Læknablaðið - 01.11.1921, Page 3
7. arg.
n. blað.
lEiniiiiiiiii
Nóvember, 1921.
Ulcus ventriculi et duodeni.
(Útdrættir úr erindi, er haldiö var í Læknafélagi íslands 1921).
M e S f e r S.
Eins og þegar hefir veriö minst á, er oft mjög erfitt aö greina rnaga-
sáriö frá öðrum sjúkdómum. Og þráfaldlega getur aðgreiningin ekki
orðið ábyggilega vísindaleg, heldur að eins bygð á meiri eða minni líkum.
Með tilliti til meðferðarinnar er þessi óvissa oft mjög meinleg, þar eð
ákveðin meðferð á sári getur verið mjög óheppileg meðferð á öðrum
sjúkdómi. Því ber lækninum jafnan að ganga eins langt og unt er, í því,
að fá diagnosis exacta, og má í því hvorki spara tíma né fyrirhöfn.
Oftast má fljótlega útiloka fjöldann allan af þeim sjúkdómum, er um
getur verið að ræða, per exclusionem, þegar rækilega er búið að íhuga
öll subj. og obj. skilríki, og stundum leikur þá heldur enginn vafi á því.
hver sjúkd. er. En oft vill það verða svo, að erfitt eða ógerlegt er, að
greina 1 eða 2 sjúkd. að lokum, frá magasári, og þó verður að ákveða
einhverja ákveðna meðferð.
1 þeim tilfellum er nauðsynlegt, að gera sér vel ljóst, hvort viðkom-
andi sjúkdómar geti þá ekki að meinalausu læknast í sameiningu. Þannig
væri lítill skaði skeður, þótt gastritis acida, colitis eða cholecystitis með
magasárseinkennum hlyti magasársmeðferð, ef tillit væri tekið til þess-
ara möguleika um leið. Öðru máli er að gegna um t. d. appendicitis chr.
og þá einkum um tub. pulmon. í fyrra tilfellinu er sjúkl. gerður óþarfa
kostnaður, og í seinna t'ilfellinu sennilega heilsutjón að auki.
Með tilliti til handlækninganna er enn ]iá meiri nauðsyn á því, að vera
viss í sínni sök.
í fvrsta lagi verður að hafa ákveðið útilokað þá sjúkdóma, er ekki
verða læknaðir með skurði (gastritis acida, colitis, pancreatit. o. s. frv.),
en einkum þá, er hætt er beinlinis við að versna við slíka aðgerð, eins
og tub. pulrn. Að minni sök kæmi, þótt ekki væri hægt að aðgreina appen-
dicit. chr., cholelithiasis eða cholecystitis, canc. ventric. o. s. frv., ef
operat. væri indic. á annað borð. í öðru lagi verður að vera nokkurn
vegin fengin vissa fyrir því, að sárið sé áþreifanlegt (callosum), nema
ef mikil tæmingarhindrun, perforat. eða blæðing indic. operat., og mætti
flokka indicationes operativ. eins og hér segir:
1) Sár, sem valda stenosis pylori eða mikilli tæmingarhindrun (8—10
klst. retentio).