Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2013, Blaðsíða 58

Fréttatíminn - 05.04.2013, Blaðsíða 58
 Úlfshjarta Stefán Máni JPV útgáfa, 299 síður. 2013. Myndlistarhá- tíðin Sequences er haldin í sjötta sinn dagana 5.-14. apríl en hátíðin stendur í tíu daga annað hvert ár og beinir sjónum að tímatengdri myndlist eins og gjörningum, hljóð- og myndbandsverkum. Sýningar á verkum sextán listamanna opna á ellefu sýningar- stöðum í miðborginni, auk gjörninga á Skólavörðu- holti, í Listasafni Einars Jónssonar og í Hörpu svo eitthvað sé nefnt. Sequences VI hefst á föstudagskvöld klukkan 20 með opnun sýningar Gretars Reynissonar í Nýlistasafninu og Ar- tíma gallerí við Skúlagötu 28. Gretar er heiðurslistamaður Sequences VI og endurspegla verk hans áherslur hátíðarinnar að þessu sinni. Gretar einsetti sér á sínum tíma að vinna óslitið að verkaröð sinni, Áratugur, hvern einasta dag fyrstu tíu ár aldarinnar og kemur afraksturinn nú fyrir sjónir almennings í fyrsta sinn. Sýningarstaðir eru í miðborginni og lagt er upp með að áhorfendur njóti hvers verks í nánd í litlum og sérstökum sýningarrýmum. Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á sequences.is. Sextán listamenn á ellefu stöðum Gretar Reynisson er heiðurslista- maður Sequences að þessu sinni.  RitdómuR ÚlfshjaRta Á síðum blaðsins í síðustu viku sagði Stefán Máni að það hefði verið mikil áskorun að fara inn í hausinn á 17 ára stúlku við skriftir á bók- inni Úlfshjarta. Undirritaður tók þessum orðum sem áskorun um að lesa bókina og komast sjálfur í samband við sitt innra sautján ára sjálf um páskahelgina. Úlfshjarta ætti samkvæmt öllum reglum að vera augljóst hliðarskref höf- undar en er það samt einhvernveginn ekki. Því höfundareinkenni eru til staðar, kaldranalegar en jafnframt ljóslifandi persónulýsingar sem og undirheimarnir sem hann svo gjarnan skrifar um. Mun- urinn á þessari nýju bók og þeim sem við þekkjum er hins vegar sá að nú sækir Máni efni aðeins út fyrir það sem kallast getur blákaldur íslenskur raunveruleiki. Hann gerir það þó mjög vel og nær að tengja ólíklega þræði saman þannig að úr verður trúverðug og spennandi saga. Það þarf þó að sleppa svolítið fram af sér beislinu til að hrífast með. Svolítið eins og í Skyttum Friðriks Þórs forðum daga. Þegar hann bauð upp á æsilegan skotbar- daga Víkingasveitarinnar og tveggja hval- veiðimanna í Sundhöll Reykjavíkur. Nú er ég ekki 17 ára unglingsstúlka og hef hvorki lesið Hungurleikana né Twi- light-bækurnar. En ég er að verða fertug- ur karlmaður sem hef lesið bæði Harry Potter og vampírusögur Anne Rice, auk þess að hafa horft á allar yfirnáttúru- legar sjónvarpsþáttaraðir og myndir sem gerðar hafa verið í seinni tíð. Viðurkenni þó að ég sleppti áðurnefndum Twilight- myndum. Ég get því sagt með vissu að flétta Stefáns Mána til að tengja heima hins raunverulega og yfirnáttúrulega er ein sú frumlegasta sem fram hefur komið lengi. Tengir bæði Ísland og goðafræði skemmtilega saman við umheiminn og undirheima Reykjavíkur. Þetta er skemmtileg og spennandi bók sem heldur rétt stefndum lesandanum við lesturinn. Það sem helst má þó kvarta yfir er að bókin missir svolítið flugið á seinasta sprettinum og endirinn var mér ekki endilega að skapi. En það kann mögulega að vera vegna þess að ég er sennilega ekkert unglamb lengur. Tunglsýki Stefáns Mána Stefán Máni heldur lesandanum við efnið við lestur Úlfshjarta. Ljósmynd/Hari Haraldur Jónasson hari@ frettatiminn.is 58 menning Helgin 5.-7. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.