Læknablaðið - 01.03.1941, Side 21
LÆKNABLAÐIÐ
3i
Úr erlendum læknaritum.
Fólkið stækkar. Nýlega hafa
koniið út skýrslur um hæS og
þyngd skólabarna í Luridúnum
1938, en áöur höfðu komið út
skýrslur um árin 1905—12. Á þess-
urn 25—30 árum höfðu börnin
hækkað um 4—5% og þyngst um
10—15%. (Lancet % ’40-)
í mörgum löndum hefir fólkið
sífelt stækkað um langan tíma.
Enginn veit af hverju þetta kem-
ur, og þaðan af síöur hve lengi
það heldur áfram, en furðuleg er
þessi breyting á mannskepnunum.
Okkur væri í raun og veru skylt
að vita með vissu hvernig þessu
er háttað hér á landi. Þetta ætti
að vera auðvelt með barnaskóla-
börnin, að minsta kosti hér í
Reykjavík, en erfiðara er meö
fullorðna fólkið. Ef til vill stendur
það næst Háskólanum, að greiða
fyrir þessu máli. G. H.
Deilur um brauðið. Það hefir
heyrst hér, að hvítt hveitibrauð sé
óhollur niatur,, en brauð úr „heil-
hveiti“ standi því miklu framar.
Það er því ekki ófróðlegt að sjá
hvern dóm The Lancet leggur á
þetta í ritstjórnargrein ~7A ’4°-
Það segir svo:
Hið svo nefnda heilhveiti
(wtholemeal) er aldrei malað úr
öllu hveitikorninu, sjaldnast meiru
en 85%. Því fylgja þeir gallar að
hveitibjöllur (weevils) sækja i það
og að því hættir til að þrána vegna
olíunnar i hveitikíminu. Það geym-
ist yfirleitt miklu ver en fínt
hveitimjöl. Hvorugt er fullnægj-
andi fæða. Til þess skortir bæði
fitu, A, C og D l>ætiefni og einn-
ig kalk. Heilhveitilrrauðið hefir þó
meira af járni, B bætiefni og
nokkru meira af hvítu og kalki,
en eigi að síður nægilega mikið.
Hvorttveggja mjölið verður að
bæta með mjólk, osti eða öðrum
hentugum fæðutegundum. G. H.
Lúsalyf. í Málmey er Quassia-
s]úritus notaður til að lækna lús
á skólabörnum. 150 grm. af smátt-
skornum quassiaberki eru látin
liggja i 1 lítra af spirit. concentr.
með 3 grm. af chloroformi saman
við, i 14 daga. Síðan er síað. —
Hárið er gegnbleytt i leginum og
honum núið vel inn í hörundið
með bómull eða bursta og klút er
siðan vafið um höfuðið. Eftir 5
mínútur er lúsin og nitin stein-
daVið og hárið er kembt með stál-
kamlji. Til tryggingar er hárið
ekki þvegið í 10 daga.
Gustav Jörgensen, borgarlæknir
í Kbh., hefir tekið þessa aðferð
upp í barnaskólum borgarinnar og
mælir eindregið með henni. Hér
myndi líklega alt stranda á spiri-
tus okrinu.
Um 2% skólabarna í Höfn hafa
veriö lúsug (um 3% í Rvík), en
eftir að fariö var að nota Quassia-
spiritus og gefa heimilum lúsugra
l>arna lyfið til heimanotkunar, hef-
ir lúsugum skólabörnum fækkað
niöur í 0,4%. (Lancet '40.)
G. H.
Lýsi og hiti. Þegar hreinsa skal
lúsug föt, er áríðandi að vita hve
mikinn hita lús og nit þolir. Prof.
Buxton telur að nit drepist á 5
mínútum i 530 hita. Lýs þola
nokkru nrinna. — Eftir því ætti
það að vera nóg, að brjóta fötin
saman i bala, hella á þau sjóðandi
vatni og láta þau liggja nokkra
stund í því. (Lancet 2% '40.) —
G. H.