Læknablaðið - 01.12.1943, Page 21
LÆRNABLAÐlí)
95
sem oft er meö hydrocele og síðan
er eistahýðið skoriö sundur lang-
setis og skal skurðurinn vera 1.5
cm. langur. Það rýmkar þá um
eistað og blóðrás þess batnar.
Pungurinn er saumaður og lítil
sárapípa (drain) iiigð í sárið.
( Lancet 13. febr. 43).
The Safe period. Knaus og Og-
ino telja, að egglos verði venju-
lega 14 dögum áður en tíðir lryrja,
að konuegg lifi aðeins nokkrar
klukkust. ófrjóvgað, en frjóin ekki
öllu lengur en 48 klst. Eftir þessu
má fara nærri um the safe period,
ef tíðir hafa verið tiltölulega reglu-
legar. Rannsóknir Hamaus á 150
giftum konum komu vel heim við
þetta, þótt útaf geti borið. (Lancet
24. apr. ’43). G. H.
Barnadauði og matarhæfi. Astr-
alía og Nýja Sjáland eru fræg fyr-
ir það. hve fá börn deyja þar á
fyrsta ári. Sumir þakka þetta því.
að fæði sé þar óvenjulega gott. —
Er þá hægt að segja það sama um
ísland, Færeyjar og Noreg, sem
standa nálega jafnfætis Ástralíu og
Nýja Sjálandi? (Lancet 27. marz
43)- G. H.
Impetigo contagiosa hefir gert
talsvert vart við sig í enska hern-
um og hafa herlæknar rannsakað
þennan faraldur eftir föngum. I
fleiðrunum á 95% fannst staphylo-
coccus aureus en einnig strepto-
coccar eí sjúkd. hafði varað dálítið.
— Sagt er að sulphathiazoledeig
(compound sulphathiazole paste)
komi að góðu gagni. (Lancet 1.
maí '43). G. H.
Electro-encephalograph sýnist
koma að góðu gagni erlendis. „Fyr-
ir 10 árum var hann nýjung á rann-
sóknastofum en nú er hann orðinn
.„standard cinical equipment". Ef
nokkur grunur er um lieilaæxli eða
blæðingu o. fl. er öll hauskúpan
rannsökuð með þessu áhaldi. Það
tekur aðeins nokkrar mínútur og
til þess þarf ekki einu sinni að
særa hörundið." — Er ekki korninn
tími til þess fyrir okkur að eignast
þetta áhalcl ? (Readers Digest des.
'43). G. H.
Cellophan-umbúðir. D. B. Craig
dauðhreinsar cellophanpjötlur í
áútoclave og límir þær yfir skurði,
sem líklegir eru að gróa brotalaust.
Saumurinn sést gegnum þessar
gegnsæju umbúðir (Lancet 10. júlí
43) G. H.
Holdsveiki. Talið er að í Breta-
veldi séu nú um 2 milljónir holds-
veikra. Mestur hluti þeirra er í
Austurlöndum. Áherzla er lögð á
það að sjúkl. hafi tækifæri til þess
að vinna eftir því sem heilsan leyf-
ir. (II).) G. B.
Sullaveiki í Wales. Sullaveiki er
ekki fátíð í Wales. H. R. J. Wolfe
telur að á árunum 1926—38 liaíi
90 sjúkl. verið lagðir á sjúkrahús.
Af 34 sjúkl. í Cardiff dóu 16 og
sjúkd. þekktist aðeins á helmingi
þeirra, áður en til aðgerðar kom.
.Minnst er á. að sjúkd. hafi þverrað
á Islandi og i Astralíu, og hvatt til
þess að hafa strangar gætur á að
hundar nái ekki í sulli i sláturhús-
um eða annarsstaðar. (Lancet 26.
júlí 43). G. H.
Lús og „permanent“. Englend-
ingar hafa þá sögu að segja að lús
hafi aukizt síðan konur fóru að
skrýfa hár sitt, sérstaklega að nota
„permanent“. Þetta mun satt vera,
því svipað kom í ljós á 18. öld.
(Lancet 10. júli '43).
G. H.