Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 2
Mikael Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
ís sem bræðir hjörtu
Jólaís af gottimatinn.is sem hefur
alla burði til að verða hefð hjá þér
Laun hækka mest á Íslandi
21,5%
hækkun á
launum á
íslandi
Síðustu 3 ár
Skýrsla OECD
Veðurspá fyrir gamlársdag á Vedur.is.
Einar Magnús Einarsson spáir hægri norðanátt eftir læti
helgarinnar.
Veður Stefnir í SæmilegaSta SkotVeður í reykjaVík
Hæg norðanátt eftir læti helgarinnar
„Það verður nú varla mikill snjór hér á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Einar Magnús
Einarsson veðurfræðingur um áramóta-
veðrið, „en kannski smá föl.“
Miklum stormi er spáð um helgina og
segir Einar að eftir þau læti öll saman fáum
við hæga norðanátt. „Það gengur á með
éljum fyrir norðan og það er smá óvissa
með höfuðborgarsvæðið. Ef áttin verður
aðeins vestlægari gætu komið stöku él,“
segir Magnús en býst ekki við að þau
trufli mikið. Hins vegar verður skýjað með
köflum en það ætti ekki að trufla skotglaða
því flugeldar fari ekki svo hátt.
adda
smáradóttir
safnar áheitum
til styrktar
krabbameins-
félaginu því hún
missti mömmu
sína úr
sjúkdómnum
fyrir einu og
hálfu ári.
Söfnun Safnar áheitum til Styrktar krabbameinSfélaginu
Snoðar sig og safnar fé í
minningu móður sinnar
adda smáradóttir ætlar að raka af sér hárið á þrettándanum og hvetur fólk til að heita á sig til
styrktar krabbameinsfélaginu því hún missti móður sína úr krabbameini í fyrra. krabbameins-
félagið reyndist fjölskyldunni vel og vill hún gefa til baka.
Mamma mín dó í
mars 2011 og mig
hefur síðan þá langað
til að gefa til baka til
Krabbameinsfélagsins.
a dda Smáradóttir er fjórtán ára stúlka úr Hlíðunum sem býður fólki að heita á sig til styrktar Krabbameins-
félaginu og hún muni snoða af sér allt hárið
á þrettándanum. Adda missti móður sína úr
krabbameini á síðasta ári og langar að gefa
til baka til Krabbameinsfélagsins sem reynd-
ist fjölskyldunni vel í veikindunum.
Móðir Öddu, Þórey Einarsdóttir, lést 55
ára að aldri eftir tveggja ára baráttu við
sortuæxliskrabbamein, frá þremur börnum.
Adda er yngst þeirra. Söfnunin er í minningu
Þóreyjar.
„Mamma mín dó í mars 2011 og
mig hefur síðan þá langað til að gefa
til baka til Krabbameinsfélagsins,“
segir Adda. „Ég fékk þessa hug-
mynd þegar ég heyrði af stelpum
sem gerðu það sama til styrktar
UNICEF og fannst þetta tilvalið
tækifæri fyrir mig,“ segir hún.
Adda verður í Vestmanna-
eyjum á þrettándanum og mun
snoða sig þar. Hún mun að auki
gefa hárið til hárkollugerðar
því margir krabbameins-
sjúklingar, sem missa hárið í
krabbameinsmeðferð, velja
að nota hárkollu.
Adda hefur opnað sér-
stakan bankareikning
sem fólk getur lagt áheit
sín inn á og mun öll upp-
hæðin sem safnast renna
beint til Krabbameins-
félagsins. Þegar hafa
safnast um 90 þúsund
krónur og að sögn Öddu
hefur fjölskylda og
vinir lagt söfnuninni lið
sem og vinir mömmu
hennar.
„Mig langaði að eiga
hlut í því að hjálpa
fólki í baráttunni við
þennan sjúkdóm. Ég
vildi að þetta kæmi ekki
fyrir fleiri - ég vildi að
það væri hægt að hjálpa
fleiri,“ segir Adda.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
252 kvartanir til
landlæknis
Embætti landlæknis bárust 252
kvartanir á árinu 2010, samkvæmt
nýútkominni ársskýrslu ársins 2010.
um er að ræða mál sem eru misjafn-
lega umfangsmikil og alvarleg, allt frá
hnökrum í samskiptum til alvarlega
mistaka, að því er fram kemur í skýrsl-
unni. Flestar kvartanirnar vörðuðu
ófullnægjandi meðferð og því næst
ranga greiningu. Flestar kvartanirnar
voru á sviði heimilislækninga en því
næst slysa- og bráðalækninga. Einn
heilbrigðisstarfsmaður var sviptur
starfsleyfi á árinu 2010 og öðrum
veitt formleg áminning. Aðfinnslur frá
embættinu voru þrjár og ábending var
úrskurðuð í 21 tilviki. Ekki þótti ástæða
til aðgerða í 134 málum og öðrum var
ólokið. -sda
laun á íslandi hafa hækkað þrefalt meira en á norður-
löndum síðustu þrjú ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
OECd. á árabilinu 2010 til 2012 hækkuðu laun á íslandi um
21,5% en til samanburðar hækkuðu laun á norðurlöndum
að meðaltali um 8,7% á þessum þremur árum. í Evrópu-
sambandinu hækkuðu laun að meðaltali um 5,1% og í
OECd-ríkjunum um 6,5%.
ísland sker sig úr öðrum ríkjum hvað varðar miklar
launahækkanir og háa verðbólgu. Olíuríkið noregur kemur
næst íslandi í launahækkunum en þar ríkir mikil þensla á
vinnumarkaði og eftirspurn eftir starfsfólki. -sda
Útsölur hefjast á nýju ári
Útsölur í verslunum í kringlunni og
Smáralind hefjast fimmtudaginn 3. janúar
en í kringlunni hefst svokölluð forútsala
klukkan 17 daginn áður. hið sama á við versl-
anir á laugaveginum þar sem áætlað er að
útsölur hefjist strax upp úr áramótum. milli
jóla og nýárs nota margir tækifærið til að
skipta jólagjöfum og ná sér í inneignarnótu
sem síðan er hægt að nota á útsölunum.
Útsala í IKEA hófst í gær, fimmtudaginn 27.
desember. -sda
Varnargarðar við gömlu
höfnina friðaðir
mennta- og menningarmálaráðherra ákvað að
tillögu húsafriðunarnefndar að friða, ásamt
Tryggvaskála á selfossi og seyðisfjarðarkirkju,
gömlu varnagarðana við Reykjavíkurhöfn.
Elstu varnargarðarnir í Reykjavíkurhöfn
eru frá 1913 og 15 og eru það ingólfsgarður
og norðurgarður. Þessir garðar voru um tíma
stærstu framkvæmdir sem unnar höfðu verið
á íslandi. álíka steinhleðslur sem gerðar voru
á fyrri hluta síðustu aldar, voru unnar með
svipuðum hætti og teljast af þeim sökum hafa
mikið varðveislugildi þó þær séu nokkrum
áratugum yngri. steinhleðslugarðarnir sem
voru friðaðir eru ásamt þeim elstu, stein-
hleðslurnar við suðurbugt, ægisgarður,
eystri hleðsla, steinhleðslurnar við Víkina og
Verbúðarbryggjurnar sem ná frá Rastargötu til
Bótabryggju. síðastnefndu tvær eru jafnframt
þær yngstu eða frá árinu 1945.
2 fréttir helgin 28.-30. desember 2012