Læknablaðið - 01.02.1921, Qupperneq 15
LÆKNABLAÐIÐ
2g
sem mest. Ein af tillögum hans er sú, aS hver skuli borga fyrir sig á
veitingahúsum. — (Hyg. rev. Ii—12 1920, og nr. 1 ’2i).
Eskimóar í Ameríku. Vilhj. Stefánsson segir ýmislegt frá þeim í ferSa-
bók sinni: Abortus provo'catus er almennur og þykir engin
synd. Er fæSingu komiö af staft meS einskonar massage. Þetta reynist
hættulaust eíSa því sem nær, og má vera að aöferöin sé betri en þær
sem tíökast hjá lækríum. — Börn eru ekki snert fyr en fædd eru, og eftir
fæðingu fer konan mjög bráölega á fætur. Sængurkonur boröa að eins
soðinn fisk. —< Corp. al corneae reyna þeir að ná burtu meö því aö draga
hár yfir cornea, en dugi þaö ekki, binda þeir 1 ú s í hár og hleypa henni
á cornea til þess að ná aðskotahlutnum burtu!
Fr éttir.
Læknafél. Rvíkur. Fundur 14. febr. — Guöm. Thoroddsen sýndi konu,
með paralysis n. peronei, sem haföi alið barn fyrir nokkru og
fæöing gengið eölilega en tregt. Barnið í hvirfílstööu. Síðast i fæö. kvart-
aöi konan undan nevralg. verkjum niöur eftir öðrum fæti. Eftir að hún
var komin á fætur dró bráðlega úr þrautunum, en rjettendur á leggríum
og dálksvöövar voru lamaðir (n. peron.), svo hún átti erfitt meö gang
og jafnvel aö halda jafnvægi á mjöðmunum (þjóvöðvar). Var nú á nokkr-
um batavegi. Sjúkd. eflaust sprottinn af þrýstingi á plex. sacralis. —
Þá sýndi hann konu með tub. olecrani. Hafði tekist aö ná skemd-
•nni burtu án þess aö liöurinn sýktist og varð þó aö opna hann viö að-
gerðina, því liöpokinn var skemdur á bletti. — Próf. Sæm. Bjamhéðins-
son sýndi holdsv. sjúkl., sem dvalið haföi 18 ár á Laugarnesspítala. Þung
lepra mixta meö langvinnri hitaveiki, þrimlum, sárum, lömunum (pes
equinus, sublux. manus), taugaþrautum, episcleritis, iritis o. fl. Hefir
siöustu árin fengiö ol. gynocardii og batnað smámsaman, svo að nú ber
ekki verulega á ööru en afleiðingum sjúkd. Sjúkl. er nú á fótum við góða
heilsu og vinnur mikið. Sýklar voru í fyrstu miklir, finnast ekki nú orðiö.
S. B. telur sjúkl. „relativt" heilbrigðan og lætur hann fara af spítalan-
um. — Matthías Einarsson sýndi 8 mán. gamalt fóstur. Var þaö utan-
legsbarn, sem náð var með holskurði út úr kviðarholinu. Eggið haföi
sprungið fyrir nokkru. Nokkur samvöxtur var milli fósturs, fylgju og
garna en tókst þó að losa þaö sundur. Konunni heilsaöist vel. Fylgjarí
var stór og nálega h n ö 11 ó 11.
Nefnd var kosin til þess aö athuga hjús n æ ö i s m á 1 félagsirís.
Kosnir voru: G. Claessen, G. Thoroddsen og Sæm. Bjarnhéðinsson.
Nefndin, sem kosin var til þess aö greiða fyrir því, aö u m b ú ö a-
s m i ð u r fengist hér í Rvík, skýrði frá því, sem henni hafði áunnist.
Hún taldi völ á álitlegum manni og viðvíkjandi kenslu hans haföi hún
snúið sér til Samfundet for Vanföre. Voru sæmilegar horfur á því,
að hún fengist, en ýms tormerki höfðu þó komið í ljó's, svo óvíst er, hve-
nær þetta kemst i framkvæmd.
Þrjú frumvörp um heilbrigðismál hefir stjórnin lag*t fyrir þetta þing.
Veröur í þetta sinn aðeins getið aðalatriða þeirra.