Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 6

Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 6
Gleðilegt nýtt ár þökkum viðskiptin Með ósk um farsæld á nýju ári  Verslun Miklar annir fraM undan í VínbúðunuM Kaupum áfengi fyrir 700 milljónir króna um áramót Landsmenn hópast í Vínbúðirnar fyrir áramótin og birgja sig upp af áfengi. Búist er við hátt í hundrað þúsund viðskiptavinum og að þeir eyði um 700 milljónum króna. Þar sem 30. desember ber upp á sunnudag má gera ráð fyrir löngum biðröðum á gamlársdag. V ið ráðum inn starfsfólk til að mæta þessum álagstímum og verðum með fullmannað um ára- mótin,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Miklar annir eru fram undan í Vínbúðunum enda birgja landsmenn sig upp af freyðivíni og öðrum áfengum drykkjum fyrir áramótin. Í fyrra seldust 503 þús- und lítrar af áfengi fyrir áramótin, eða dagana 27. til 31. desember. Alls eyddu landsmenn um 670 milljónum króna í áfengi þessa daga. Sigrún kveðst búast við svipaðra sölu og í fyrra en krónutalan gæti orðið hærri í ljósi verðhækk- ana á áfengi. Á þessu fimm daga tímabili komu 94 þúsund við- skiptavinir í Vínbúðirnar og þar af kom 61 prósent síðustu tvo dagana. 30. desember er jafnan einn söluhæsti dagur ársins í Vínbúðunum. Í ár ber hann upp á sunnudag og því er lokað. „Það er því hætt við að það verði mjög mikið álag á gamlársdag. Við hvetjum fólk til að vera snemma á ferðinni til að forðast langar biðraðir,“ segir Sigrún Ósk. Hvað drekkur fólk um áramótin, kaupa allir freyðivín og kampavín? „Já, það er alla vega miklu meiri sala í því á þessum tíma en venjulega. En væntanlega er það bjórinn sem hefur vinninginn. Eins og alla jafna.“ Minni sala var í Vínbúðunum frá 1. til 24. desember en á sama tíma og í fyrra. Hins vegar seldust 679 þúsund lítrar af áfengi dagana 17. til 24. desember sem er 10,3 prósent meira en á sama tímabili í fyrra. Alls komu 132 þúsund viðskipta- vinir í Vínbúðirnar þessa daga. Þar sem Þorláksmessu bar upp á sunnudag var lokað og því var óvenju mikið álag á að- fangadag. Þá komu 14 þúsund viðskipta- vinir þær fjórar klukkustundir sem Vín- búðirnar voru opnar. Það eru 137 prósent fleiri viðskiptavinir en á aðfangadag í fyrra. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Lognið á undan storminum. Þó Íslendingar kaupi mikið af freyðivíni og kampavíni fyrir áramótin er bjór vinsælasta vöruteg- undin. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Sigrún Ósk Sigurðardóttir. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur- borgar.  Verslun söluMarkaðir Listamenn vildu ekki sölubása í miðborg Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur hefur haft til athug- unar tillögu um að borgin standi að því að setja upp sölumarkað í miðbænum þar sem listamenn og aðrir geti fengið aðstöðu til þess að selja verk sín. Að sögn Einars Arnar Benediktssonar, formanns ráðsins, var tillagan send Bandalagi íslenskra lista- manna til umsagnar sem taldi listamenn ekki hafa áhuga á sölu- básunum. Verður tillagan því afgreidd úr ráðinu á fyrsta fundi þess á nýju ári. Meðal annars kom til umræðu að sölumarkaðurinn yrði hýst- ur í Iðnó og var hugmyndin viðruð við framkvæmdastjóra þess. „Þar sem ljóst er að hagsmunaaðilar, listamennirnir sjálfir, hafa ekki áhuga á sölumarkaðnum verður tillagan afgreidd með vísan til þess,“ segir Einar Örn. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Laugavegi 8 S. 552 2412 Litla Jólabúðin óskar landsmönnum öllum farsældar og friðar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu. 69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012 6 fréttir Helgin 28.-30. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.