Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Page 18

Fréttatíminn - 28.03.2013, Page 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. L Lengi hefur verið gælt við það að flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri. Í seinni tíð hefur helst verið litið til Hólmsheiðar sem framtíðarflugvallarstæðis höfuð- borgarinnar. Sú hugmynd var skotin í kaf í liðinni viku þegar birt var skýrsla þar sem Veðurstofan reiknaði út nothæfisstuðul fyrir flugvöll á heiðinni, að ósk Isavia. Niðurstöður Veðurstofunnar eru þær að nothæfisstuðull flugvallar á Hólmsheiði sé einungis 92,8 prósent. Flugvöllur á heiðinni yrði ónothæfur í rúmlega 28 daga á ári að jafnaði vegna veðurs í stað 1-2 daga á Reykjavíkur- flugvelli. Það jafnast á við að allt innanlandsflug lægi niðri í nærri heilan mánuð sem myndi bætast við þá daga sem ófært er fyrir flug á hverjum einstökum lendingar- stað á landsbyggðinni. „Eng- inn hannar miðstöð áætlunar- flugs með svo lágan nothæfisstuðul,“ segir í samantektinni. Þar er auk þess bent á það að Alþjóðaflugmálastofnunin geri kröfu um að nothæfisstuðull sé að minnsta kosti 95 prósent vegna hönnunar á áætlunarflug- völlum. Fleiri dæmi eru rakin sem sýna fram á að óráð eitt er að gera ráð fyrir því að flug- völlur rísi á Hólmsheiði. Hólmsheiði liggur í 135 metra hæð yfir sjávarmáli en Reykja- víkurflugvöllur í 14 metra hæð. Flugvöllur á Hólmsheiði yrði hæsti áætlunarflugvöllur landsins. Meðahliti á heiðinni er lægri, rakastig hærra, skyggni lélegra og úrkoma meiri. Hvassara er á Hólmsheiðinni sem þýðir að hliðarvindur er þar hvassari og vindhviður tíðari en á Reykjavíkurflugvelli. Áætlunarflug með farþega fer að jafn- aði fram samkvæmt blindflugsaðferðum. Hólmsheiði er mun nær fjöllum en Reykja- víkurflugvöllur. Það gerir blindflug úr norðurátt ómögulegt vegna nálægðar við Esju. Norður-suðurbraut yrði því eingöngu sjónflugsbraut úr þeirri átt. Á Reykjavíkur- flugvelli er blindaðflug úr öllum áttum. Ná- lægð fjalla og fella í kring um Hólmsheiði eykur verulega líkur á ókyrrð í aðflugi og brottflugi. Þá er á það bent að fylgni veður- skilyrða á Hólmsheiði og Keflavíkurflug- velli er það mikil í suðaustanáttum að flug- völlur á Hólmsheiði myndi vart geta þjónað sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug með sama árangri og Reykjavíkurflugvöllur. Þessi niðurstaða þýðir það einfaldlega að hugmyndir um flugvöll á Hólmsheiði eru úr sögunni. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands, talar væntanlega fyrir hönd flugrekenda og um leið með öryggi flugfarþega og nýtingarmöguleika flugvallarins í huga þegar hann segir það galna hugmynd að eyða fjármunum í flug- völl sem væri lokaður svona lengi. Fram- kvæmdastjórinn benti á að ýmsar hug- myndir hefðu verið skoðaðar fyrir nýjan innanlandsflugvöll á höfuðborgarsvæðinu en menn samt alltaf komist að þeirri niður- stöðu að Vatnsmýrin væri besti kosturinn fyrir slíkan rekstur. Árni sagði jafnframt að allur hringlandaháttur með flugvöllinn væri bagalegur og hefði hamlað uppbyggingu á svæðinu. Það er rétt hjá honum. Vegna óvissu um framtíð Reykjavíkurflugvallar hefur nauðsynleg uppbygging dregist þótt flug- brautir hafi að vísu verið endurgerðar fyrir nokkrum árum. Enn hírast starfsmenn og farþegar í aflóga herbröggum sem bera nafnið flugstöð. Það hrófatildur stendur engan veginn undir nafni. Borgaryfirvöld hafa leitað leiða til að losna við flugvöll- inn úr Vatnsmýrinni vegna þess lands sem undir hann fer. Ríkið hefur staðið gegn flutningi hans og landsbyggðin kallar eftir því að flugvöllurinn verði áfram í Vatns- mýrinni. Þannig sé þjónustu- og öryggis- hlutverki flugvallar í höfuðborginni best sinnt. Sækja þarf margs konar þjónustu til Reykjavíkur utan af landi en öryggismál hljóta að vera í forgangi. Örstutt er frá flug- vellinum á Landspítalann, tæknisjúkrahús allra landsmanna. Því mega borgaryfirvöld í Reykjavík ekki gleyma og því ekki heldur að Reykjavík er höfuðborg allra íbúa lands- ins. Reykjavíkurborg keypti nýverið land ríkisins í Skerjafirði. Þar er ætlunin að 800 íbúðir rísi. Áður en ráðist verður í þær fram- kvæmdir verður að finna varanlega lausn fyrir innanlandsflug til og frá Reykjavík. Enn hefur ekki verið bent á betri kost til þeirrar starfsemi en að hafa flugvöllinn áfram þar sem hann er. Hólmsheiðin keppir að minnsta kosti ekki við Vatnsmýrina. Innanlandsflug til og frá höfuðborginni Hugmynd um heiðarflugvöll skotin niður Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Vill hann taka við okkur? Hann vissi náttúrlega allt um Ísland, og hrósaði okkur fyrir frammistöðuna í efnahagsmálum. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hafði gaman að því að hitta Harald Noregskonung. Loksins, loksins! Ég hef verið í miklum erfiðleikum að finna þá rödd innan stjórnmálanna sem ég get verið samþykk og sýnt stuðning. Vala Matt hefur tekið sæti á lista Lýðræðisvaktarinnar í Reykjavík. Ha, tímaskekkja í Mogganum? Fyrir mér var þetta eins og að lesa 30 ára gamlan leiðara sem ætti ekki heima árið 2013. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, um að vera sögð gluggaskraut í leiðara Morgunblaðsins. Kafka hvað? Starfsmenn þessa sérstaka embættis líta á það sem markmið að finna glæp- inn og skal öllum úrræðum beitt. Sigurður Einarsson, fyrrverandi Kaup- þingsstjóri,er orðinn langþreyttur á brölti sérstaks saksóknara í Al-Thani-málinu svokallaða. Bara á Íslandi Þetta mál er einsdæmi á heimsvísu miðað við önnur mál sem ég hef unnið með. Gísli H. Guðjónsson, prófessor í réttarsál- fræði, um illa meðferð á grunuðum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Og fara úr stuttbuxunum Það er alveg ljóst að sjálfstæðismenn verða að bretta upp ermar. Kristján Þór Júlíusson, annar varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, hefur áhyggjur af stöðu flokksins í skoðana- könnunum. Botninn í boltanum Þetta er líka svo óeðlilegt. Allir saman allsberir í sturtu að rassskella ein- hvern, þetta er alveg súrt. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og fyrrverandi handknattleikskona, um hefð fyrir húðstrýkingum nýliða í meistara- flokkum í handknattleik. Rólegt á Hekluvígstöðvunum Það er enginn hlaupandi um gangana eða neitt. Menn vinna bara sína venjulegu vinnu. Hekla rumskaði en Magnús Tumi Guð- mundsson, prófessor í jarðeðlisfræði hjá Jarðvísindastofnun Íslands, hélt ró sinni. En lóan er komin Þetta er bara botnfrosin staða, íslensk stjórnmál eru bara í þessari botn- frosnu stöðu og það er erfitt að komast út úr henni. Árni Páll Árnason, for- maður Samfylkingar, er í pólitískum klakaböndum. Síðbúið réttlæti En ég gaf mér ekkert fyrirfram. Ég vonaðist eftir svona niðurstöðu. Þetta er mjög gleðileg niðurstaða fyrir sakir réttlætisins. Erla Bolladóttir um niðustöðu rann- sóknarnefndar sem kannaði rannsókn Geirfinnsmálsins.  Vikan sem Var Laugavegi 25 - S: 553-3003 H ö n n u n a r h ú s www.hrim.is Opið um páskana Skírdag 13:00-17:00 Laugardag 11:00-17:00 Annar í páskum 13:00-16:00 Flott hönnun er góð gjöf Viðhald húsa Fréttatíminn gefur út blað um viðhald húsa í samvinnu við Húseigendafélagið 12 apríl. Þetta er einstakt tækifæri fyrir ykkur að ná til þeirra sem hyggja á endurbætur, með auglýsingu eða kynningu á starfsemi ykkar í vönduðu blaði sem unnið er af fagmönnum. Hafið samband við Baldvin Jónsson í síma 531 3311 eða sendið honum póst á netfangið baldvin@frettatiminn.is og fáið nánari upplýsingar. 12. Apríl Guðrún Dadda Ásmundardóttir 1. sæti Norðvesturkjördæmi Saman getum við tryggt arð af auðlindum og haldið þeim í þjóðareigu 18 viðhorf Helgin 28. mars–1. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.