Læknablaðið - 01.11.1921, Qupperneq 16
174
LÆKNABLAÐIÐ
tekst þetta oft meö urotropin. Bólusetningu er ekki aö treysta. Cholecystec-
tomi getur læknað marga, en ekki alla. Af 3 sjúkl. í Bergen læknuðust 2.
í öörum löndum er skýrt frá 15 af 17 sýklaberum. (No. 6—7).
Fréttir.
Bréfkafli frá Ameríku. Jón Ól. Foss skrifar G. H.: Eg settist aö í þess
um litla bæ, straks aö loknu prófi, og verð hér fyrst um sinn. Bærinn er ca.
15 hundruð manns, — laglegur, lítill bær, -— al-enskur nær því, en íslensk
bygö er vestan viö mig, ca. 2500 íslendingar þar, — ein besta ísl. bygöin
hér, — en Þjóöverjar eru aö austan. Ágæt hveitilönd; — hveiti, rúg,
bygg, hafrar, mais, kartöflur, — í allar áttir. Skógur í milli, og sléttir og
breiðir akvegir um alt. Alt landiö er mælt þannig niður, að akbrautirnar
liggja meö hálfrar mílu bili þvers og langs, — endilangt. Eg kaus enskan
l)æ — til að læra málið sem best. — Hér var nýbakaður læknir, er eg
kom, en eg veit ekki hve lengi hann veröur. Franskir eru hér, og norskir
líka. Eg bjóst ekki við, að eg hefði svo mikið að gera straks, sem raun
varð á, og er að aukast. Eg heyri fólk bera meira traust til Evrópulækna
hér a 1 m e n t, — þó vitanlega séu til afbragðslæknar hér. Fer alt á bíl
Allir bændur eiga hér bíla, sumir 2.’Býst við, aö lifa megi hér góðu lífi
Hefi ekki spitala hér i bænum, en spítali er hér i bæ 25 mílur burtu, litill
þó (100 rúm), sem norskur er, og hefi eg samning gerðan, um að mega
taka þá sjúkl., er eg vil, þangað. Lestin gengur um oft á dag, svo hægt
er um vik. — Hefi gert dálítið af operat., og vona að fleiri verði. — Alt
eru hér privatspítalar — félög eða einstakra manna. Eg kom til eins
læknis nokkuð frá hér, sem átti sjálfur sinn spítala (ca. 30 rúm), Röntgen-
stofu, laboratorium og allan útbúnað, sem góðum spitala fylgir — sagðist
hafa byrjað 28 ára að praktisera — og verið þá snauður, en er nú eigandi
að öllu þessu. Yfirleitt skortir ekki duglega lækna hér fé. Takstar eru
engir ákveðnir, en oft verður svipað gjald fyrir sama. verk hjá collegabus
Vanal. er ákveðið gjald fyrir hverja rnílu að heiman — 1—1/ dollar, og
unnið verk að auki. Fyrir vanalega consultatio 2—5 doll. lYfirleitt er farið
mjög eftir efnum og ástæðum manna. — Sumir spítalar í sambandi við
háskólana sé eg þó, að hafa sett hámark fyrir skurði þar — 1000 doll.
(John Hopkins). Læknar eru hér sóttir við allar fæðingar, því yfirsetu-
konur eru sjaldsénar, en hjúkrunark. í hverri sveit. — Eg mun síðar senda
heim greinar frá spítölum hér, er eg fer þangað — og kynnist þeim. Líka
ætla eg að segja frá ísl. læknum hér.
Jón Árnason, héraðsl. í Axarfirði, hefir sest að í Ási í Núpasveit. Hann
lætur vel yfir sér þar norðurfrá, þó langar séu ferðirnar. Er 17 tíma reið
frá Rit'i á Sléttu að Grimsstöðutn á Fjöllum. Taka lengstu ferðir 4 daga
eða þar um bil.
Það virðist svo, sem Jón hafi það rétta skap fyrir íslenska lækna: að
gleðjast yfir þeim verkahring og verkefnum, sem manni er trúað fyrir,
hvort sem hann er stór eða smár. Læknum hefir verið drumbs um Axar-