Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 10
70
kílómetra gekk
strokufanginn
Matthías Máni
Erlingsson frá
sumarbústað í
Árnesi yfir í Þjórsárdal þar sem
hann gaf sig fram.
Jólahald á barnmörgu heimili
Ólesnar jólabækur í hillu
A nnað hvort á ég svona ofboðslega ódæl börn að eðlisfari eða við hjónin erum bara svona lélegir uppalendur. Eða sitt
lítið af hvoru.
Um leið og rútínan á heimilinu fer úr skorð-
um taka börnin völdin. Hin yngstu ástunda
svokallaða vælustjórnun og eru meistarar í
þeirri list.
Í jólafríinu hafa þau fengið að vaka lengur,
horfa meira á sjónvarpið, spila meiri tölvuleiki
og borða meiri sætindi en venju-
lega. Samanlagt er þetta uppskrift
að vandræðum – og við ráðum ekki
neitt við neitt.
Ég gleymi þessu samt alltaf. Að
sjónvarpsgláp, sykurneysla og
óreglulegur svefntími sé eitt það
versta sem ég get gert börnunum
mínum. Að með því að láta þetta eftir
þeim sé ég að skapa þeim vanlíðan
og óöryggi.
Maður þarf nefnilega að vera
vondur til þess að vera góður – eða
þannig. Ég þarf oft að minna mig á
það. Að með því að neita börnunum
um meira sælgæti og slökkva á sjón-
varpinu sé ég í raun að standa mig
sem foreldri. Það er bara svo krefjandi að taka
þennan slag.
Ég passaði mig sérstaklega á því að fær-
ast ekki of mikið í fang þessi jólin. Hætti við
skötuveisluna – því ég treysti mér ekki til að
halda hana – en lagði þess í stað í að hafa gæs-
ir í jólamatinn á aðfangadag en gætti þess að
vera með einfalt meðlæti. Allir hjálpuðust að.
Ekkert stress, bara jólagleði og tilhlökkun
eftir pökkum. Og aðfangadagur var einn sá
besti í sögu fjölskyldunnar fyrir vikið.
Á jóladag fórum við út með góðum vinum í
þriggja tíma leik- og gönguferð um skóginn í
Öskjuhlíðinni (það er hægt að ganga þar um
í þrjá tíma ef maður er fjögurra ára og þarf að
klifra upp á hvern stein). Ég man ekki betur
en að börnin hafi hagað sér vel allan þann
daginn.
Það er nefnilega enginn leikur að vera for-
eldri. Maður gerir ekkert annað á meðan. Ég
er löngu hætt að láta mig dreyma um jólabóka-
lestur og konfektát í rúmi á jóladag. Maður
fær það nefnilega í margfalt í hausinn aftur ef
maður leyfir sér að stelast til að planta börn-
unum fyrir framan sjónvarpið og kaupa sér
þannig stundarfrið.
Glöð börn eru hlýðin börn. Það er mín
reynsla. Og á þessum aldri eru börnin glöðust
þegar þau leika við mömmu og pabba, þegar
þeim er sinnt af athygli – en þá gerir maður
ekkert annað á meðan.
Ég safna bara jólabókum síðustu ára í bóka-
hilluna og veit að það kemur að því einn góðan
veðurdag að ég mun fá tækifæri til þess að
lesa þær.
Ég er löngu hætt að láta mig dreyma um
jólabókalestur og konfektát í rúmi á jóladag.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónArhóll
VikAn í tölum
700
kílómetra hefur Vilborg Gissurardóttir gengið
á Suðurskautslandinu . Hún á eftir að ganga
430 kílómetra til að ná takmarki sínu.
8
sætið fellur Gunnari Nelson í skaut í umfjöllun
bandaríska blaðdins New York Post um
bardagakappa sem gætu náð miklum frama í
blandaðri bardagalist eða MMA árið 2013.
Strokufangi gaf sig fram
Matthías Máni Erlingsson, strokufangi af Litla Hrauni, gaf sig
fram á aðfangadag á bænum Ásólfsstöðum í Þjórsárdal. Hann
var vopnaður en lagði frá sér vopn sín. Hann hefur verið yfir-
heyrður af lögreglu en er annars í einangrun í fangelsinu.
Ekki ný öryggisgirðing
Ný öryggisgirðing verður ekki reist við fangelsið á Litla
Hrauni í nánustu framtíð segir innanríkisráðherra. Hún er of
kostnaðarsöm. Peningum verður þó veitt til að bæta öryggis-
mál í fangelsinu á næsta ári.
Gunnari spáð frama
Bandaríska blaðið New York Post setur Gunnar Nelson í átt-
unda sæti yfir þá bardagakappa sem gætu náð miklum frama
í blandaðri bardagalist eða MMA árið 2013. Blaðið telur ekki
útilokað að Gunnar geti gert atlögu að heimsmeistaratitlinum
í veltivigt á árinu.
Í ESB eða út úr EES
Íslendingar eiga ekki að framselja vald sitt öðrum án þess
að geta sjálfir haft áhrif á gang mála, segir Mörður Árnason
alþingismaður. Þjóðin eigi að segja upp samningnum að
Evrópska efnahagssvæðinu eða ganga í Evrópusambandið.
Skepnur á Snæfellsnesi fengu jólasíld
Mikið tjón varð vegna síldardauða í Kolgrafarfirði en bændur
á Snæfellsnesi hafi nýtt sér þá síld sem safnaðist þar á fjörum.
Skepnur fengu því jólasíld á fengitímanum.
Slitastjórn krefur PWC um 100 milljarða
Slitastjórn Landsbanka Íslands krefur PriceWaterhouse Coo-
pers um tæplega 100 milljarða króna í skaðabætur vegna
tjóns sem hún telur að endurskoðendur bankans hafi valdið
tjóni með athöfnum sínum, athafnaleysi og rangri ráðgjöf fyrir
hrun.
Tveggja vikna frestur til að skila andmælum
Jón Pálmi Pálmason, sem var starfandi bæjarstjóri á Akranesi,
hefur fengið tveggja vikna frest til að skila andmælum.
Honum var vikið úr starfi eftir sex vikna starf en í tilkynningu
bæjarstjórnar kom fram að grunur léki á að hann hefði gerst
brotlegur við starfsskyldur sínar.
Undirbúningur fyrir handaágræðslu
Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi fyrir
14 árum, fer að öllum líkindum til Frakklands í mars til að búa
sig undir langþráða handaágræðslu.
Sigmar B. Hauksson látinn
Sigmar B. Hauksson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi formaður
Skotveiðifélagsins, lést á Landspítalanum á aðfangadag eftir
stutt veikindi og baráttu við krabbamein. Hann var 62 ára.
Sigmar lætur eftir sig tvo uppkomna syni og sex barnabörn.
Tæring í burðarköplum Ölfusárbrúar
Tæring er komin í burðarkapla Ölfusárbrúar og mikilvægt er
að fylgjast betur með ástandi hennar að mati verkfræðinga.
Hún er þó sögð örugg. Brúin á að þola tvöfalt meiri umferð en
nú fer um hana.
r eykvíkingar þurfa að losa sig við núver-
andi borgarstjórnar-
meirihluta. Því þetta
fólk var að enda við
að fremja trúðslegasta
skemmdarverk gegn
miðborg Reykjavíkur
síðan Fjalakötturinn
var rifinn – með því að
samþykkja ósmekk-
leg og galin áform um
að reisa stærsta risa-
sjúkrahús Íslandssög-
unnar á eftirsóttustu og dýrustu lóð
miðborgarinnar – þar sem fólk þráir
að eiga sér heimili.
Fangelsislegt og verksmiðjulegt
ferlíkið á að verða ca. 290.000 fer-
metrar með öllu og ígildi u.þ.b. 75%
af öllu íbúðarrými í 101 Reykjavík!
Ígildi 81 Perlu – 12 Harpa – 25 Orku-
veituhúsa – 67 ráðhúsa – 73 Þjóð-
minjasafna – 149 Þjóðarbókhlaða
– 248 Innanríkisráðuneyta – 5 Flug-
stöðva Leifs Eiríkssonar – 5 Smára-
linda eða 12 herstöðva eins og þeirri
sem var á Keflavíkurflugvelli!
Og í stað þess að finna stóra og
flotta lóð með nóg af plássi þar sem
risasjúkrahúsið getur notið sín full-
komlega – sem er nóg af í Reykjavík
– og nýta byggingarlandið á þessum
eftirsótta, dýra og gullfallega stað
fyrir fullfrískt og lífsglatt fólk – er
ætlun borgarstjórnar-
meirihlutans að fórna
þessum möguleika
miðborgar Reykjavíkur
til að vaxa og þroskast
eðlilega fyrir fangels-
isleg verksmiðjumann-
virki fyrir fársjúka
sjúklinga og endalausa
spítalalyktandi sjúkra-
húsganga. Beint ofan í
miðborginni!
Reykjavík er útbíuð í
ljótum afglöpum. Borg-
in er í aðra röndina eitt
stórt minnismerki um hryllileg og
forljót mistök í byggingarmálum og
skipulagsmálum. Það má sjá rúst-
irnar af slíku hvert sem augað eygir
í Reykjavík. Á undanförnum áratug-
um hefur byggðin auk þess þanist út
um holt og hæðir í útjaðri borgarinn-
ar – með allri þeirri sóun á tíma og
peningum sem af þessu hlýst.
Og á meðan er miðborg Reykja-
víkur ennþá nánast eins og hún var
í upphafi 20. aldar – eins og einhvers
konar grotnandi smáþorp í niður-
níðslu. Vegna þess að hún er svo að-
þrengd að hún getur alls ekki vaxið
og þroskast eðlilega sem miðborg
höfuðborgar Íslands. Verslanir loka,
hús grotna niður og fólk fer upp í
Kringlu og Smáralind.
Og á meðan liggja tveir ómetan-
legir fjársjóðir í miðborginni undir
skemmdum. Annar er þakinn stein-
dauðu flugvallarmalbiki. Og núna
á að sóa hinum fyrir lóð undir risa-
sjúkrahús á stærð við 25 Orkuveitu-
hús með fárveikum sjúklingum!
Þ.e. á meðan miðborg Reykjavíkur
þráir að vaxa og dafna á eigin for-
sendum sem höfuðborg Íslands –
sem staður fyrir frjóa og skemmti-
lega starfsemi þar sem lífsglatt fólk
af öllu landinu þráir að búa – þá er
í vinnslu sú klikkaða hugmynd hjá
harmrænu trúðunum í Ráðhúsinu
að troða þangað á dýrustu fermetra
landsins – stærsta risasjúkrahúsi Ís-
landssögunnar sem mun njóta sín
allra síst einmitt þarna – og getur
verið hvar sem er!
Hvernig dettur trúðunum í hug
að eyðileggja svo dýrmæta lóð í
miðborg Reykjavíkur undir fang-
elsislegar verksmiðjubyggingar sem
anga af sjúkdómum og spítalalykt?
Hve mörgum fjölskyldum mætti
koma fyrir á 290.000 fermetrum?
Hve mörgum verslunum, kaffi-
húsum, galleríum og smáhótelum?
Hve margir Íslendingar skyldu þrá
að búa þarna? Og hvað skyldi rík-
ið fá fyrir lóðina ef hún yrði seld?
Milljarðatugi? Væri e.t.v. hægt að
reisa fjórðung risasjúkrahússins á
réttum stað fyrir andvirðið ef ríkið
seldi þessa rándýru og eftirsóttu lóð
í stað þess að sóa henni undir enda-
lausa illa lyktandi spítalaganga?
Ragnar Halldórsson
ráðgjafi
100
milljarða króna krefur slita
stjórn Landsbanka Íslands
PriceWaterhouse Coopers um
í skaðabætur vegna tjóns sem
hún telur fyrirtækið hafa valdið
Landsbankanum fyrir hrun.
32
mörk skoraði Al-
freð Finnboga-
son í 42 leikjum
fyrir félagslið
sín á árinu. Að
landsleikjum
meðtöldum
skoraði Alfreð
34 mörk í 48
leikjum.
45
milljónir króna hljóðuðu kröfur
í bú Vídeóhallarinnar í Lágmúla
upp á. Engar eignir fengust upp
í kröfuna.
Risasjúkrahús á dýrustu lóð miðborgarinnar
Skemmdarverk gegn miðborginni
K A K A Á R S I N S 2 0 1 2
Kveðjum árið með stæl!
Svakaleg 190 skota terta!
10 fréttir Helgin 28.30. desember 2012 vikunnar