Fréttatíminn - 05.04.2013, Qupperneq 70
„Sýnt hefur verið fram á að
lágkolvetnafæði hefur mjög
jákvæð áhrif á heilsufar,“ segir
Haraldur Magnússon osteópati
sem hefur verið helsti talsmaður
lágkolvetnamataræðis hér á landi
og hefur skrifað fjölda greina og
haldið fyrirlestra um kosti þess
til fjölda ára. „Það sem ég sé og
heyri frá fólki er að það hefur
meiri orku, minni sætuþörf,
betri einbeitingu, minni bjúg,
bólgur og liðverki.“ Þá segir hann
fólk hafa náð góðum árangri í að
léttast á þessu mataræði.
Markmiðið að bæta heilsuna
„Ég er hins vegar þeirrar
skoðunar að megintakmarkið
eigi ekki að vera megrun. Aðal
málið er að tileinka sér heilbrigt
líferni með það að markmiði
að bæta heilsuna. Það að léttast
verður þá einungis ein af
aukaverkunum af því að öðlast
bætta heilsu hjá þeim sem eru
yfir kjörþyngd. Haraldur segir
hundruði rannsókna sýna fram á
að lágkolvetnafæði stuðli að betri
blóðsykurstjórn, hafi góð áhrif á
flesta mælanlega þætti hjarta- og
æðasjúkdóma, hafi gefið góða
raun við að lækka blóðþrýsting
og sé það mataræði sem hentar
best fyrir fólk með sykursýki.
Hreint og næringarríkt
mataræði
„Lágkolvetnamataræði á að
snúast um að borða hreinan,
næringarríkan og góðan mat.
Þótt áherslan sé á að auka prótein
og fitu í fæðunni, eins og kjöt,
fisk, egg, smjör, olíur, hnetur og
fræ, snýst þetta alls ekki um að
það eigi að útiloka öll kolvetni.
Það er algengur miskilningur.“
Haraldur segir hlutfall kolvetnis
einungis minnkað en áhersla
lögð á að það komi aðallega frá
grænmeti, ávöxtum og heilkorni
sem inniheldur litla sterkju og
hefur lítil áhrif á blóðsykurinn
á kostnað annarra einfaldra og
unninna kolvetna, eins og sykurs,
ávaxtasykurs, hvíts hveitis og
ýmis konar kornmetis.
Engin tískubóla
Haraldur bendir á að í tvær
milljónir ára hafi maðurinn
verið veiðimaður og safnari
og uppistaðan í fæðunni hafi
verið kjöt með fitu, fugl, fiskur,
innmatur, grænmeti, hnetur
og ávextir. Akuryrkja hafi hins
vegar ekki verið til staðar nema
í 10-12 þúsund ár og þá fyrst hafi
maðurinn farið að neyta kornvara
og kolvetnaríkrar fæðu í auknum
mæli. Í hnotskurn hafi maðurinn
því borðað hreint og lítt unnið
prótein- og fituríkt fæði í
milljónir ára. „Þetta er því engin
tískubylgja heldur mataræði sem
er jafngamalt manninum. Ég tel
það hlutfall kolvetna sem mælt
er með opinberlega í dag vera
mistök, sérstaklega í ljósi þess
hversu unnið það er og hversu
mikið kemur frá kornvörum.“
Haraldur bendir á að lág-
kolvetnamataræði bjóði
upp á mikla fjölbreytni af
næringarríkum mat. „Það er í
raun auðveldara að halda háu
næringargildi á þessu mataræði
en hinu hefðbundna,“ segir
Haraldur Magnússon að lokum.
Haraldur heldur úti vefsíðunni
www.heilsusidan.is en þar eru
birtar greinar um þetta málefni
sem og fjölda annarra um heilbrigt
líferni.
Aftur í
ui
Við bjóðum fjölbreytt úrval
af matvörum fyrir þá sem
kjósa lágkolvetnamataræði
eins og lífrænt kjöt, ferskan
fisk, lífrænt grænmeti,
lífræn frosin ber og fituríkar
mjólkurvörur eins og rjóma
og osta. Við sérhæfum okkur
einnig í hágæða lífrænum,
kaldpressuðum olíum sem og
úrvali af lífrænum möndlum,
hnetum og fræjum en gæði
þeirrar fitu sem aukin er í
þessu mataræði eru gríðarlega
mikilvæg. Á veitingastöðum
okkar er svo hægt að fá LKL-
útgáfu af rétti dagsins.
Verið velkomin – við bjóðum
góða þjónustu og ráðgjöf
um lágkolvetnamataræði og
aðstoðum þig við að finna
réttu vörurnar.
Allt fyrir
lágkolvetna-
lífsstílinn hjá
Lifandi markaði
ferskar og sem minnst
unnar afurðir án aukefna
Lágkolvetnamataræði – ný en gömul hugmyndafræði
Ákveðin vatnaskil eru að verða í umræðunni um
næringu og mataræði. Fyrir um 30 árum voru gefnar
út opinberar ráðleggingar um að sneyða ætti hjá
fituríkum mat en borða hlutfallslega meira af
kolvetnum. Í kjölfarið hóf markaðssetning og sala
fitusnauðrar fæðu innreið sína og neysla á einföldum
kolvetnum jókst til muna. Síðan þá hefur tíðni
lífsstílssjúkdóma eins og offitu og sykursýki í hinum
vestræna heimi snaraukist. Getur verið að skilaboðin
hafi verið röng? Er fita holl eftir allt saman? Margar
nýlegar rannsóknir sýna að mataræði sem byggir á
lágu kolvetnainnihaldi og hærra hlutfalli af fitu og
próteini stuðli að betri heilsu.
Haraldur
Magnússon
osteópati
Lífrænt lambakjöt
frá Brekkulæk
Lífrænt nautakjöt
frá Búlandi
Ósprautaður kjúklingur
Lífrænn kjúklingur
frá Danmörku
Ferskur fiskur
Vistvæn egg
Úrval af lífrænu og
íslensku grænmeti
og berjum
Fituríkar mjólkurvörur,
eins og rjómi og ostar