Fréttatíminn - 28.03.2013, Side 2
Konur með hærri laun
en karlarnir
Heildarlaun kvenna hjá tryggingafélaginu
Verði eru hærri en heildarlaun karla.
Þetta er niðurstaða jafnlaunaúttektar
sem framkvæmd var hjá fyrirtækinu
nýlega og greint er frá í ársskýrslu Varðar.
Í jafnlaunaúttektinni sem gerð var fyrir
Vörð kemur fram að heildarlaun kvenna
hjá félaginu voru 2 prósent hærri en
heildarlaun karla þegar búið var að taka
tillit til áhrifa vegna aldurs, starfsaldurs,
menntunar, starfshóps, stöðu í skipuriti og
vinnustunda.
Í ársskýrslu Varðar kemur jafnframt fram
að félagið var rekið með 513 milljóna króna
hagnaði. Árið áður var hagnaður þess 330
milljónir.
Tvær nýjar konur í
héraðsdóm
Kristrún Kristinsdóttir, lögfræðingur við
embætti landlæknis, og Barbara Björns
dóttir, settur héraðsdómari, hafa verið
skipaðar í embætti héraðsdómara með
fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Niðurstaða dómnefndar um hæfni um
sækjenda var sú að Kristrún Kristinsdóttir
væri hæfust umsækjenda til að hljóta
skipun og að Barbara Björnsdóttir, settur
héraðsdómari, og Þórður Cl. Þórðarson,
hæstaréttarlögmaður og bæjarlögmaður
Kópavogs, væru að Kristrúnu frátalinni
hæfust til að gegna embætti og var ekki
gert upp á milli hæfni þeirra tveggja til
þess. Niðurstaða innanríkisráðherra var
sú að skipa Kristrúnu Kristinsdóttur og
Barböru Björnsdóttur í embættin.
Fóru í einkapóst starfs
manns og greiða bætur
Héraðsdómur hefur dæmt Advania til að
greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 300
þúsund krónur í miskabætur og 1,2 milljón
í málskostnað fyrir að hafa farið inn í
einkapósthólf mannsins og tekið þar pósta
sem prentaðir voru út og sýndir viðskipta
vini fyrirtækisins.
Maðurinn var einn helsti sérfræðingur
Advania í Microsoft hugbúnaði og ætlaði
ásamt fleiri starfsmönnum að stofna
nýtt fyrirtæki sem veita mundi Advania
samkeppni. Advania taldi að hann vera að
reyna að hafa af sér viðskiptavini og sanka
að sér leyndarmálum fyrirtækisins.
Júlíus Þorbergsson hefur fest kaup á James Bönd í Skipholti ásamt syni sínum. Ljósmynd/Hari
Verslun Júlíus Þorbergsson ekki af baki dottinn enn
d jöfullinn maður. Maður má ekki gera neitt. Það bara fréttist allt. Hvað viltu vita næst, í hvernig buxum ég er?“
segir Júlíus Þorbergsson, gjarnan kenndur
við söluturninn Drauminn á Rauðarárstíg.
Júlíus, eða Júlli eins og hann er jafnan
kallaður, hefur fest kaup á söluturninum og
myndbandaleigunni James Bönd í Skipholti
ásamt syni sínum. „Við tókum þetta strax og
þeir stálu hinu. Ég er nú bara að hlaupa undir
bagga með stráknum mínum hérna. Það
kemur þó fyrir að maður slær puttun-
um þarna inn,“ segir Júlli.
Í lok janúar var Júlli borinn út úr
verslunarhúsnæði sínu við Rauðarár-
stíg og íbúð í sama húsi. Eignirnar
voru seldar á nauðungaruppboði
síðasta haust en þær höfðu verið
settar að veði fyrir láni sem sonur
Júlíusar tók og fór í vanskil.
„Þeir stálu af mér fyrirtæk-
inu. Þar fóru hundrað milljónir
út um gluggann. En þeir munu
kannski skila því aftur. Ég veit
það ekki, ég skipti mér ekkert
af þessu. Læt bara lögfræðinga
um þetta,“ segir Júlli sem rak
Drauminn í næstum 25 ár á
Rauðarárstíg.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Júlli í Draumnum
kaupir James Bönd
Kaupmaðurinn Júlíus Þorbergsson rak söluturninn Drauminn við Rauðarárstíg í aldarfjórðung.
Draumnum var lokað í janúar en Júlíus er ekki af baki dottinn og hefur fest kaup á vinsælum
söluturni og myndbandaleigu í Skipholti.
Þeir stálu
af mér
fyrir-
tækinu.
Þar fóru
hundrað
milljónir
út um
gluggann.
Júlíus Þor-
bergsson rak
Drauminn á
Rauðarárstíg í
tæp 25 ár.
Samkynhneigð pör aldrei ættleitt hér
Halli rakari leggur skærinn á Hilluna
Hefur klippt sinn síðasta haus
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar kom saman á Hársnyrti-
stofunni Halla Rakara við Strandgötu á miðvikudag
af því tilefni að Halli rakari klippti sinn síðasta haus
en hann er að hætta störfum eftir 51 ár. Það var við-
eigandi að bæjarpólitíkusarnir kveddu Halla með
virktum þar sem sagan segir að allir sem telji sig
hafa eitthvað um stjórnmálin í Hafnarfirði að segja
hafi komið reglulega við hjá Halla.
„Jájá, ég er búinn að vera 51 ár í þessu starfi og
ætla að leggja skærin á hilluna,“ segir Halli sem
kveður starfið sáttur. „Ég er á 69 ári þannig að ég
get nú alveg hætt sáttur.“
Halli starfaði á árum áður hjá Bartskeranum í
Reykjavík en frá árinu 1980 hefur hann rekið eigin
stofu undir merkjum Halla Rakara og sett sinn
svip á bæjarbraginn. Og hann á að sjálfsögðu fjölda
fastra viðskiptavina og eitthvað hefur verið um
harmakvein í firðinum við þessa ákvörðun hans.
Hann er þó sem betur fer ekki síðasti móhíkaninn
í þessu starfi í Hafnarfirði og hann hefur engar
áhyggjur af því að viðskiptavinir hans endi á ver-
gangi með úfinn kollinn.
„Tveir ungir menn sem hafa unnið hérna með mér
færa sig niður í Fjörð,“ segir Halli þannig að hans
fólk ætti að vera hólpið í verslunarmiðstöðinni. „Ég
er svo bara að fara að sinna breytingum á húsnæði
sem ég á hérna,“ segir Halli sem tekur upp hamar-
inn í stað greiðunnar.
Halli kvaddi með stæl á miðvikudag og bauð upp á
lifandi tónlist og snafs á stofunni síðasta daginn. -þþ
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, birti á facebook þessa mynd af
síðustu klippingu Halla.
Ekkert par af sama kyni hefur ætt
leitt barn á Íslandi frá því að lögum
um ættleiðingar var breytt og sam
kynhneigðum heimilað að ættleiða.
Þetta kom fram í svari Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra
við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur á Alþingi í gær.
Svipaða sögu er að segja
þegar kemur að öðrum norrænum
ríkjum. Samkvæmt upplýsingum
sem ráðuneytið hefur aflað frá
Danmörku, Noregi og Svíþjóð hefur
ekkert samkynhneigt par, búsett í
þessum ríkjum, ættleitt erlent barn
saman frá því samkynhneigðum
pörum var veitt heimild til frum
ættleiðingar. sda
2 fréttir Helgin 28. mars–1. apríl 2013