Læknablaðið - 01.06.1941, Side 15
LÆK NAB LAÐ 1 Ð
57
legur skamtur at’ því sé lang-
Ijesta lausnin á málinu. BlóStrans-
fusio má þá gefa sem ábæti síðar,
þegar hentugleikar leyfa.
'J'il skanuns tíma hefir naumast
verið gefin stærri blóðtransfusio
en 500 cm3, enda naumast hægt
að ætlast til þess, að hver ein-
stakur donor fórnaði meiru aí
sinu dýrmæta blóði. Eftir að far-
ið var að koma upp blóð og plasma
forðabúrum, varð hægara um vik
að hafa skamtinn stærri, og munu
nú ílestir telja það nauðsynlegt.
eí mögulegt er. Enska shock-
nefndin telur, að við byrjandi
shock þurfi að gefa minnst 1 liter
af blóði eða plasma. Blóðmagn
sjúklinga sé þá venjulega minkað
um 20% eða meira og þurfi þvi
að minnsta kosti 1 pott, ef comp-
ensation á að nást. Við þyngra
shock vill nefndin gefa 2 litra og
stundum er gefið enn meira.
Fyrir forgöngu N. Dutigal pró-
fessors, munu bráðlega væntanleg
hylki, sem geyma má í plasma á
öruggan hátt. Fylgir hverju hylki
útbúnaður til þess að gera trans-
fusio og þarf ekki annan undir-
búning en að velgja iilasma. Er
gert ráð fyrir, að hér verði jafnan
nokkur plasmaforði. sem grípa
megi til. Eg tel þetta hina þörf-
ustu ráðstöfun og þegar þetta er
komið í kring, stöndum við ólíkt
betur að vígi til þess að meðhöndla
shock fljótt og vel.
Ef eg ætti að stinga upp á ein-
hverju fleiru. sem að gagni mætti
koma, yrði það fyrst og fremst, að
helstu sjúkrahúsin hefðu útbúnað
til þess að svæfa sjúklinga með
glaðlofti, þar sem önnur svæfinga-
lyf eru talin shocksjúklingum mun
hættulegri.
Þá fyndist mér nokkurs um
vert, að sjúkrahúsin hefðu góð
tæki til þess að gefa sjúklingum
súrefni til öndunar og þá helst
enska tækið, sem fyr hefir verið
nefnt. Að vísu kosta þau nokkurt
fé, en ef hægt er að fá þau, á
naumast að horfa i þann kostnað.
Öriiiur tæki nothæf, en mun ódýr-
ari, munu líka fáanleg.
í t’ám orðum virðist mér aðal-
atriðið í shockmeðferðinni eftir-
farandi:
]. Profylaxis ef við verður kom-
ið. Er þá einkum mikilsvert að
fyrirbyggja eða ráða bót á de-
hydration. Enska shocknefndin
leggur áherslu á, aö særðir menn
séu látnir drekka mikið af
saltvatni. Við flutning sjúkra
þarf að gæta mikillar varúðar og
hlúa þarf vel að þeim, ekki aðeins
meðan á flutningi stendur. heldur
líka á sjúkrastofunni.
Ef til aðgerðar kemur á sjúk-
lingi, sem shockhætta vofir yfir,
ætti hann helst að fá plasma eða
blóð-transfusio fyrst. Helst ætti að
svæfa þessa sjúklinga með glað-
lofti.
2. Lyf eru nauöa gagnslítii viö
meðferð shocks. Enska nefndin
minnist ekki á annað lyf en mor-
fin. Árangur af stimulantia er að
minsta kosti mjög vafasamur.
3. Vegna anoxæmia er eðlileg
og sjálfsögð ráðstöfun, að sjúk-
lingarnir fái súrefni til innöndun-
ar. Riður mjög á, að liafa hentug
öndunartæki, sem ekki valda ó-
þægindum, þegar til lengdar læt-
ur.
4. Shocksjúklingar halda oftast
engu niðri og þó að þeir kasti
ekki upp því, sem þeir drekka. er
resorptio af mörgum talin hæpin
meðan shockið varir. Er því heppi-
legt að gefa isotoniskt saltvatn
inravenöst sem dropainfusio.
Ilinsvegar er saltvatn ófullnægj-
andi til þess að halda uppi blóð-