Læknablaðið - 01.02.1921, Page 10
24
LÆKNABLAÐIÐ
Granuloma.
Guðmundur Magnússon prófessor lýsir í októberblaSi Lbl. 1918, ein-
kennilegum kvilla, sem hann kallar Granuloma. Hann hefir þá oröiö var
vi'ö 5 sjúklinga meö Granuloma. — G. M. lýsir þessum kvilla svo vel, aö
viö þá lýsingn hefi eg engu aö bæta. í greininni er líka útdráttur úr smá-
sjárrannsókn eftir Stefán Jónsson.
Flest undanfarin ár síöan eg kom til Sauðárkróks, hefi eg orðið þessa
kvilla var, en þó nokkuð mismunandi, 1—7 á ári, einna mest borið á þessu
i haust. Eg hefi ávalt haft þá lækningaraðferð sem G. M. talar um, hefí
þó reynt meðferð þá, sem Matth. Einarsson getur um, en finst hún aö
minsta kosti ekki eins fljótvirk (ung. pyrogall. comp., F. N. C. H.).
Þaö sem mér viröist einkennilegt við Granuloma er þetta: Eg hefi að
eins orðið þess var á haustin í sláturtíðinni, og þegar sjúklingarnir eru
spuröir um orsökina, er næstum ætíð sama svarið, að þeir hafi hruflað
sig á sög, er þeir voru að saga hornjaf kindarhausum. Granuloma hefi eg
að eins séð á höndum að einu tilfelli undanteknu, sem var í andliti, og í
því tilfelli var orsökin sú, að kind haföi stangað mann í andlitið. Eg hefi
ekki orðið þess var, að Granuloma hafi batnaö af sjálfu sér. Sjúkling-
arnir hafa allir orðið aö fara til læknis fyr eða síðár, og hefir það borið
við, að þeir hafa dregið það lengi, sem langt hafa átt til læknis að sækja.
Hefir það þá orðið stórt, alt að 3 ctm í þvermál, upphækkað, hart og vifsu-
litiö, enda hafa sjúkl. þá oft reynt aö lækna þaö með joðáburði.
Það er að eins þetta, um orsökina til Granuloma, sem eg hefi a'ð bæta
við grein G. M., að hrái kemst í nýtt sár, alloftast eða næstum ætíð af
kindarhorni eða úr slóginni í því, og virðist þetta benda á specifika oúsök.
Jónas Kristjánsson.
Smágreinar og athugasemdir.
Journal of American Medical Association.
Kirtlar (lifur, bris, thymus, nýru) hafa lengi haft ilt orð á sér sem óholl
fæða. Purinefnin úr öllum frumkjörnunum áttu að fylla líkamann meö
þvagsýru og valda gigt. Ritstjórnargrein telur Jiessa kenningu hæpna.
Tilraunir McCollum’s o. f 1., hafa sýnt, að kirtlar, sérstaklega lifrin, inni-
halda bæöi auðmeltanlega eggjahvítu, og eru auk þess auðugir af vita-
minum. Dýr geta ekki þrifist á kjöti einu saman (vöðvum), þvi vitamin
er af svo skornunf skamti. Aftur má ala þau eingöngu á blóði og kirtlum
og ber ekkert á, að þvagsýran tæmist ekki fullört úr líkamanum. Blaðið
telur því lifur og aðra kirtla góða og holla fæðu, ef ekki er hún notuö
í óhófi. (30. okt.).
Námsskeið fyrir lækna eru nú haldin viðsvegar í Bandarikjunum, til
þess að kenna þeim sem best diagnosis á berklaveiki. Æfðir sérfræöingar
kenna, og lifandi myndir eru notaðar við kensluna. Hvert námsskeiö varir