Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ L39 Société internationale er nú 27 ára ganialt, og var þessi Varsjár-kongress hinn áttundi í röðinni. Fyrri fundirnir hafa veriS haldnir í Bryssel (hinir fyrstu þrír: 1905, 1908 og 1911), New York 1914, París 1920, London 3923 og Róm 1926. Meðlimir félagsins eru nú alls rúmlega 1200, frá 34 þjóðlöndum. Stgr. Matth. Þrengslin á Akureyrarspítala. Eftir Stgr. Matthíasson. Þegar eg las hréf landlæknis til dómsmálaráSuneytisins (sjá Læknabl. mars-apríl) og kom aS setningunni um Akureyrarspítala: .... ,,Þar komu í einni stofu meS 4 rúmum ekki nema 7.25 m*5 (sic) á rúm“, þá kendi eg til í hjartastaS, því „l’état c'est moi" og svo slæmt hélt eg þó ekki aS þaS væri. Og mig greip iSrun og síSan angurblíöa, og eg sagSi likt og Mefistó: ,,Das will Euch nicht behagen? Ihr habt das Recht gesittet pfui zu sagen.“ Svo fór eg meS Bjarna kollega Bjarnasyni aS endurskoða reikningana, og niöurstaSan varS (okkur til mikillar hugfróunar) sú sem meSfylgjandi vott- orS greinir frá: „A uppdrætti þeim er eg gaf háttv. landlækni yfir sjúkrastofur spítalans voru, vegna misgánings, sýnd 4 rúm í kjallara sóttvarnarhússins, og urSu meS þeim hætti aS eins 7.4 m3.loft á hvern sjúkl. En þar hafa aldrei veriS nema 3 rúm og verður því ca. 9.6 m3 loft á hvern sjúkling. Akureyri 18. júni 1929. Bjarni Bjarnason.“ Skal eg nú hugleiSa þetta mál lítilsháttar. ÞaS eru tvær stofur á spítalanum þar sem loftrýmiS er svipaS,.þ. e. 9.1 og 9.5 m3 á rúm. En aSgætandi er, að önnur stofan er notuS fyrir börn og má því sæmilegt heita, og talsverS afsökun finst mér þaS um hinar, aS í þeim hafast viS sjúklingar, sem hafa fótavist. Öll önnur sjúkraherbergi spítalans eru mun rúmbetri og sum svo, aö þau ná því aS hafa 27.5—30 m3 á rúm, en talsvert þarf aS rýma til ef allir sjúklingar spítalans eiga aS fá aS njóta 15—25 rúmmetra af lofti, sem landlæknir vill úthluta hverjum þeirra. ÞaS skal gleSja mig ef heilhrigSisstjórninni hepnast aS rýma til á sjúkra- húsunum okkar, og skal eg fyrir mitt leyti stuSla aS því á Akureyrarspítala. En hinsvegar fylgir þá sú kvöS á sömu stjórn, að byggja ný og betri sjúkrahús. Eg veit þaS veh aS í útlendum stórbæjasjúkrahúsum eru kröfurnar til loftrýmis eins og j)eir segja próf. G. H. og landlæknir. En dýrt verSur fyrir okkur aS fylgja þeim. Utan stórbæjanna erlendis mun hinsvegar mega finna mörg sjúkrahús, þar sem viSgengst engu ríflegra loftrými en t. d.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.