Læknablaðið - 01.11.1915, Síða 13
LÆKNABLAÐIÐ
171
Akureyri, ísafjöröur, Hafnarfjöröur, Seyðisfjöröur, Bolungarvik,
Akranes, Vestmannaeyjar, Eyrarbakki, Stokkseyri, Húsavík, Stykkis-
hólmur, Nes í Noröfiröi, Ólafsvík, Patreksfjöröur, Sauðárkrókur,
Keflavík, Eskifjöröur, Siglufjöröur, Hjallasandur, Búöir (Fáskrúös-
firði), Þingeyri.
Spurningarnar eru þessar:
1. Er gott landrými umhverfis bæinn, svo til frambúðar sé fyrir fiskireiti, tún og
garða o. fl. ef bærinn yxi að mun? — Hverjir eiga landið (bæjarstæði og landið
umhverfis) ? — Er góður vatnshalli á bæjarstæðinu ? — Er það þurt og þrifalegt?
— Er auðvelt að grafa þar niður neðanjarðarpipur niður fyrir frost (klappir,
vatnsuppgangur) ? — Hve dýr er fermetri (eða alin) í beztu húsastæðum?
2. Hvernig er götum og húsum skipað i bænum? (Ef u p p d r á 11 u r er til af bænum,
væri m j ö g æ s k i 1 e g t að fá einfalt afrit af honurn á gegnsæum pappír. Mæli-
kvarði uppdráttins þarf að sjást og hallalínur ef þær eru. Helztu byggingarnar:
kirkja, skóli, samkomuhús, ættu að vera merktar. Ef enginn uppdráttur er til,
væri betra en ekki að fá lauslegt risp, sem sýndi aðalgötur og höfn. — Er til
lagleg ljósinynd af hænum, sem sýnir hann eins og hann er nú?
3. Er föstum reglum fylgt um götulagningar, húsaskipun og önnur mannvirki? —
Hver hefir eftirlit með sliku? — Er til áætlun og uppdráttur um húsa- og götu-
skipun er bærinn vex?
4. Breidd aðalgatna frá húsi til húss? — Breidd mjóstu gatna? — Eru svo brattar
götur, að erfitt sé eftir þeim að fara með hlaðna vagna?
5. Hve langt er að jafnaði milli tveggja samhliða gatna? — Hvað minst? —
Hvað mest?
6. Hvernig eru vatnsbólin? — Er vatn gott og nægilegt? — Eru brunnar steinlímdir
og þéttlokaðir að ofan? — Eru dælur í þeim eða brunnfötur? — Er vatni veitt
í pípum inn í húsin? — Hvenær kemst það á? — Hvc hár er vatnsskatturinn?
7. Hvernig er fráræslan? (Opnar moldarrennur, opnar steinlímdar rennur eða neðan-
jarðarpipur? Hvenær komst fráræsla á i neðanjarðarpípum?)
8. Hvað er gert af sorpi? — Eru sorpkassar við húsin? — Hver annast burtflutning
sorps? (húsráðendur? bærinn?) — Hversu er farið með slor og slóg?
9. Eru salerni sæmileg og hirðing þeirra? — Eru hlandforir í bænum? — Hvað er
gert af kamramykju? — Eru þarfindahús fyrir almenning?
10. Hvar eru slátrunarhús i bænum. Vatn þeirra og frárensli? — Eru þau útbúin með
áhöldum til þess að verkamcnn þvoi sér um hendurnar?
11. Hve margar fjölskyldur búa í 1, 2, 3, 4 eða fleiri herbergjum
sem hita má? (Eldhús ekki talið með, en þcss sérstaklega getið, ef eldað er
inni í íbúðarherbergi.) — Hve margar í kjöllurum?
12. Hver er húsaleiga að jafnaði fyrir meðalíbúð (3 íbúðarherbergi, cldhús og
geymsla) ?
13. Eru opin svæði í bænum eða þeim ætlað pláss (líkt og Austurvöllur í Reykjavík),
leiksvæði fyrir börn eða iþróttamenn?
14. Hvar cru reitir til fiskþurkunar? — Útaf fyrir sig, utan bæjarins eða innan um
húsin? — Hvar er lýsis- eða síldarbræðslan?
15. Hvernig hefir heilbrigði bæjarbúa verið síðustu árin eða áratuginn? •— Hve
margir hafa á ári hverju sýkst þar af taugaveiki síðan 1901
(eða síðan læknir kom i héraðið) ?
16. Er bærinn sérstakur hreppur? — Er til heilbrigðissamþykt? — Er hún vel haldin?
— Er til byggingarsamjiykt og bygginganefnd ?
Svöriii hefði eg þurft aö fá í vetur ef mögulegt væri, helzt sem fyrst.
GUÐM. IiANNESSON.