Fréttatíminn - 28.12.2012, Síða 54
Tónleikar í Vodafonehöllinni hlíðarenda
Retro Stefson og Hermigervill í eina sæng
„Þetta verður algjör snilld,“ segir Logi Pedro
Stefánsson, meðlimur hljómsveitarinnar
Retro Stefson. Hljómsveitin spilar ásamt
Hermigervli á tónleikunum Síðasti sjens í
Vodafonehöllinni við Hlíðarenda, sunnudag-
inn 30. desember. Yfirlýst markmið kvölds-
ins hjá tónlistarfólkinu er að ekki verði
þurr þráður á kroppi gesta sökum stuðs og
fjörs. Nýverið gekk Hermigervill til liðs við
Retro Stefson og mun hann því bæði koma
til með að hita upp fyrir bandið og spila með
þeim tónleikana. Hann er að sögn Loga
kærkomin viðbót við sveitina sem er nú ein
sú vinsælasta á landinu og var til að mynda
tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í
ár. Lögin Glow og Qween eru jafnframt þau
vinsælustu á árinu 2012. Auk velgengninnar
hér heima hafa þau verið að gera það gott er-
lendis og eru meðlimir að undirbúa tónleika-
ferðalag á nýju ári. Þar mun Hermigervill
vera með í för. Hermigervill hefur notið
vinsælda með frumlegum endurgerðum
sínum á gömlum íslenskum dægurperlum
sem hann glæðir nútímalegu lífi og er hann,
að sögn Loga Pedro, kærkomin viðbót við
bandið. Logi lofar mikli fjöri og bendir fólki
á að tónleikarnir séu fyrir alla aldurshópa.
„Séu börnin vakandi á þessum tíma þá er
ekkert því til fyrirstöðu að taka þau bara
með að dansa.“
Logi Pedro,
meðlimur
Retro Stefson
lofar miklu
fjöri og ítrekar
að skemmt-
unin sem hefst
klukkan 21, sé
fjölskylduvæn.
Ársuppgjör uppisTandshópurinn Mið-ísland
Við erum kreppubörn
Það eru öll ár jafn fyndin að mati meðlima Mið-Íslands. Við fengum þau til liðs við okkur til að
taka saman lista yfir fyndnustu atburði ársins. Einn úr hópnum, Dóri DNA, segir að það sé alltaf
stutt í grínið. Það sé yfirleitt nóg að lesa raunverulegar fréttir af netmiðlunum til að komast í
gott grín.
u ppistandshópurinn Mið-Ísland kveður gamla árið með uppistandi á Stóra sviði Þjóðleik-hússins. Fram koma þau Ari Eldjárn, Bergur
Ebbi, Björn Bragi, Jóhann Alfreð, Dóri DNA og Anna
Svava Knútsdóttir. Halldór Halldórsson, Dóri DNA
segir spennu vera í hópnum fyrir kvöldinu. „Það er
nánast uppselt klukkan átta á laugardaginn en það eru
einhver sæti laus á seinni sýninguna klukkan 23. Við
vorum bæði í Þjóðleikhúskjallaranum og á Stóra sviðinu
í Þjóðleikhúsinu í vor og haust. Í kvöld verður einmitt
sýnd á Stöð 2 upptaka frá uppistandinu okkar á Stóra
sviðinu frá því í vor. Það er mjög glæsilegt, tekið upp
með 10 myndavélum og ég leyfi mér að fullyrða að
uppistandi, allavega tæknilega séð, hefur ekki verið
gerð betri skil í sjónvarpi á Íslandi.“
Þegar Dóri er spurður út í listann og árið sem
er að líða segir hann að öll ár séu fyndin. Það sé
í rauninni alveg nóg að kíkja á netmiðlana til að
komast í skemmtiefni. Það hafi því verið auðvelt
að setja saman svona lista. „Þetta snýst
eiginlega um að taka sig ekki of alvar-
lega. Það eru held ég öll ár jafn fyndin.
Maður verður eiginlega að geta brosað
að öllu, alltaf. Við í Mið-Íslandi erum í
rauninni kreppubörn. Við erum því þakk-
lát bankahruninu fyrir að gefa okkur þetta
brautargengi. Fólk var orðið svo leitt og pirrað
og vildi bara sjá eitthvað grín. Við dettum því
mögulega úr tísku í næstu uppsveiflu.“
Leit in translation
Björgunarsveitarmenn eru
kvaddir út í tugatali til að hefja
leit af konu sem skilaði sér ekki
úr leiðsöguferð á hálendinu. Leit-
in er blásin af eftir hálfan sólar-
hring. Konan var allan tímann á
sínum stað. Hún hafði einungis
skipt um föt og meðal annars
tekið þátt í leitinni af sjálfri sér.
Ógeðslega mikið af ógeðs-
lega frægu fólki
Á einum tímapunkti voru fleiri
frægir Bandaríkjamenn á lands-
byggðinni, heldur en íbúar á
landsbyggðinni.
Tong Monitor
Ógeðslega fyndið stöff – hí á þá
sem eru öðruvísi.
Sumarbústaðaeigandinn með
hljóðdeyfinn
Það er brotist inn í sumar-
bústaðinn hans, maturinn hans
étinn, vopnunum hans stolið
og svo gefur strokufanginn sig
fram með eina ólöglega vopnið
í safninu og okkar maður lendir
í vanda hjá löggunni. Hversu
óheppinn getur einn maður
verið?
Kim Jong Un
Hinn nýi einræðisherra Norður-
Kóreu lét á árinu skjóta á loft
gervihnetti sem er jafnstór og
þvottavél og snýst nú stjórnlaus á
sporbaug um jörðu. Fyrr á árinu
lét hann sprengja ráðherra úr
ríkisstjórn sinni með sprengju-
vörpu. Allt sem þessi maður
gerir er ótrúlega mögnuð blanda
af því að vera skrýtið og hræði-
legt. Frumlegasti rithöfundur
gæti ekki samið svona efni.
Salan á Perlunni
Eitt opinbert apparat kaupir Perl-
una af öðru opinberu apparati.
Skattgreiðendur halda áfram að
niðurgreiða þúsundir fermetra
fyrir geisladiskamarkað og ísbúð.
Kamelsvínljón
Sjálfstæðismenn flykkjast á
kjörstað til að tryggja forseta-
endurkjör fyrrverandi formanns
Alþýðubandalagsins. SUS-arar
krossa fingur á kosningavöku í
Valhöll. Ætlunarverkið tekst.
Snyrtileg afgreiðsla
Garðabær kaupir Álftanes með
öllum sínum skuldum og öldu-
laugum. Snyrtilegri yfirtaka
hefur ekki sést síðan Helmut
Kohl keypti Austur-Þýskaland
af Sovétmönnum árið 1989.
Ég er farinn
Stjórnmálaaflið Samstaða
stofnað til að binda enda á
sundrungu, pirring og fúl-
mennsku í íslenskri pólitík.
Varaformaðurinn byrjar feril
sinn með því að fara í fýlu og
ganga úr flokknum.
Hemmi er með þetta
Metnaður RÚV er dregin í
efa þegar Dans, dans, dans er
blásinn af en ákveðið að endur-
sýna brot úr gömlum þáttum
Hemma Gunn á kjörtíma með
viðtölum við Hermann. Spekúl-
antarnir brosa út í annað en
sá hlær best sem síðast hlær.
Hemmi slær í takt við þjóðar-
sálina og uppsker 40% áhorf
viku eftir viku. Öll þjóðin hlær
með Hemma rétt eins og fyrir
20 árum.
Topp 10 listi Mið-Íslands árið 2012
Þingmaður í meðferð
Það stefnir í líflegt bíóár 2013
þegar íslenskar kvikmyndir eru annars
vegar og mannskapurinn í bransanum
virðist heldur betur vera að ná vopnum
sínum eftir ágjöfina sem fylgdi í kjölfar
bankahrunsins. Fyrsta íslenska mynd
ársins, XL í leikstjórn Marteins Thors-
sonar, verður frumsýnd í janúar og síðan
má reikna með íslenskum myndum með
reglulegu millibili fram eftir ári. Í XL
leikur sá magnaði leikari Ólafur Darri
Ólafsson þingmanninn og fyllibyttuna
Leif Sigurðarson sem forsætisráðherra,
leikinn af Þorsteini Bachmann, skikkar til
þess að fara í vímuefnameðferð. Áður en
Leifur tekur skellinn heldur hann nokkrum
vinum sínum matarboð. Í boðinu kynnast
áhorfendur Leifi og gestum hans betur
og þá ekki síst sambandi hans við hina
tvítugu Æsu, vinkonu dóttur hans. María
Birta Bjarnadóttir leikur Æsu en hún hefur
á síðustu árum gert það gott í myndunum
Óróa og Svartur á leik.
Sprengisandur og Foss
Sá vaski útvarps- og blaðamaður
Sigurjón M. Egilsson hefur víða komið
við á löngum ferli en auk þess að sinna
eigin útgáfu stjórnar hann þjóðmála-
þættinum Sprengisandi á Bylgjunni.
Sigurjón var ritstjóri Mannlífs árið
2008 á meðan það var enn frétta-
tímarit og á Facebook-síðu sinni viðrar
Sigurjón draum sinn um öflugt frétta-
tímarit með lengri greinum. „Losna
ekki við áhugann á fréttatímariti. Vil
samt ekki vera ritstjóri.“ Náttúran er
greinilega Sigurjóni hugleikin þegar
kemur að nafnavali fjölmiðla þar sem
hann sér fyrir sér að fréttatímaritið
gæti heitað Foss. Rekstrargrundvöllur
slíks blaðs þykir þó ekki traustur og
Ragnar Tómasson lögmaður, sem
aðstoðaði Gunnar Smára, bróður
Sigurjóns, á sínum tíma við að kaupa
Fréttablaðið, sendir Sigurjóni einföld
en skörp skilaboð á Facebook: „SME:
Gleymdu því!“
Sprell og spádómar á Austur
Stuðboltinn Ásgeir Kolbeinsson,
vert á Austur, hefur undanfarin
tvö ár slegið upp heilmikilli gleði á
nýársdag og heldur því striki með
fjórrétta kvöldverði og miklu stuði
í kjölfarið. Logi Bergmann sér um
veislustjórn á Austur þetta fyrsta
kvöld ársins 2013 en DJ Margeir tekur
á móti gestum með tónlist. Þá taka þeir
Unnsteinn Manuel úr Retro Stefson
og Daníel Ágúst lagið auk þess
sem töframaðurinn Einar
Mikael mun skemmta
gestum. Spákonan
litskrúðuga, Sigríður
Klingenberg, verður
einnig á staðnum
og spáir fyrir þeim
sem vilja síður ana
út í óvissuna á
nýju ári.
María Lilja
Þrastardóttir
marialilja@
frettatiminn.is
54 dægurmál Helgin 28.-30. desember 2012