Læknablaðið - 01.02.1921, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
3i
lakari en veriS hefir, hversu sem fer meS verSiS. Hitt er sjálfsögð skylda
Alþingis, aö gera sér ljósa grein fyrir því, hvort breytingin sé til bóta
og hvort gengiö sé á rétt lyfsala, áöur en frv. er samþykt. Þá væri þaiS
og í meira lagi óheppilegt, ef svo færi, að lyfjaveröiö hækkaöi úr því
hóflausa veröi, sem nú er. Vandalaust er þaö ekki fyrir þingið aö ráöa
málinu til lykta, en þaö á kost aö leita upplýisinga hjá, báðum málspörtum:
landlækni og lyfsölum.
3. F r v. til laga um s ki p u 1 a g kauptúna. Frv. þetta hefir
áður verið boriö upp á 2 þingum, en ekki veriö afgreitt, þótt vandamál,
sem þingmenn ættu erfitt aö dæma um. Frv. er aö því leyti eilnkennile.gt,
aÖ hvergi mun enn til löggjöf, er skipi svo gagngert fyrir i þessum efn-
um, en þó hafa Danir áþekk lög í smíðum, sem ,,Foreningen for bedre
byggeskik" hefir gengist fyrir. Veröi frv. þetta aö lögum og framkvæmd
þeirra skapleg, þá má vænta þess, aö skipulag allra kauptúna vorra kom-
ist í stórum betra horf og fjöldi miljóna sparist, sem annars eyöast í sí-
feldar breytingar. Fyrir heilbrigöismál kauptúnanna væru slik lög mikill
ávinningur. Frv. er að mestu eftir G. H.
Barnahælið á Vífilsstöðum var fullgert um miöjan desember, og var
þá læknum í Rvik og Hafnarfiröi, ráöherrunum og ýmsu stórmenni boðiö
aö skoða þaö. Þessi barnadeild er hin prýöilegasta, 4 sjúkrastofur meö
snotrum búnaöi, dagstofa meö máluðum litmyndum á veggjum, æfintýra-
myndum viö barna hæfi, herbergi fyrir hjúkrunarstúlku o. fl. Gestunum
var vel fagnaö, en þegar góögeröunum var lokiö og skoðun barnadeild-
arinnar, var litið á nýja læknisbústaöinn. Er hann virðulegasta og vand-
aöasta læknissetriö á öllu landinu, rúmgott og prýðilegt, meö miöstöövar-
hitun, raflýsingu etc.
Barnadeildin rúmar um 20 börn, en kostnaðurinn viö aö koma henni
á stofn, hefir verið um 9000 kr. hvert sjúkrarúm. Aðgætandi er, aö verkið
hefir veriö unnið í verstu dýrtíðinni.
Reykhólahérað. Frést hefir, aö héraðsbúar þar muni kaupa sæmilega
jörð fyrir læknissetur (Berufjörð) og liggur hún um miðbik héraðsins.
Má telja slíkt sjálfsagt í sveitahéraði.
Frá læknum. — Jón Ólafsson Foss hefir veriö settur í Borgarfj.héraö.
— Stefán Jónsson, dócent, er nú á besta batavegi. Skurðinn (gastroenteros-
tomi) gerði G. M. og gekk alt aö óskum. — Guöm. Ósk. Einarsson cand.
med., sem dvalið hefir um tíma á Ullevaal sjúkrahúsi, nýkominn heim.
Fékk lasleika og kom því fyr en ráögert var. — Matth. Einarsson sigldi
meö konu sinni til útlanda.
Þórður Guðjohnsen, læknir í Rönne er orðinn frægur fyrir fjallgöngur
sínar og ferðalög. Nýlega hefir hann gengið upp á Kebenkaise, hæsta fjall
í Norður-Svíþjóð og fundið nýja leiö og betri upp á fjalliö. Hefir hann
ritaö grein um þetta i sænskt timarit og má sjá mynd af jökli þessum
og spor Þóröar í snjónum, þ. e. braut hans yfir ófæruna. Annars hefir
hann ritað heila bók um feröalög sín á Bjarmalandi og gert fjölda lit-
mynda af þessum slóðum. Er Þóröur mestur málari af öllum rslenskum
læknum. Bók þessi er óprentuö cnn, en ótrúlegt aö hún komi ekki fyrir
ahnenningssjónir áöur lýkur.
Embættispróf í læknisfræði (lokapróf) tóku 3 kandidatar í febr.: Katrin