Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 22

Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 22
BREYTT OG BÆTT VÍNBÚÐ EFTIR ÁRAMÓT vinbudin.is VÍNBÚÐINNI OKKAR Í AUSTURSTRÆTI VERÐUR LOKAÐ Í JANÚAR OG FRAM Í FEBRÚAR VEGNA ENDURBÓTA. HLÖKKUM TIL AÐ BJÓÐA YKKUR VELKOMIN Í NÝJA OG BETRI VÍNBÚÐ. Valur Freyr Einarsson og Ilmur Stefánsdóttir Hjónin Valur Freyr Einarsson og Ilmur Stefánsdóttir, mynd- listarkona og leikmyndahönnuður, áttu leiksýningu ársins, Tengdó, á Grímunni í sumar. Valur Freyr fékk að auki leikskáldaverðlaunin en hann samdi verkið um mömmu Ilmar. Þá var hann valinn besti leikari ársins. Damon Younger Damon átti firnasterka innkomu í hlutverki brjálæðingsins Brúnó í Svartur á leik. Myndin var gegnum- sneitt ákaflega vel leikinn en Damon skyggði á alla aðra. Í dómi Frétta- tímans um Svartur á leik var þetta sagt um Damon: „Damon Younger er, að öðrum ólöstuðum, aðalgæi myndarinn- ar. Hann er hreint út sagt frábær Brúnó og skilar svo ógeðslegum sikkópata með slíkum ísköldum glæsibrag að annað eins illmenni hefur ekki sést í íslensku bíói. Frammistaða á heimsmælikvarða!“ Katrín Jónsdóttir Katrín átti stórleik með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu. Fyrirliðinn leiddi lið sitt aftur á stórmót í knatt- spyrnu auk þess sem hún sinnti læknastörfum af sömu elju og metnaði og á knattspyrnuvellinum. Sóley Stefánsdóttir Tónlistarkonan Sóley kom öllum á óvart þegar nýtt myndband hennar við lagið I'll drown af plötunni We Sink, sem kom út í fyrra, sló hressilega í gegn á Youtube. Það lag og reyndar fleiri lög eftir hana hafa náð fleiri milljónum spilana á vefsíðunni. Ingibjörg Reynisdóttir Leikkonan Ingibjörg Reynisdóttir á óvæntustu metsölubók síðustu ára en bók hennar um einbúann Gísla á Uppsölum hitti þjóðarsálina í hjartastað og hefur selst í bílförmum. Hún ýtti við bæði Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur á metsölulistum jólabókaflóðsins. Vilborg Arna Gissurardóttir Útivistarkonan Vilborg Arna eyðir jólunum alein á Suðurheimskautinu en hún gerir ráð fyrir að komast á Suðurpólinn um miðjan janúar en þá hefur hún lagt að baki um 1100 kílómetra. Þetta gerir hún til stuðnings styrktarfélagsins Líf. Gréta Salóme Fiðluleikarinn fingrafimi Gréta Salóme heillaði landann með lagi sínu Never Forget eða Mundu eftir mér í Söngvakeppni Sjónvarpsins og fór síðan með lagið til Bakú í Aserbaídsjan þar sem hún keppti fyrir hönd landsins í Eurovision. Hún hafnaði í 20. sæti og sendi nýverið frá sér sína fyrstu hljómplötu. Elva Dögg Elva Dögg Gunnarsdóttir er með versta tilfelli Tourette-heilkennis sem læknir hennar hefur nokkru sinni séð. Brynja Þorgeirsdóttir kynnti Elvu fyrir þjóðinni með heimildar- mynd sinni Snúið líf Elvu. Elva er með fyndnari uppistandsgrínurum lands- ins og fer á kostum á sviði þar sem hún gerir ekki síst grín að sjálfri sér og sjúkdómi sínum. Jón Margeir Sverrisson Sundkappinn kom, sá og sigraði á Ól- ympíumóti fatlaðra í London. Þessi 19 ára Kópavogsbúi eyðir 25 klukkustundum í sundlaug á viku. Hann er elstur þriggja systkina og býr hjá einstæðum föður sínum. Íslendingar samglöddust honum ákaflega þegar hann vann til gullverðlauna á mótinu. Bjarni Benediktsson Formaður Sjálfstæðisflokksins á ekki sjö dagana sæla með Hönnu Birnu á ljóshraða upp metorðastigann innan flokksins. Bjarni varð að vísu efstur í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi en fékk aðeins 54% stuðning í efsta sætið sem er engum formanni gott veganesti í kosningabaráttu. Þá var DV duglegt við að herða vafningssnöruna um háls Bjarna á árinu sem hann klárar laskaður og á hálum ís. Þóra Arnórsdóttir og Svavar Halldórsson Hjónin Þóra og Svavar fengu sterkan meðbyr þegar Þóra gaf kost á sér til embættis forseta Íslands gegn hinum þaulsætna Ólafi Ragnari Grímssyni. Á tímabili leit úr fyrir að Ólafi Ragnari stæði mikil og raunveruleg ógn af framboði Þóru en eftir því sem leið á baráttuna fjaraði undan framboði hennar á meðan forsetinn sótti hressilega í sig veðrið. Þóra var valin vinsælasti sjónvarps- maður ársins áður og naut mikilla vinsælda sem aðstoðarritstjóri Kastljóss og spyrill í Útsvari. Eftir hrakfarirnar í kosninga- baráttunni hefur lítið sem ekkert sést til sjónvarpsstjörnunnar og skjárinn er fátæklegri fyrir vikið. Eiginmaður hennar átti ekki heldur sjö dagana sæla á árinu. Fortíð hans þvældist fyrir framboðinu en á móti kom sú virðing sem hann naut fyrir að hafa gengið hart fram í fréttaflutningi af bralli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Pálma Haraldssonar. Þar var þó kappið meira en forsjáin og Hæstiréttur dæmdi honum í óhag í meiðyrðamáli sem Jón Ásgeir höfðaði gegn honum. Svavar er kominn aftur í fréttirnar en hefur ekki sýnt sömu tilþrif og fyrir kosningatapið. Björn Valur Gíslason Formaður fjárlaganefndar og innsti koppur í her- búðum Steingríms J. Sigfús- sonar neyddist til þess að tefla djarfan leik í vetur þegar hann flutti sig um set og gaf kost á sér í forvali Vinstri grænna í Reykjavík. Sjóarinn að norðan höfðaði ekki til lattélepjandi lopapeysuliðsins í höfuðborginni sem hafnaði honum. Björn Valur hverfur því af þingi á næsta ári. Lilja Mósesdóttir Lilja var einn grimmasti villikötturinn í flokki Vinstri grænna og endaði með að yfirgefa flokkinn. Hún fór með himinskautum í vinsæld- um eftir brotthlaupið og mældist með um 25% fylgi í fyrstu skoðanakönnun eftir að hún boðaði að hún myndi stofna nýtt stjórnmálaafl. Síðan varð Samstaða til en vinsældir Lilju gufuðu upp, hún hætti við að taka að sér for- mennsku í hinum nýja flokki og yfirgaf hann síðan. Lilja náði hátt á listum yfir fólk ársins fyrstu árin eftir hrun en nú vilja fáir Lilju kveðið hafa. Sigrún Stefánsdóttir Löngum drottnunartíma Sigrúnar Stefáns- dóttur sem dagskrárstjóra Ríkisútvarps- ins lauk skyndilega á árinu eftir að hún lenti upp á kant við blóðheitan útvarpsstjórann, Pál Magnússon. Staða dagskrárstjóra felur óneitanlega í sér völd og áhrif í menningarlífinu en deila um má um hversu vel Sigrún spilaði úr þeim þar sem á meðal rósanna í hnappagati hennar voru mislukkaðir þættir eins og Tríó og Kexvexmiðjan. Stjörnuhröp 2012 STJÖRNUR ÁRSINS 2012 FRAMHALD 22 úttekt Helgin 28.-30. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.