Læknablaðið - 01.06.1941, Side 16
58
LÆKNABLAÐ IÐ
þrýstingi, cnda ekki hættulaust,
ef mikiö og ört er gefiö. Viö
sliock þaö, sem er samfara coma
diabetic. og nokkrum öörum lyf-
læknissjúkdómum reynist þó salt-
vatniö allvel.
5. Langbest reynist aö gefa
stóra transfusio: blóö, j)lasma eöa
seruni. Því fyr sem sjúklingurinn
fær þessa meðferö, því l)etra.
Helstu heimildir:
Archives of Internal Medicine, 64.
95-2—9/0. 1939-
Archives of Pathology, 24. 642—
663 og 794—813. 1937-
Journal of Americ. Med. Assoc.
112. 1057—1061, 1939.
'J'he TlÍérapeutics of Intern. Dise-
ases edit. by G. Blumer, Volunie
2, 1940.
'l'he Treatment of Wound Shock.
War Memorandum, No. 1, 1940.
Endocrinology 27. 367—374, 1940.
Medicinsk Revue 1925. 551—567.
J. Tinel: Le Systeme Nerveux
Végétatif, 1937.
Heilsuvernd herliðs.
Eftir Major D. P. Holmes, R. A. M. C., M. B., B. S. (London),
M. R. C. S. (England), L. R. C. P. (London), D. P. H. (England)
Magnús Pétursson þýddi lauslega.
Þaö er ennþá almennt álit, aö
gera rnegi ráð fyrir því, að her á
öfriðartimum eigi við slæm kjiir
að búa og að hermaðurinn eigi
öðrum fremur á hættu að sýkjast.
Þetta er með öllu rangt um ný-
tísku herlið, þar sem þvi er ætlað
aö þola harðrétti og vandlegt eft-
irlit haft með þ’ví, í því skyni aö
foröa því frá sjúkdómum.
Til þess liggja eindregnar hags-
munaástæður, að efldar séu sjúk-
dómsvarnir meðal herliðs á eins
áhrifaríkan hátt og unt er. Sjúkur
maður er ekki aðeins orkutap.
heldur þarf og aðra menn til þess
aö annast hann, sérstakar ráðstaf-
anir til þess aö hýsa hann og hann
getur þurft læknishjálpar undir
erfiðum skilyrðum. Ennfremur
geta veikindi gert manninn óstarf-
hæfan að staðaldri, en þaö þýðir,
aö nytsamur og dýrmætur maður
tapast. Það verður því að draga
úr sjúkdómum eins og mögulegt
er og augljósasta verksviöið um
þau efni eru sjúkdómar þeir, sent
hægt er að verjast.
Reynsla og þekking hafa þvi
byggt öflugar starfsreglur og eru
þær kendar undir nafninu „Hern-
aðar heilsufræði" (Military Hygi-
ene) og með lieraga er fast að því
gengið, að slíkum reglum sé
stranglega framfylgt. Aö ræða
frumreglur varnarráðstafananna
og tæki þau, sem notuð eru, er ut-
an tilgangs þessarar blaðagreinar.
því hún er stutt lýsing á skijtu-
lagi sjukdómsvarnrf. i brezka
hernum.
Læknisstarfið er undir forystu
eldri læknislærðs foringja (Medi-
cal Officer), en hann hefir í ráöi
(staff) sinu læknir (Officer), sem
er sérfræðingur. Er hann ráðu-
nautur um allt, sein að sjúkdóms-
vörnum lýtur. Þessum yfirforingja