Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 8
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Á Ástæða er til þess að staldra við um áramót, líta um öxl og síðan fram á við. Árið sem nú er að líða hefur um margt verið Íslending-um gjöfult. Við erum smátt og smátt að ná okkur upp úr öldudal kreppunnar. Sjávar- útvegur hefur um alllangt skeið gengið vel, skapað mikil verðmæti og verið veigamikill þáttur í viðsnúningi til betri vegar. Þar er hins vegar blika á lofti, annars vegar vegna þess að markaðir eru ótrygg- ari en verið hefur með líkum á lækkandi afurðaverði og hins vegar vegna óvissu um stjórnkerfi sjávarútvegsins. Sú óvissa hefur sett mark sitt á atvinnuveginn og orðið til þess að draga úr nauðsyn- legri fjárfestingu. Þar þarf að ná lendingu. Sátt þarf að ríkja um undirstöðuatvinnuveginn. Að honum þarf að búa svo hann dafni og skili með þeim hætti afrakstri til þjóðarinnar. Ferðaþjónustunni verður vart lýst með öðrum hætti en að þróunin hafi verið ævin- týraleg. Hvert metið á fætur öðru var slegið í fjölda erlendra gesta sem sóttu okkur heim, hvort heldur var milli mánaða eða árið í heild. Ferðaþjónustufyrirtækin hafa blómstrað, flest að minnsta kosti. Æ fleiri flugfélög fljúga hingað en Icelandair ber, sem fyrr, ægishjálm yfir önnur. Starfsemi Iceland Express sameinaðist hinu nýstofn- aða félagi Wow-air en félögin, sitt í hvoru lagi og sameinuð, hafa auðveldað fólki milli- landaflug með hagstæðum fargjöldum. Aukið gistirými býðst, bílaleigum fjölgar og hópferðafyrirtækin sinna sínu. Fjölbreytt af- þreying er í boði en sem fyrr er það íslensk náttúra sem höfðar til flestra. Mesti vandinn sem við stöndum frammi fyrir er að gæta að náttúruperlum landsins. Álagið er að nálgast þolmörk á vinsælustu stöðunum. Veðurblíða sumarsins 2012, nánast um allt land, létti mönnum lífið. Landið skartaði sínu fegursta enda ferðast landsmenn meira um eigið land en áður. Síhækkandi eldsneyt- isverð setur þó strik í reikninginn. Það var í hæstu hæðum á árinu og hefur vissulega áhrif á rekstur heimilanna. Þótt sumarið væri blítt vorum við minnt á það, snemma í september, á hvaða breidd- argráðu við búum. Mikið hret áður en rekið hafði verið af fjalli norðanlands olli búsifjum. Margir sauðfjárbændur urðu fyrir tilfinnan- legu tjóni í áhlaupinu vegna fjárfellis. Óvissa fylgir nýju ári, eins og ævinlega. Þar ráðum við örlögum okkar hins vegar að miklu leyti sjálf, þótt vissulega séum við háð ytri aðstæðum, ástandi á erlendum mörk- uðum og efnahagsástandi í viðskiptalöndum okkar. Engin ástæða er þó til að ætla annað en hagur landsmanna haldi áfram að batna ef skynsamlega verður á spilum haldið. Mikil ábyrgð hvílir á aðilum vinnumarkaðar- ins þegar kemur að endurskoðunarákvæð- um kjarasamninga nú í byrjun árs. Það er í þágu atvinnulífs og launþega að efna ekki til átaka sem leitt gætu til háskalegra verð- bólgusamninga. Ekkert kæmi heimilunum verr. Alþingiskosningar verða í vor. Síðustu þingkosningar, vorið 2009, voru haldnar við sérstakar aðstæður. Þá ríkti órói í samfé- laginu, að vonum, eftir bankahrun með alvarlegum efnahagslegum afleiðingum. Núverandi ríkisstjórn tók við erfiðu búi og pólitísk átök hafa verið hörð á kjör- tímabilinu. Margt hefur bærilega tekist en annað miður. Krafa kjósenda hlýtur að vera að við taki samstíga ríkisstjórn að loknum kosningum, hvaða flokkar sem að henni kunna að standa – og að kjörnir fulltrúar snúi bökum saman um framfaramál. Svo við á Fréttatímanum lítum okkur nær þá hefur blaðinu vaxið fiskur um hrygg á því ári sem er að líða. Lestur Fréttatímans hefur aldrei verið meiri en nú. Blaðinu hefur verið afar vel tekið af lesendum og auglýsendum. Það hefur fest sig vel í sessi þegar það hefur sinn fjórða árgang. Fyrir þær móttökur ber að þakka. Starfsfólk Fréttatímans mun kapp- kosta að gera gott blað enn betra á nýju ári. Gleðilegt ár. Áramót Upp úr öldudalnum Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Gnarr slær á gikkfingur Byssurnar ykkar og vopnaeign er vandamálið. Þið þurfið meira eftirlit með skotvopnum. Þetta er skammarlegt. Jón Gnarr, borgarstjóri, sendi byssuóðum Banda- ríkjamönnum tóninn á Facebook. Bullað úti í bæ Þá bara ræða menn úti í bæ það. Þeim er það frjálst. Ég get ekki tekið þátt í að ræða einhverja svona vitleysu. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, var ekkert sér- staklega ánægður í spjalli á X-inu með kjaftagang og samsæriskenningar um hvers vegna Alexander Peterson ætlaði að taka sér frí frá íslenska handknatt- leikslandsliðinu. Skelfilegir gíróseðlar Ég hef fundið fyrir ótta hjá fólki um hvaða reglur muni gilda vegna formannskjörs. Árni Páll Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, hefur fengið óttablandin viðbrögð við áformum Samfylking- arfélags Reykjavíkur að heimila eingöngu þeim sem greitt hafa félagsgjöld sín að taka þótt í formannskjöri flokksins. Inn og út um gluggann Svo fórum við að tala við drenginn út um eldhús- gluggann, buðum honum súpu og hangikjöt. Bóndinn á Ásólfsstöðum, Sigurður Páll Ásólfsson, tók höfðinglega á móti strokufanganum Matthíasi Mána sem bankaði upp á hjá honum árla morguns og tilkynnti um uppgjöf sína. Lömbin þagna Hér er fólk í klæðum framleiddum af barnaþrælum og alls kyns ljótum bolum og skyrtum. Árni Johnsen, sá þjóðlegi þingmaður, brást hinn versti við því að honum og Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráð- herra var gert að afklæðast lopapeysum sínum í þingsal. Ambögumóri Konnekkktikött (Connecticut ,frb konn- ettikött) draugurinn gekk aftur í fréttum Ríkissjónvarps á Þorláksmessukvöld. Og Molaskrifari sem hélt að búið væri að kveða drauginn niður. Þetta er ótrúlega erfitt! Málvöndurinn Eiður Guðnason þreytist ekki á að reyna að kenna fréttafólki Ríkisútvarpsins að bera Connecticut rétt fram en á ekki erindi sem erfiði. Í einangrun Þetta er yndislegt. Ég er að fá að vita að drengurinn minn er heill á húfi, hann er kominn aftur á Litla-Hraun, það er bara alveg nóg fyrir mig, hjartað mitt er aftur komið á sinn stað. Amma strokufangans Matthíasar Mána gladdist mjög þegar barna- barnið skilaði sér undir mannahendur eftir viku útilegu.  Vikan sem Var Ólafur Stefánsson handboltamaður er maður vikunnar að þessu sinni vegna þess að hann hefur ákveðið að verða við beiðni Arons Kristjánssonar landsliðsþjálfara og leika með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer á Spáni í janúar, handboltaáhugafólki til mikillar gleði. Ólafur lék síðast með landsliðinu á Ólympíuleik- unum í London síðasta sumar og tilkynnti að þeim loknum að hann væri hættur að leika með landsliðinu. Hann lék síðast með AG København sem varð gjaldþrota í sumar. Í byrjun desember skrifaði Ólafur síðan undir samning við lið í Katar, Lakhwiya Sports Club, og heldur til höfuðborgar landsins, Doha, í kjölfar heimsmeistaramótsins, þar sem hann hyggst spila í tæpt hálft ár. Ólafur er einn ástsælasti íþróttamaður landsins og hefur fjórum sinnum hlotið titilinn íþróttamaður ársins. MaðuR vikunnaR Leiðir landsliðið á ný wowtravel.is Verð á mann frá: 12.990 kr. á nýju ári Innifalið er flug með sköttum. Bókaðu á wow.is eða í síma 590 3000. Köben Kíktu í kaupstaðinn Verð á mann í tvíbýli, frá: 46.900 kr. Innifalið er flug með sköttum, gisting í 2 nætur með morgunverði á Wakeup Copenhagen. Bókaðu á wowtravel.is eða í síma 590 3000. Borgarferð Alhliða ánægjuför til Köben Flug, gisting, hafmeyja og öl Verð á mann m.v. 2 fullorðna og 1 barn, frá: 89.633 kr. Innifalið er flug og gisting á Hotel Salzburgerhof með hálfu fæði. Afslátturinn gildir á skíðapökkum í janúar 2013. Bókanlegt á wowtravel@wowtravel.is eða í síma 590 3000. Skíðaferð Brunaðu til Austurríkis með alla ölskylduna 50% afsláttur á flugi fyrir börnin Tímabil: 7. jan. – 15. mars 8. – 10. febrúar Gott færi LOFORÐ WOW LÆGSTA VERÐIÐNÝJAR VÉLAROG BREIÐASTA BROSIÐ 8 viðhorf Helgin 28.-30. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.