Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Page 19

Fréttatíminn - 28.03.2013, Page 19
Fært til bókar Geimriddari fælir safngest Þessar vikurnar stendur umfangs- mikil sýning yfir á Kjarvalsstöðum á verkum í eigu safnsins af því tilefni að 40 ár eru liðin frá því safnið opnaði. Sýningin breytist reglulega enda fjöldi verkanna slíkur að ekki er hægt að sýna þau öll í einu. Eiður Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, skoðaði sýninguna um síðustu helgi og hreifst mjög. Jón Gnarr, borgar- stjóri, sló hins vegar verulega á ánægju Eiðs þegar hann birtist í einkennisbúningi sínum, forláta geim- riddaramúnderingu úr Stjörnustríðsmyndunum. „Stórkostleg málverkasýning á Kjarvalsstöðum. Við flúðum hins vegar þegar borgarstjórinn í Reykjavík mætti á staðinn íklæddur grímubúningi!“ Skrifaði Eiður á Facebook og var greinilega ekki skemmt. Trúleysingjabingó Trúleysingjarnir í Vantrú hvika hvergi frá þeirri hefð sinni að brjóta helgidagalög með borgaralegri óhlíðni um páskana en eins og margir vita eru sam- komur ýmis dægradvöl á föstudaginn langa bönnuð með lögum. Vantrú heldur þó venju samkvæmt sitt árlega páskabingó á Austurvelli á föstudaginn langa. Bingóið byrjar klukkan 13:00. Spilaðar verða nokkrar umferðir en best er að mæta tímanlega. Páskaegg og aðrir veglegir vinningar eru í boði fyrir þá sem treysta sér til þess að gerast lögbrjótar á föstudaginn auk þess sem boðið verður upp á veitingar. Páskabingóið er fyrir alla fjölskylduna og verður glaðningur í boði fyrir börnin. Sjóræningjar á báðum áttum Pírataflokkurinn hefur aðeins verið að sækja í sig veðrið undanfarið en á netumræðum um framboðið má sjá að hugsanlegir stuðningsmenn staldra nú við hvernig flokkurinn skil- greinir sig í pólitíska litrófinu, klóra sér í hausnum og treysta sér ekki til að fá jöfnuna „frjálshyggju sósíalistar“ til að ganga upp. Hér er óneitanlegu um ansi magnaðar þversagnir að ræða og hingað til ekki mörg dæmi um að sósíalistar og frjálshyggju- fólk eigi samleið. Fólk veltir þessu fyrir sér á netinu og einhverjir furða sig á því að flokkur sem hafni skilgreiningunum hægri og vinstri í stjórnmálum en telji sig svo tilheyra báðum áttum. Aðrir telja þetta vel geta gengið upp og kalla ekki ómerkari mann en sjálfan Noam Chomsky til vitnis. Píratarnir eru þá væntanlega á báðum áttum en geta samt stefnt beint áfram. Helgin 28. mars–1. apríl 2013 viðhorf 19 Opinn í báða enda Það mun vera einsdæmi í íslenskri stjórnmálasögu að flokkur ráðist gegn sjálfum sér – eigin forystu, eigin sögu og eigin verkum – eins og Framsóknarflokkurinn gerir nú. Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, undrast í aðsendri grein í DV að Framsóknarflokkurinn fordæmi verðtrygginguna sem flokkurinn átti þátt í að koma á á sínum tíma. Leyndarmál, ekki segja frá... Það er mjög óvenjulegt að þingmenn greini frá því sem á sér stað á svona fundum. Þetta eru trún- aðarfundir og ég veit ekki til þess að svona lagað hafi gerst áður. Ásta Ragnheiður Jónsdóttir, forseti Alþingis, er reið við Birgittu Jónsdóttur fyrir að gefa skýrslu um flokksformannafund á Facebook. Hingað og ekki lengra! Hafi þeir skömm fyrir og þetta skulum við stoppa af og það með góðu eða illu. Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi, er fjúkandi illur yfir samningaviðræðum við erlendra kröfuhafa um uppgjör á snjóhengjunni svokölluðu. Stórt skref fyrir flokk- inn, lítið fyrir fólkið Það yrðu þung spor fyrir Bjarna Benediktsson, og sennilega lýkur formannstíð hans brátt ef þetta verður niður- staðan. Egill Helgason rýnir í stöðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem gæti samkvæmt könnunum þurft að lúta forsæti formanns framsóknar í næstu ríkisstjórn. Andóf í útvarpi Ertu sátt/ur við að Þórhildi Þorleifs- dóttur í 1.sæti í Reykjavík-Suður fyrir Lýðræðisvaktina? Pétur Gunnlaugsson, einn helsti forkólfur Útvarps Sögu, snerist á punktinum gegn Lýðræðisvaktinni eftir að hann sagði skilið við hana. Honum hugnast ekki að Þórhildur Þorleifsdóttir skipi sæti á lista framboðsins og sækist eftir stuðningi við þá skoðun sína með þessari spurningu á heimasíðu útvarpsstöðvarinnar. Myrkarverk á þingi Stjórnarskráin er greinilega ekki annað en leiksoppur í hráskinna- leik hrossaprangara. Illugi Jökulsson, fyrr- verandi stjórnlagaráðs- meðlimur, horfir á eftir stjórnarskrárfrumvarpinu týnast í pólitískum hrossaviðskiptum.  Vikan sem Var ms.is H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.