Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 50

Fréttatíminn - 28.12.2012, Qupperneq 50
Ásgeir Trausti stal senunni á frábæru ári Nýliðinn Ásgeir Trausti kom, sá og sigraði á árinu sem er að líða. Hann seldi mest allra af plötu sinni, Dýrð í dauðaþögn, og sló reyndara fólki við sam- kvæmt könnun Fréttatímans. Kynslóðaskipti virðast hafa orðið því plata Sigur Rósar kemst ekki inn á topp tíu. F yrsta plata Ásgeirs Trausta Einarsson-ar, Dýrð í dauða- þögn, er plata ársins á Íslandi árið 2012. Þetta er niðurstaða könnunar Fréttatímans meðal tón- listarsérfræðinga. Óhætt er að segja að þetta hafi verið ár Ásgeirs Trausta. Hann lét fyrst á sér kræla snemma árs í sjónvarpsþættinum Hljóm- skálanum og um mitt ár voru bæði útvarpsmenn og -hlustendur farnir að kveikja á snilldinni. Ás- geir naut liðsinnis Kidda Hjálms við upptökur á plötu sinni og tónlistar- áhugafólk tók fljótt við sér þegar hún kom í verslanir. Áætlað er að Ásgeir selji yfir tuttugu þúsund eintök af plötunni nú fyrir jólin. Sem er hreint ótrúlegt hjá nýliða. Ásgeir Trausti fékk alls 39 stig í kosningunni og sigraði þar með naumlega ungpopparana í Retro Stefson, sem hlutu 38 stig. Skammt undan var hljóm- sveitin Hjaltalín með 35 stig. Nýliðarnir í Tilbury eiga fjórðu bestu plötu árs- ins en skammt undan eru Pétur Ben, Móses Highto- wer og Jónas Sigurðsson. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Um kosninguna: 23 einstaklingar sendu inn topp 5 lista. Efsta sæti gaf fimm stig, annað sæti fjögur stig og svo koll af kolli. Þessir tóku þátt: Anna Hildur Hildibrandsdóttir (Nomex), Arnar Eggert Thoroddsen (Morgunblaðið), Ásgeir Eyþórsson (Rás 2), Benedikt Reynisson (Gogoyoko), Bob Cluness (Reykjavík Grapevine), Dana Hákonardóttir (Iceland Airwaves), Dr. Gunni (Fréttatíminn), Egill Harðarson (Rjóminn), Freyr Bjarnason (Fréttablaðið), Frosti Logason (X-ið 977), Grímur Atlason (Iceland Airwaves), Halldór Ingi Andrésson (Plötudómar.com), Haukur S. Magnússon (Reykjavík Grapevine), Höskuldur Daði Magnússon (Fréttatíminn), Ingveldur Geirsdóttir (Morgunblaðið), Kamilla Ingibergsdóttir (Iceland Airwaves), Kjartan Guðmunds- son (Fréttablaðið), Matthías Már Magnússon (Rás 2), Jóhann Ágúst Jóhannsson (Kraumur), Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2), Tómas Young (Útón), Trausti Júlíusson (Fréttablaðið), Þór Tjörvi Þórsson (Kvikmyndamiðstöð Íslands). 17-21. Nóra – Himinbrim Biggi Hilmars – All We Can Be Vintage Caravan – Voyage Kristjana Stefánsdóttir – Bezt Dream Central Station – Dream Central Station 4 stig Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 39 stig 2 Retro Stefson – Retro Stefson 38 stig 3 Hjaltalín – Enter 4 35 stig 4 Tilbury – Tilbury 28 stig 5 Pétur Ben – God’s Lonely Man 27 stig 6 Móses Hightower – Önnur Mósebók 25 stig 7 Jónas Sigurðsson – Þar sem himin ber við haf 22 stig 8 Valdimar – Um stund 19 stig 9 Ghostigital – Division of Culture and Tourism 18 stig 10 Ojba Rasta – Ojba Rasta 10 stig 11-14. Borko – Born To Be Free Legend – Fearless Pascal Pinon – Twosomeness Skálmöld – Börn Loka 7 stig 15-16. Muck – Slaves Sigur Rós – Valtari 6 stig 1 MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS  MIÐASALA: 412 7711 KOMDU Í KLÚBBINN! bioparadis.is/klubburinn SKÓLANEMAR: 25% afsláttur gegn framvísun skírteinis! NÝTT Í BÍÓ PARADÍS Sjá sýningartíma á BIOPARADIS.IS og MIDI.IS SVARTIR SUNNUDAGAR: Kl. 20 sunnudag. Aðeins þessi eina sýning. CHAPLIN: THE KID ÞRJÚBÍÓ SUNNUDAG | 950 KR. INN 50 úttekt Helgin 28.-30. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.