Læknablaðið - 01.12.1921, Qupperneq 3
i2. blað
iiimiiiiiDii
7- árg. Desember, 1921.
Influensan í Svarfdælahéraði 1921.
Hún barst fyrst inn í héraöið seint i júní, síðan hvað eftir annað fyrri
hluta júlimánaðar, og seinast í ágústbyrjun. Fyrsta sjúklinginn fékk eg
vitneskju um 27. júni. Það var piltur úr mentaskólanum, er kom veikur
heimilis sins i Hrísey með e.s. „Sirius“. Hafði hann veikst á skipinu
á leiðinni frá Rvik, þá fyrir 4 dögum. Hann hafði þrota í koki, sárindi
fyrir brjósti, lítinn hósta, miklar blóðnasir, ekki mikinn hita (38,7), til-
tölulega hæga æð (80), en var mjög máttfarinn og veikindalegur. Ekki
hafði þá frést hingað að inflúensa væri í Rvik, né annarsstaðar á landinu.
Datt mér að vísu i hug, að hér gæti verið inflúensa á ferð, aðallega vegna
lilóðnasanna, en fullyrti þó ekki að svo stöddu; hitt leyndi sjer ekki, að
um infectionssjúkdóm mundi vera að ræða, og lét eg því einangra pilt-
inn til bráðabirgða. Daginn eftir símaði Jónas Rafnar til mín, að veikir
menn hefðu komið til Akureyrar með „Sirius“, að likindum af inflúensu,
og væri nú fólk farið að veikjast ]iar í sumum húsum. Þóttist eg þá viss
um það, sem mig hafði áður grunað, að Hríseyjarpilturinn hefði inflú-
cnsu. Var hann all-þungt. haldinn 2—3 næstu dagana og ekki hitalaus
fyr en eftir viku, en engan smitaði hann h'einia hjá s'jer.
Verður siðar reynt að gera grein fyrir, hvað liklegt sé, að þvi hafi valdið.
Snemma í júlí barst veikin á ný til Hriseyjar; veiktust menn á 3 heim-
ilum þar, um sama leyti, og höfðu þeir allir smitast á Siglufirði, haft mök
við sýkt heimili ]iar. Barst veikin úr því hraðfara um Syðstabæjarkaup-
túnið, og um miðjan mánuðinn hafði hún komið þar á öll heimili nema
3 (á eitt með manni, er kom veikur af fiskiskipi), þlar á meðal á heimili
piltsins, er fyrst veiktist. Á 2 þeirra heimila, er fyrst sluppu, barst veikin
í ágústbyrjun, enn frá Siglufirði, eftir að hún var að mestu um garð gengin
í eyjunni; hið þriðja varðist til fulls. Að Ystabæ, eina bænum á eyjunni
utan kauptúnsins, kom veikin ekki.
Til Ársskógsstrandar barst sóttin í júlíbyrjun með veikum farþega með
Gullfossi, frá Reykjavík; fékk eg ekki vitneskju um hana þar, fyr en
hún var komin allvíða um ströndina. Breiddist hún þar ört út sem annars-
staðar, en fáein heimili vörðust ])ó algerlega.
11. júlí veiktust 2 sjómenn í Ólafsfjarðarkauptúni. Þeir sögðust ekki
hafa getað tekið veikina annarsstaðar en í Vik í Héðinsfirði, gistu þar
eða dvöldu eitthvað af aðfaranótt þess 10. júlí, hafði enginn að vísu verið
veikur þar þá, en einhverjir höfðu veikst þar 10. júlí, eftir að þeir voru
farnir þaðan. Ekki fékk eg að vita um veikina ])arna fyr en viku seinna,