Fréttatíminn - 28.03.2013, Side 22
K
vikmyndaferill leikkonunnar
Elvu Óskar Ólafsdóttur telur
þrjátíu ár en hann hófst árið
1983 þegar hún lék Ungfrú
Snæfells- og Hnappadalssýslu
í Nýju lífi eftir Þráin Bertelsson. Persónu
sem er mörgum sem komnir eru til vits og
ára enn í fersku minni. Myndirnar sem hún
hefur leikið í síðan þá eru all nokkrar og þar
á meðal eru Stuttur Frakki, Benjamín dúfa,
Ikingut, Hafið og sakamálamyndirnar Köld
slóð og Borgríki. Þá lék hún í glæpaþáttnum
Mannaveiðar og gerði það gott í dönsku
spennuþáttunum Ørnen. Hún er hins vegar
að leika draug í fyrsta skipti núna og hafði
gaman að.
„Ég leik Jóhönnu sem er ekki bara draugur
heldur rosalega bitur draugur. Hún var ást-
sjúk í Ófeig en fékk hann aldrei en síðan ger-
ast hlutir sem verða til þess að hún gengur
aftur, eins og Ófeigur, og lætur karlinn ekki
í friði,“ segir Elva Ósk sem fékk loksins
tækifæri til þess að vinna með Ágústi Guð-
mundssyni.
„Það var bara dásamlegt. Við höfum aldrei
unnið saman áður en höfum talað um að gera
eitthvað saman frá 1990 og nú var loksins
lag og það var sko ekki leiðinlegt get ég sagt
þér,“ segir Elva Ósk en það voru ekki síður
fagnaðarfundir á tökustað þar sem hún hitti
fyrir gamlan samstarfsmann, Ladda.
„Hann er yndislegur. Ég hef nú unnið
með Ladda áður og í myndinni er ég í mjög
afmörkuðum senum, nánast eingöngu með
honum, og það er bara draumur að vinna með
þessum snillingum.“
Frjáls og engum háð
Elva Ósk er laus og liðug í leiklistinni, ekki
bundin neinum samningum og getur gert
það sem hana langar til. Hún var nú síðast á
fjölum Borgarleikhússins í leikriti Jóns Atla
Jónassonar, Nóttin nærist á deginum. „Ég
var að klára þar en það verður hugsanlega
tekið upp fyrir sjónvarp. Í maí er ég að fara í
gang aftur með Hallgerði langbrók í Sögu-
setrinu á Hvolsvelli. Við kláruðum það aldrei
síðasta sumar. Síðan er bíómynd framundan
og svona,“ segir Elva Ósk og verður mjög
leyndardómsfull og tekur ekki í mál að gefa
meira upp.
„Það er alltaf eitthvað í gangi en ekki allt
alveg í hendi ennþá og þótt búið sé að nefna
fullt af hlutum við mig þá er ekkert hægt að
segja eða gera fyrr en allt er niðurneglt. Elva
segist þar fyrir utan hafa í nógu að snúast
og það eigi alls ekki við hana að sitja auðum
höndum.
Hallgerður er merkileg manneskja
Elva segist hafa haft mikla ánægju af því að
takast á við Hallgerði langbrók og heldur til
fundar við þennan mikla örlagavald í Njálu
með bros á vör. „Hallgerður er algerlega
mögnuð persóna,“ segir Elva Ósk en þver-
tekur fyrir að þessi aðsópsmikla valkyrja
taki mikið pláss í hugarfylgsnum hennar.
„Nei alls ekki. Ég er nú búin að læra það fyrir
löngu að skilja vinnuna eftir í vinnunni. Ég
tek hana ekki með mér heim og er ekkert að
dröslast með þessar persónur á bakinu allan
sólarhringinn. Hallgerður er samt miklu,
miklu merkilegri manneskja en margur gerir
sér grein fyrir. Alveg mögnuð kona. Hún er
svo margbrotin og Hlín Agnarsdóttir aflaði
sér alls kyns upplýsinga og skrifaði þetta fína
leikrit um hana. Hún gerði meira en bara að
neita Gunnari á Hlíðarenda um hár í boga-
streng. Það er miklu meira í hana spunnið
en það og þessi kona var búin að missa tvo
menn áður en Gunnar kom til sögunnar og á
miklu stærra líf en bara að vera konan hans
Gunnars.“
Sýning Hlínar og Elvu Óskar um Hallgerði
gekk vel í fyrra og því ekki um annað að ræða
en halda áfram. „Þetta hefur gengið rosalega
vel og þetta er nánast skrifað inn í Sögusetr-
ið. Þetta er á Njáluslóðum og leikmyndin er
fullkomin. Það er bara dásamlegt að keyra
þangað um helgar, fara út úr bænum, komast
í burtu og upplifa sveitina beint í æð. Fólkið
þarna er líka svo gott og skemmtilegt og það
er sniðugt að fá sér bíltúr frá Reykjavík og
skreppa í leikhús. Þetta er reyndar einn og
hálfur tími í akstri. Dágóður spotti en fal-
legur.“
En hvað segir Elva Ósk um höfuðandstæð-
ing Hallgerðar, Bergþóru?
„Ég stend föst með Hallgerði, þú getur nú
rétt ímyndað þér það. Það þarf ekki að ræða
það neitt. Ég verð bara hálf móðguð þegar þú
nefnir þetta nafn þarna,“ segir hún og hlær.
„Nei ég segi svona, en Hallgerður var engin
geðluðra.“
Draugaleg á Frakkastíg
Elva og Laddi eru að vonum hálf gegnsæ í
Ófeigur snýr aftur enda hafa persónur þeirra
kvatt efnisheiminn og Elva skemmti sér kon-
unglega við gerð draugagervisins og brellu-
vinnuna sem fylgdi í kjölfarið.
„ Það var mjög gaman að undirbúa þetta og
við fórum út í heilmiklar pælingar með Jör-
undi brellumeistara sem vann eftirvinnuna
að miklu leyti og náði fram þessum drauga-
áhrifum. Þetta var skemmtilegt ferli með
honum, sminkunni, búningahönnuðinum
og Ágústi. Þetta voru heilmiklar pælingar í
kringum það hvernig þetta ætti að vera og
líta út. Hvaða liti mætti nota og hvaða liti
mætti ekki nota.
Ég er náttúrlega að leika draug og húðin
er svona mismikið að detta af manni eftir
því sem líður á myndina. Við vorum með
rútuna uppi á Njálsgötu en tökustaðurinn
var heima hjá Ágústi á Grettisgötu þannig
að maður þurfti að ganga þangað í gervinu
frá rútunni. Og það er gaman að segja frá
því að einhvern tíma í vetur var ég að labba
þessa leið einsömul, niður Frakkastíginn,
og mætti einhverjum túristum sem voru
auðvitað gapandi undrandi. Ég þurfti bara
að láta eins og ekkert væri þótt andlitið væri
að detta af mér. Hvað má maður að gera?
Þetta voru mjög kjánalegar aðstæður enda
stoppaði fólk og glápti á mig eins og ég væri
holdsveik eða eitthvað þaðan af verra. Þetta
var fyndið.“
Sveif um heimili leikstjórans
Elva Ósk segist ekki hafa lagst í miklar
pælingar um hvað bíður okkar eftir dauðann
og hvernig sé um að lítast í handanheimum.
„Nei, nei. Málið er að þessi Jóhanna er bara
ennþá föst í sinni biturð og reiði og þroskast
ekkert þaðan þótt hún sé dauð. Það þarf eitt-
hvað meira til.“
Tökur á Ófeigur gengur aftur fóru mikið til
fram á heimili leikstjórans og þar fékk Elva
Ósk heldur betur að leika lausum hala. „Ég
var fljúgandi í loftinu þarna, hangandi lárétt
í einhverri talíu. Það var frekar fyndið. Ég
hef gengið í gegnum margt sem leikari og
maður hefur þurft að prufa alls konar hluti en
þetta er nú með því eftirminnilegra.“
Borgríki er síðasta myndin sem Elva Ósk
lék í. Hún var frumsýnd síðla árs 2011 en
tökum lauk nokkru fyrr. „Já. Það er dálítið
síðan maður sást síðast í bíó. Þetta er lítið
land og lítill markaður og það er ekkert hægt
að vera alltaf alls staðar. Smæð markaðarins
er nú vandamálið hjá okkur leikurunum þótt
maður vildi gjarnan vinna við þetta daginn út
og inn.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Elva Ósk fæddist í Vestmanna-
eyjum 1964 þar sem hún ólst
upp. Hún var níu ára þegar
gosið hófst í Eyjum og ætlar
sér ekki að missa af goslokahá-
tíðinni í sumar. „Það eru fjörutíu
ár liðin frá gosinu og ég er Vest-
manneyingur og ætla að mæta
þar.“
Fysta kvikmyndahlutverk
Elvu Óskar tengist einmitt Vest-
mannaeyjum en hún lék Ungfrú
Snæfells- og Hnappadalssýslu í
Nýju lífi sem gerðist að mestu
í Eyjum og fjallaði um hvernig
landeyðurnar Þór og Danni
(Eggert Þorleifsson og Karl
Ágúst Úlfsson) ætluðu að hefja
nýtt líf í verbúð.
Elva Ósk lauk námi frá Leik-
listarskóla Íslands árið 1989.
Fyrsta hlutverk hennar að loknu
námi var Adela í Húsi Bernörðu
Alba hjá Leikfélagi Akureyrar
en þar lék hún einnig Snæfríði
Íslandssól í Íslandsklukkunni.
Elva hefur leikið í fjölmörgum
leiksýningum, bæði í Borgar-
leikhúsinu og í Þjóðleikhúsinu
auk þess sem hún hefur komið
víða við í kvikmyndum. Hún
hlaut meðal annars Edduverð-
launin 2002 fyrir leik sinn í
Hafinu.
Elva Ósk lék Jóhönnu í fram-
haldsþáttunum Ørnen sem
Danmarks Radio framleiddi.
Persónan er systir aðalsöguhetj-
unnar og býr í húsinu Lukku í
Vestmannaeyjum.
Elva Ósk gerir Ladda eilífðina óbærilega
Leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir leikur
afturgöngu í nýrri gamanmynd leik-
stjórans Ágústs Guðmundssonar,
Ófeigur gengur aftur, þar sem sjálfur
Laddi er í aðalhlutverki. Draugurinn
sem Elva Ósk leikur var ástsjúk í Ófeig,
óendurgoldið, í lifenda lífi og burðast
með gremjuna í handanheimum en fær
óvænt tækifæri til þess að læsa klónum
í karlinn þegar hann gengur aftur.
Ferillinn hófst með Nýju lífi
Elva Ósk lék unga konu sem heillaði Þór og Danna
upp úr skónum í sínu fyrsta kvikmyndahlutverki.
Fólk stopp-
aði og glápti
á mig eins
og ég væri
holdsveik
eða eitthvað
þaðan af
verra.
Elva Ósk Ólafsdóttir skemmti sér konunglega við
að leika draug á móti Ladda vini sínum og hafði ekki
síður gaman að því að spóka sig í gervi sínu í mið-
bænum og hrella þannig vegfarendur. Ljósmynd/Hari
22 viðtal Helgin 28. mars–1. apríl 2013