Læknablaðið - 01.02.1920, Blaðsíða 16
30
LÆKNABLAÐIÐ
— réttum mánuSi, aö því er mig snertir. — Venjulega hefir ekki oltiö svo
mjög á þvi fyrir sveitalæknana aö fá nýju veröskrána um leiö og lögmætt
er aö fylgja henni, þvi hækkun hefir sjaldnast veriö verulega tilfinnan-
leg eöa þá almenn, þ. e. á flestum lyfjateg. og öörum hliöstæöum nauö-
synjum, t. d. öskjum, glösum, krukkum, svo og hina ýmsu lyfjasamsetn-
ingu. Aö þessu sinni viröist mér töluvert ööruvísi ástatt, — og það á
fleiri en eina grein.
Hækkunin, sem mest og' víðast ber á, stafar vafalaust af aðgerðum hins
vísa Alþingis. Á eg þá við tollhækkunina á spiritus. En veröhækkun sú, er
óhjákvæmilega hefir or'Öiö á öllum þeim lyfjum, sem innihalda spiritus aö
einhverju leyti, hefir orðið töluverö, svo hér er aö tala um töluveröa upp-
hæð fyrir lækna. Sama er aö segja um öll þau smyrsl, sem gerö eru úr
hinum ýmsu adepstegundum. Munar þar sumstaöar um meir en helming
verös. Þá má benda á kauphækkunina fyrir aö setja saman lyf á ýmsan
máta og afhenda þau.
Þótt hér sé um nokkurt fjártjón að ræöa fyrir lækna, þá heföi eg ekkj
hreyft þessu máli, ef ekki bæri þetta til: — Eg hefi sannfrétt aö lyfsalinn
á Akureyri, — og þá sennilega aörir lyfsalar á landinu, hafi strax 12.
sept. s. 1. fengið tilkynningu um óhjákvæmilega hækkun á öllum spiritus
og lyfjum sem spiritus er í o. fl. Eftir ])aö voru tóm glös, spiritus og allar
tincturae o. fl. selt til lækna við mjög mikiö hækkuðu veröi. — Nú hefir
það viljaö til, aö ]jó lyfjabúöin afgreiddi lyf til lækna, þá hefir sökum
annrikis enginn reikningur fylgt þeim, og læknirinn selur siðan lyfin meö
gamla veröinu. Læknir getur á þennan hátt orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni.
Eg kalla þaö töluverða ónærgætni, aö láta ekki lækna vita um verð-
hækkunina á sama tíma og lyfsalana, ekki síst er um svo mikla hækkun
var aö ræða. Magnús Jóhannsson.
Fréttir.
Álún viÖ kíghósta. Reyndur danskur læknir, Barfod, mælir mjög með
álúnsvatni. 15 grm. af álúni er leyst upp i 3 pela fl. af vatni og teskeið —
litil matsk. gefin af blöndunni 2. hv. klst. E f t i r 2 v i k u r, frá þvi
tekið er að nota lyfiö, segir hann aö veikin minki ætíö stórlega. Mikilsvert
aö geta byrjað fljótt á því. — Aðrir læknar, sem reynt hafa þetta, hrósa
þvi. í köstunum lætur Barfoed börnin anda aö sér: æther 20, cloroform
10, ætherol therebinth. 5. Nokkrum dropum er dreypt í klút, og honum
haldiö fyrir vitin á barninu. Kynlegt lyf er það að vísu, sem ekki hrífur
fvr en eftir 2 vikur, en fátt skal ])ó fortaka og væri saklaust aö reyna ])etta.
Mæling á skólabörnum hafa þeir Gísli Pétursson, Sigurj. Jónsson og
Snorri Halldórsson sent mér. Vilja ekki fleiri vera meö ? G. H.
Þrjátíu og fimm ára læknisafmæli og 60 ára aldursafinæli átti héraös-
iæknir Þorgrimur Þóröarson í Keflavík þ. 17. desember — einmitt á sjálf-
um dómsdeginum. Héraösbúar færðu honum mikið málverk að gjöf, Fljóts-