Læknablaðið - 01.12.1921, Síða 13
LÆKNABLAÐIÐ
187
Um samræíSissjúkd. skal tekið fram að svo miklu leyti sem auðið er
hvar sjúkl. hafi smitast. Vandlega skal þess gáð hve margir eru ísl. og
hve margir útlendir. Um cancer skal getið tegundar og líffæris.
Af alii morbi epid. skal sérstaklega telja icterus epid., polyomyel ant.,
meningitis cerebrosp. epidem., encephalitis lethargica og impetigo contag.
6) í ])etta sinn er þess óskað, að læknar segi álit sitt um hundalækning-
ar og nytsemi ])eirra, og geti þess á hverju helst það er bygt.
Töluliðunum 10, 12—17 má i þetta sinn sleppa. Geta skal þó þess, ef
skortur hefir verið á viðurværi eða borið á skyrbjúg eða beinkröm.
Geta skal um sjúkrasamlög í héruðum og hversu þau þrífast.
Á skýrslur allar og eyðublöð skal rita skýrt nafn héraðsins, dagsetn-
ingu og nafn læknis.
Ársskýrslur allar skulu komnar til landlæknis í s í ð a s t a 1 a g i í
marslok. Verður farið að gefa þær út skömmu síðar. G. H.
Smágreinar og athugasemdir.
Alér hafa borist eftirfarandi fyrirspurnir, sem eg set hér ásamt stutt-
orðum svörum.
1) Hvernig á læknir að þekkja lagaboð er að læknisstarfi lúta? Eru
])au hvergi til i heild?
Svar: Eina yfirlitiö yfir heilbrigðislöggjöfina er í Lbl. 1919. Árlegar
viðbætur og breytingar verður hver læknir að skrifa upp. Sjálf laga-
ákvæðin standa í Stjórnartíðindunum og flest í Lagasafni fyrir alþýðu.
Margar auglýsingar eru og í Lögbirtingabl. Þessi löggjöf öll er hvergi
til í heild og yrði alldýrt að gefa hana út.
2) Eiga læknar aö halda áfengisbækur, svo sem fyrirskipað er i Regl-
um 15. apr. 1920?
S v a r: Víst eiga þeir að halda ])á sælu bók — en eftir er að vita hvort
þeir geta það. Málið hefir ekki mjög mikla þýðingu vegna þess, að breyt-
ing á reglunum stendur fyrir dvrurn. samkv. lögum um einkasölu á áfengi
1921.
3) Fáum við enn serum antidipth. ókeypis frá Danmörku? Eg verð að
borga kr. 1,50 fyrir glasið.
S v a r: Danir hafa tekið lítilræöi fyrir sendingu, glösum o. þvil.. fyrst
ca. 25 a., síðar meira. Lyfjabúðir hér taka að eins fyrir flutningsgjaldið.
1 raun réttri kostar glasið 10—20 kr. Hve lengi vér getum lifað ])annig
á Dönum er óvíst, en háir skamtar af serum kosta marga tugi króna.
4) Eiga yfirsetukonur að borga slit og fyrningu á verkfærum, ]>að
sem ferst af handvömm o. þvíl. ?
Svar: Já.
5) Hefi verið beðinn að skoða 1 farskóla, en fleiri eru í héraðinu. Ber
mér að skoða þá?
S v a r: Ekki aðra en þá, sem fræðslun. óska. Hins iná aftur vænta, að
héraðsl. kynni sér hvar kent er og segi fræðslunefnd til ef hann kynni að