Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 01.09.1929, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ 141 Eitt af tvennu er aö gera: aö leggja hjeraöiö niöur, þó illt sje aö gera héraðslnia læknislausa, eða l)yggja |>ar góðan læknisbústað og tryggja jafnframt læknum í útkjálkahéruðum burtflutning i betri héruð eftir viss- an tima, ef þeir hafa að ööru leyti sýnt sig dugandi menn. ReykjarfjarÖarhjeraÖ er fátækt og fámennt — 446 íbúar. Þeim er ber- sýnilega ókleyft að koma upp læknisbústað af eigin ramleik. Úr þessu verður að bæta með mjög ríflegum styrk af landsfé, enda ætti að miða styrkinn til bygginga á læknissetrum vfð ibúatölu hjeraöanna og jafnvel efnahag þeirra. Hvað hitt atriöiö snertir, reglurnar fyrir veitingu embætta, þá veröur naumast hjá því komist aö koma þeim i fast horf á einhvern liátt, úr þeirri óreiðu sem nú er. Óklevft ætti það ekki að vera að semja fastar reglur um þetta atriði. sanngjarnar bæði fyrir almenning og lækna. ef viljinn er góöur bæöi hjá heilbrigðisstjórn og læknum. Ekki mun standa á Læknafél. íslands um góða samvinnu í þessu efni, en hinsvegar munu læknar aldrei fallast á, aö pólitik sje blandað inn i veitingar á læknishjeruðum. Meöan ekki tekst að ráöa fram úr þessum vandamálum væri það æski- legt, aö læknar, sem kynnu aö sækja um Reykjarfjarðarhjerað, ráðfærðu sig við stjórn Læknafjel. íslands. Guðw. Hanncsson. Hérað a boðstólum. Svo er sagt. að stjórnin hafi haft hérað eitt á boðstólum utn nokkurn tíma undanfarið, og var það þó ekki læknislaust. En héraðið hefir ekki gengið út til þessa, þrátt fyrir allan læknafjöld- ann. Þó Læknafél. íslands hafi látið ]>etta mál hlutlaust, hafa læknar furid- ■ ið sjálfir. að slikt makk á bak við tjöldin var ekki að öllu drengilegt. Það mun vera best og hollast, að halda sér við gömlu regluna, að em- bættum sé slegið upp og öllum gefinn kostur á að sækja um þau. Leynimakkið kann ekki góðri lukku að stýra og sæmir ekki læknum. G. H. Læknisbústaðarmálið í Höfðahverfishéraði. Grein Jóh. J. Kristjánssonar, héraðslæknis, i maí-júnibl. Læknabl.. hefir gefið nokkrum mönnum tilefni til athugasemda og andmæla. Ritstj. Lbl. barst fyrst yfirlýsing frá fvrv. héraðslæknum Höfðhverfinga (þó ekki öll- um, sem þar hafa dvalist) ; ennfremur athugasemdir frá hr. Birni Jóhanns- syni. Hvorttveggja var sent hr. Jóh. J. Kristj. til umsagnar, til þess að binda sem fyrst enda á þessar orðadeilur. Báðar ])essar greinar birtast hér á eftir, ásamt svörum héraðslæknisins. Loks barst grein frá hr. Iielga Stefánssyni, en ekki vanst tími til aö birta nú svar viÖ henni. Héraðslækninum er auðvitað heimilt rúm hér i blaðinu fyrir stutt svar við grein hr. H. Stef., en annars er lokið umræðuni um þetta mál í Lbl, — Ritstj.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.