Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Síða 12

Fréttatíminn - 28.03.2013, Síða 12
Mig þyrstir einfaldlega eftir réttlæt- inu og þeirri hreinsun sem sann- leikurinn er fær um að gefa okkur öllum Þín ánægja er okkar markmið Nýjar áskriftarleiðir í farsíma hjá Vodafone KLÁRAST HRINGIR ÞÚ FYRIR 0 KR. INNAN FJÖLSKYLDU ÖRYGGISNET FJÖLSKYLDUNNAR INNIFALDAR MÍNÚTUR GILDA LÍKA Í HEIMASÍMA OG TIL ÚTLANDA H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Innifaldar mínútur gilda til 27 landa víðsvegar um heiminn. Sjá nánar á vodafone.is.Foreldrar og börn innan 18 ára með sama lögheimili, í allt að 500 mínútur. Gildir ekki um SMS.Umframnotkun: 18,9 kr./mín, 9,9 kr. upphafsgjald, 13,9 kr./SMS, 190 kr. fyrir 100 MB. vodafone.is F jölskylda Sævars var viðstödd þeg- ar rannsóknarnefndin kynnti niður- stöðu sína. „Ég upplifði blendnar tilfinningar, segir Sóley Brynja Jensen, fyrrum sambýliskona Sæv- ars og barnsmóðir. „Þegar ég hélt á skýrslunni fannst mér þarna vera komin staðfest- ing á því sem ég hafði alltaf vitað. En þetta kom allt of seint. Ég tel að ef málin hefðu verið tekin upp þegar við Sævar bjuggum saman þá væri hann á lífi og fjölskyldan ekki sundruð. Ég tel að þetta mál hafi verið hans banamein,“ segir Sóley. Fjórtán ára sonur þeirra, Victor Blær, tekur und- ir. „Ég var svolítið sorgmæddur yfir því að hann gæti ekki verið með okkur og fagnað sigrinum. En mér var létt,“ segir hann. Sóley kynntist Sævari árið 1996, þegar honum hafði þegar verið synjað einu sinni um endurupp- töku. Saman eiga þau tvö börn, Victor Blæ og Lilju Rún, þrettán ára. Þau voru skráð Sævars- börn en eru nú Jensen. Sóley segir að fólk hafi oft farið að horfa á hana og börnin í nýju og dimm- ara ljósi þegar það vissi að þau væru börn Sævars Ciesielski. „Börnin mín voru í grunnskóla í Grafarvogi og einn gangavörðurinn hafði mikla fordóma í þeirra garð. Hann sagði það aldrei beint en ég veit að það var út af því hver pabbi þeirra er.“ Neitað um íbúð Þetta var síður en svo í fyrsta sinn sem Sóley fann fyrir fordómum í garð fjölskyldu sinnar. Hún minnist þess þegar hún hafði tekið á leigu íbúð fyrir þau Sævar. „Þetta var skömmu eftir að við byrjuðum saman. Ég fór ein í viðtal til að fá íbúð og fólkinu leist mjög vel á mig. Við spjölluð- um aðeins saman, það kom til tals að ég væri frá Sauðárkróki og þau sögðust þá þekkja fólk þaðan. Eftir viðtalið var ég himinlifandi. En það breyttist næsta dag þegar eigendur íbúðarinnar hringdu, sögðust hafa frétt hver væri sambýlismaður minn og að þau væru hætt við að leigja okkur.“ Hún segist hafa fundið vel fyrir því að fólk hafi fyrirfram mótaðar hugmyndir um hana þegar það vissi hver barnsfaðir hennar var. Það var kornið sem fyllti mælinn þegar börnin þeirra urðu fyrir aðkasti í skólanum. „Þetta gekk svo langt að gangavörðurinn lagði hendur á son minn. Ég fékk áverkavottorð og tilkynnti málið til yfirvalda. Ég fékk bara nóg, flutti úr Grafarvogin- um í Vesturbæinn og börnin tóku upp ættarnafn- ið mitt. Ég vildi reyna að koma í veg fyrir að fólk dæmdi okkur,“ segir Sóley. Myndi vilja bera nafnið Ciesielski Victor segist vita að þau systkinin hafi tekið upp ættnafn móður þeirra vegna fordóma. „Mér fannst leiðinlegt að við þurftum að gera þetta, ég vil alveg að allir viti að hann er pabbi minn. Ég er mjög stoltur af því að vera sonur hans og ég myndi vilja bera nafnið Ciesielski,“ segir hann. Móðir hans segir að Ciesielski sé stórt nafn að bera og þrátt fyrir niðurstöðu skýrslunnar hafi mannorð Sævars enn ekki verið hreinsað. Sóley segir fjölskyldu sína hafa kynnst Sævari vel og heiðarleiki hafi verið hans aðalsmerki. „Hann var kurteis og kom vel fyrir. Hann hafði líka kómíska sýn á sjálfan sig,“ segir Sóley. Bara venjuleg fjölskylda Hafþór Sævarsson er sonur þeirra Sævars Cie- sielski og Þórdísar Hauksdóttur. Hafþór hefur aldrei fundið fyrir tortryggni eða andúð vegna Líf í skugga fordóma Tímamót urðu í íslenskri réttarsögu þegar starfshópur innanríkisráðuneytisins um Guð- mundar- og Geirfinnsmálið skilaði skýrslu sinni í vikunni. Niðurstaðan var skýr. Hafið er yfir allan skynsamlegan vafa að játningar sakborninga voru óáreiðanlegar. Eftir að Sævar Cie- sielski losnaðI úr fangelsi, dæmdur morðingi, tileinkaði hann líf sitt því að hreinsa nafn sitt. Ein barnsmóðir Sævars segir að ranglætið og endurtekin höfnun hafa verið hans banamein. Framhald á næstu opnu Þórdís Hauksdóttir, önnur frá vinstri á myndinni, á synina Hafþór og Sigurþór með Sævari. Sóley Brynja Jensen er móðir þeirra Victors Blæs og Lilju Rúnar. Þeim þykir öllum leitt að Sævar var ekki á lífi til að fagna sigrinum. Ljósmynd/Hari 12 viðtal Helgin 28. mars–1. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.