Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Page 29

Fréttatíminn - 05.04.2013, Page 29
frá aðeins kr. 39.900 Flugsæti á mann frá aðeins kr. 44.900 Flugsæti á mann 25. apríl í 4 nætur 25. apríl í 4 nætur Frá kr. 39.900 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 25. apríl í 4 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr.79.800. Frá kr. 44.900 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 25. apríl í 4 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr.89.800. Kr. 17.900 í tvíbýli á hótel ILF *** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 30.300 Kr. 28.200 í tvíbýli á hótel Clarion Congress **** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 53.500 Kr. 35.900 í tvíbýli á hótel Tryp Macarena **** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 65.600 Kr. 46.900 í tvíbýli á hótel Abba Triana ****+ í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 80.800 Verðdæmi fyrir gistingu: Verðdæmi fyrir gistingu:Prag til Prag og Sevilla Síðustu sætin í apríl 25. apríl (sumardagurinn fyrsti) – frá kr. 39.900 Ótrúlegt tilboð - Allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Prag og Sevilla 25. apríl í 4 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Sevilla B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 57 3 57 Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099 • www.heimsferdir. is 2 1FYRIR Af öllum þeim óþægindum sem mögulega kunna að fylgja vorkom- unni er ekki á neina hallað þótt geitung- arnir séu út- nefndir fúlasti vorboðinn. Kosningaskjálfti Góðu heilli og geðheilsu þjóð- arinnar vegna er ekki gengið til kosninga á hverju vori en komandi alþingis- kosningar eru óneitan- lega einn vorboðanna í ár. Sumir hafa beðið þessa uppgjörs lengi og jafnvel talið niður dagana frá því ríkisstjórn Jöhönnu Sigurðardóttur tók við völdum. Þeir eru þó líklega fleiri sem hafa kviðið kosningabaráttunni ógurlega enda má segja að þau ósköp sem nú dynja á þjóðinni, gylliboð, loforð, flaumur skíts og skamma, offramboð á fram- boðum, skoðunum, lausnum og flækjum hafi vomað yfir landinu eins og yfirvofandi kjarnorkuvetur mánuðum sam- an. Furðulegur vorboði það en þetta verður afstaðið eftir þrjár vikur og þá bræðir vorsólin það sem eymir eftir af bullinu og hægt verður að njóta lífsins þar til þing kemur saman í vetur. Vágestir á árásarham Að öllum þeim óþægindum sem mögulega kunna að fylgja vorkomunni er ekki á neina hallað þótt geitungarnir séu útnefndir fúlasti vorboðinn. Þessar litlu og geðstirðu orr- ustuflugur fá blóðið til þess að frjósa í æðum fólks, jafnvel á heitustu sumardögunum. Þessi hvimleiðu aðskota- dýr geta á augabragði leyst krakkafjör á trampolíni upp í óeirðir taugaveiklunar og geðshræringar, notalegt kaffi- samsæti í góðra vina hópi fyrir utan kaffihús getur kafnað í ópum og upphlaupum þegar ófétin gera vart við sig og verst af öllu vondu er að sjálfsögðu þegar kvikindin taka sig til og stinga fólk með tilheyrandi útbrotum, kláða og jafnvel harkalegum ofnæmisvið- brögðum. Þessar flugur eru viðbjóður sem varpa skugga á ljúfustu sólarstundir. Eins og lóan eru þessi ill- fygli þegar farin að gera vart við sig og þeir eru ófáir sem liggja á bæn um harkalegt næturfrost þessi dægrin, í von um að þannig megi höggva skarð í hersinguna sem er í startholunum. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Lj ós m yn di r/ N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es úttekt 29 Helgin 5.-7. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.