Fréttatíminn - 28.03.2013, Síða 40
40 heilsa Helgin 28. mars–1. apríl 2013
Heilsa Frjálsíþróttadeild Kr endurvaKin
„Frjálsar íþróttir verða
að vera valkostur“
Þann 8. janúar var stór stund í sögu frjálsíþróttadeildar KR, en þann dag var deildin endurreist
eftir um 20 ára hlé. Að baki því framtaki standa foreldrar sem vilja leggja sitt af mörkum til að
gefa íbúum í vestari hluta Reykjavíkur kost á að leggja stund á holla hreyfingu.
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1 mg/ml. Ábendingar: Bólgur
og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði
í hvora nös 3 sinnum á sólarhring eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös
á sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta
kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu
sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn eða ert með þrönghornsgláku.
Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum,
ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan
púls, erfiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki
ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli.
Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
“ ÚR ÞOKUNNI Í ÞEYTINGA!”
Forðastu 3 stærstu mistökin sem heilsumeðvitaðar konur gera þegar
þær taka upp heilsusamlegan lífsstíl, sem gerir þær svo ringlaðar og
úrvinda að þær gefast upp!
Komdu og hlustaðu á Gitte Lassen og
lærðu um:
Gitte Lassen
¥ Hvernig samstarÞ l’kamans og
náttúrunnar er háttað ’ raun og veru
¥ Hvernig þú getur nýtt ýmsar
upplýsingar um heilsu
¥ Hvernig þú raðar góðu heilsu-
pússluspili saman
Verð: 2.500kr FRÍTT ef þú skráir
þig með e-mail á
hms@heilsumeistaraskolinn.com
Reykjavík, miðvikudaginn 3. apríl
Fyrirlesturinn er kl. 19.00 - 22:00
og fer fram ‡ ensku en
þýðing á staðnum!
skólastjóri
Heilsumeistaraskólans
Öflugt gegn
blöðrubólgu
ROSEBERRY
Virkar innan 24 tíma
2-3 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
í heilsuhillum stórmarkaðanna
www.gengurvel.is
Á þessum tímum
þegar til dæmis
þátttaka kvenna
í stjórnum fyrir-
tækja er mikið í
umræðunni veit ég
ekki um betri íþrótt
fyrir dóttur mína til
að taka þátt í.
u ndirtektirnar hafa verið mjög góðar að mati Rakelar Gylfa
dóttur sem er yfirþjálfari
deildarinnar. „Við stefnum
að fjölgun þátttakenda í
deildinni næsta vetur. Við
ætlum að gefa okkur góðan
tíma til að byggja þetta upp
og gera vel við þá krakka
sem eru að byrja. Það hefur
lengi verið talað um að það
vanti frjálsar íþróttir í Vest
urbæinn. Svo vantaði auðvit
að tækifæri fyrir krakka til
að æfa einstaklingsíþrótt,“
segir Rakel.
Strákarnir viljugri
en stelpurnar
Rakel leggur mikla áherslu á
það við krakkana að þau séu
að semja nýja sögu og búa til
nýtt samfélag í Vesturbæn
um. „Á æfingunum eru krakkarnir alltaf að
keppa við hitt kynið og um leið að styrkja hvort
annað við að ná settu marki. Á þessum tímum
þegar til dæmis þátttaka kvenna í stjórnum
fyrirtækja er mikið í umræðunni veit ég ekki
um betri íþrótt fyrir dóttur mína til að taka þátt
í. Stelpur og strákar æfa hlið við hlið og eru að
bera sig saman hvort við annað.“
Rakel segir strákana hafa verið mun viljugri
til þess að taka þátt í keppnum. Stelpurnar
reyna hins vegar að finna ástæður til þess að
geta ekki komið. Mér finnst eins og stelpurn
ar verði að vera vissar um að þær geti þetta
á meðan strákarnir eru tilbúnir að láta slag
standa. „Þegar þú ert að keppa í svona einstak
lingsgrein þá þarftu að stíga fram sem einstak
lingur og lætur slag standa. Það er svo mikið
nám í þessu fyrir framtíðina,“ segir Rakel.
Melavallarins nýtur ekki lengur við
Frjálsíþróttadeildin stefnir að því, í sam
bandi við stjórn KR, að finna góðar aðstæður
til að æfa utanhúss í framtíðinni því gamla
Melavallarins nýtur ekki lengur við. Starfið
hjá deildinni var mjög blómlegt á sínum tíma
og hafði innan sinna raða íþróttamenn eins
og Gunnar Huseby, Helgu Halldórsdóttur og
Hrein Halldórsson kúluvarpara. „Deildin var
auðvitað mjög sterk á árum áður, svo voru það
bara nokkrir foreldrar sem tóku sig saman
og hleyptu lífi í deildina aftur og sitja núna í
starfsstjórn og fengu mig til að þjálfa.“
Nýlokið Reykjavíkurmeistaramót er fyrsta
mótið sem deildin tekur þátt í með skipulögð
um hætti í tæp 20 ár. Pétur Guðmundsson var
sá síðasti sem tók þátt í frjálsíþróttakeppni
fyrir KR, á meðan að deildin starfaði. Deildin
fékk tvenn bronsverðlaun um helgina og það
eru fyrstu verðlaunin sem KR hefur fengið í
langan tíma.
Bjarni Pétur Jónsson
bjarni@frettatiminn.is
Þær Sóley Jónsdóttir og Mist Þrastardóttir tóku
þátt í Reykjavíkurmótinu fyrir frjálsíþróttadeild KR.
Rakel segir mikilvægt að krakkarnir hafi val-
kost til að geta tekið æft einstaklingsíþróttir.
Það er fínt útlit til skíða og brettaiðkunar alla páskana. Opið
verður í Bláfjöllum frá klukkan 1017 frá skírdegi til annars
dags páska. Skíða og brettaskóli Bláfjalla verður starfrækt
ur alla dagana og er skráning í hann á heimasíðu skíðasvæð
anna. Skrá þarf í skólann fyrir klukkan 21 daginn áður en á
að mæta.
Mintan 2013 verður á laugardaginn klukkan 14.30. Mintan
er meiriháttar brettasession þar sem plötusnúður spilar í
fjallinu, veitingar verða gefnar, mikið af flottum verðlaunum
og fleira og fleira. Pallar og „rail“ munu skarta sínu fegursta.
Mintan er eitthvað sem brettaáhugamaðurinn má ekki láta
fram hjá sér fara.
Bláfjallamessan verður á sínum stað klukkan 13 á páska
dag. Séra Pálmi Matthíasson messar.
Snjóbrettafólk ætti að fjölmenna í Bláfjöll
um helgina þar sem Mintan verður haldin.
sKíði Mintan og BláFjallaMessa uM Helgina
Útlit fyrir flotta páskahelgi í Bláfjöllum