inn um gluggana glitrar hvert einasta rykkorn eins og demantur. Jafnvel þótt tuskuóðir hreinlætisbrjálæð- ingar strjúki af húsgögnum sínum daglega blasir rykið alltaf við auk þess sem agnirnar sveima eins og mý um loftið. Þetta er alveg til að æra óstöðuga og getur sett dag- fars prúðasta fólk úr jafnvægi þar sem það upplifir sig sem verstu sóða og finnst það jafnvel sjálft vera rykugt og óhreint. Ljúfir vorboðar og leiðigjarnir Lóan er komin að kveða burt snjóinn og einhvern veginn er það innprentað í genamengi skammdegisþjakaðs og frostbitins mörlandans að brúnir hans lyftast sjálfkrafa þegar þessi litli, ljúfi vorboði mætir til leiks. Lóan lýgur ekki og þegar hún mætir styttist í betri tíð með blóm í haga. Vorboðarnir eru þó fleiri en lóan og sumir ekkert sérstaklega velkomnir þótt þeir séu fylgi- fiskar hækkandi sólar og sprellfjörugra drauma og langana sem eru við það að losna úr klakaböndum. Fréttatíminn tínir hér til nokkra vorboða. Ljúfa jafnt sem leiðinlega. Einstakt tækifæri að upplifa alvöru dansleik föstudaginn 5. apríl & laugardaginn 6. apríl 5 & 6 APRÍL 2013 Aðgangseyrir 1.800 kr. Dansleikur hefst kl.23 www.kringlukrain.is Helgin 5.-7. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.