Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.1921, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.02.1921, Blaðsíða 12
2Ö LÆKNABLAÐIÐ kvendýr) heföi ekkert áfeng'i fengiö. Ef hænuegg eru látin ungast út í lofti, sem blandaö er áfengisgufu, veröa ungarnir allajafna vanskapaöir eöa á annan hátt „abnorm“. (Aftur þola fullvaxin hænsn áfengi vel). Sama er að segja um hrogn fiska og egg óæðri dýra, isem klakið er út í vatni, sem dálítið er í af vínanda. Arlitt geröi tilraunir með rottur. 25 ctgrm. af alkoholi á dag, kipti stórum úr vexti þeirra, gerði þær að mestu ófrjóar og stytti líf þeirra stórum. Afkvæmi brennivínsrottanna þrifust illa, þó ekki fengju þau neitt áfengi. í dauðum brennivínsrottum sáust fáar breytingar, nema einmitt á getnaðarkirtlum. Brennivínsrottuú áttu erfiðara með að læra nokkuö -heldur en heilbrigðar, og — sama kom fram í af- kvæmum þeirra, þó ekki fengju þau áfengi. Þessi gáfnaskortur hélst í þrjá ættliði. — Það lítur út fyrir að dýrin þoli áfengi enn ver en menn- irnir! (20. nóv.). Eitthvað bogið. Af 11 læknum í Louisville (U. S.) var nýl. tekið leyfi til þess að skrifa áfengislyfseðla. (20. nóv.). Syphilis og spermatozoa. Syphilitici hafa mikið af vansköpuðum sper- matozoa (Dr. Widakowich), og er sagt, að þetta sé eitt hið fínasta einkenni veikinnar, — betra en Wassermann! (20. nóv.). Skarlatssótt hefir minkað til stórra muna í Berlín á ófriðarárunum, og er sultinum þakkað það. Kobrak (Þjóðv.) hefir reynst, að veiki-þessi legg- ist frekar á ríka en fátæka, og telur það stafa af þvi, aö kokkvillar séu tíðari á feitum börnum en mögrum. í samræmi viðj þetta smituðust flestir í rúmgóðu húsunum ríku mannanna, færri í kytrum fátæklinga. Aftur1 bar ekkert á þvi, að diptheritis eða misl. minkuðu á sultarárunum. (20. nóv.). Undirbúningstími mislinga reyndist Lewy (Þjóðv.) 6—19 dagar. Ef þessu má trúa, getur hann verið lengri en menn hafa haldið. — Höfúö- skömm er það, að ísl. læknar skuli ekki geta sagi í þessu efni, hvað rétt sé — með óyggjandi vissu. (20. nóv.). Tidsskrift for d. norske lægef.: Ráð við hixta. Sjúkl. er lagður flatur á grúfu. Hixtinn hverfur venjul. eftir nokkrar mínútur. Reyna má auk þess bromnatrium, 2 grm. á dag. Encephalitis letharg. heldur áfram að gera vart við sig í Noregi. Frakk- neskurn lækni (Netter) þykir hexamethylen'tetramin, 0.50—0.75, 4—6 X á dag í 3—4 daga hafa gefist vel. Árgjöld læknafél. danska er nú hækkað upp í 70 kr., sænska læknafél. 50 kr., en norska læknafél. 30 kr. — Nú fá félagar tímaritin ókeypiís, og svarar þetta því til 35 kr. árgjaldi hjá oss (verð Lbl. og árgjald til L.fél. Isl.), ef vér berum oss saman við Noreg. — Nr. 24. Jón Jóhannesson Norland hefir verið settur læknir í Haramhéraði í Mærafylki. — Nr. 24. Bibliothek for læger: Um rachitis skrifar próf. Eredericia gott yfirlit. Englendingar hafa gert miklar rannsóknir um uppruna sjúkd., sem er enn að nokkru á huldu. Mellanby telur hana hiklaust vitaminsjúkdóm (A. vitam.), en Findley og Ferguson (Glasgow) sýndu, að hvolpar fengu beinkröm þó þeir fengju næga mjólk, ef þeir höfðu litla hreyfingu og lifðu í litlum stíum. Þeir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.