Læknablaðið - 01.05.1950, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
19
aldar eru á vítaminsnauðu fæði
um meðgöngutímann, sýna, að
afkvæmin hafa mjög oft ýmsa
líkamsgalla. Taussig telur með-
fædda lues og endocarditis í
fóstri mjög vafasamar orsakir
til meðfæddra hjartasjúkdóma.
Sama er að segja um alkohol-
ismus hjá foreldrum. Warburg
heldur því fram, að Lutem-
bacher’s syndrom (mitralsten-
osis með atfiumseptum defekt)
orsakist að öllum líkindum af
intrauterin endocarditis. —
Þá hefir verið talið að smit-
næmir sjúkdómar á meðgöngu-
tímanum orsaki ýmiss konar
meðfæddar vanskapanir. Það
er þó fyrst tiltölulega nýlega,
að Gregg (1941) og Swan o. fl.
(1943) sýndu fram á, að fái
vanfærar konur rubeola á
fyrstu 2—3 mán. meðgöngu-
tímans, ala þær börn, sem hafa
hlutfallslega mjög háa tölu af
meðfæddum vansköpunum, t.
d. katarakt og hjartagalla. Ef
smitun þessi skeður í 3. mán-
uði meðgöngutímans, má bú-
ast við að 50% hafi einhverja
galla og ennþá fleiri, ef smit-
un kemur fyrr á meðgöngu-
tíma. Hér er vert að minnast
þess, að hjartað myndast á
fyrstu 2 mánuðum meðgöngu-
tímans og mun þá smitunin
valda sérstakri truflun í vexti
hjartans. Warburg telur að ru-
beola á fyrstu mánuðum með-
göngutímans sé svo alvarlegur
sjúkdómur, að það sé „relativ
indication“ fyrir abortus pro-
vocatus.
Konur með diabetes fæða
oftar vansköpuð börn heldur
en heilbrigðar mæður, og sam-
fara mongolismus, segir War-
burg, að 5. hvert barn hafi með-
fædda hjartagalla.
Tíðni meðfæddra hjartasjúk-
dóma er alveg óþekkt og fann
ég ekkert um það getið í Tauss-
ig’s bók. Aftur á móti hafa 2
danskir höfundar (Sönder-
gaard og Warburg) gizkað á
2%c hjá almenningi, og telur
Söndergaard % af þessari tölu
í börnum undir 4 ára aldri,
einkum nýfæddum. — Hann
dregur þessa ályktun sína, eft-
ir að hafa rannsakað fjölda
krufninga síðustu 20 árin frá
Ríkisspítalanum í Kaupm.höfn
(5821 krufning). Warburg hef-
ir rannsakað meðfædda hjarta
sjúkdóma í sjúklingum, sem
vistaðir hafa verið á spítölum
í Kaupmannahöfn. Fann hann
á barnadeildunum 11%C, sem
taldir voru hafa meðfædda
hjartasjúkdóma. Hann leggur
til grundvallar skýrslu farsótt-
arsjúkrahússins í Kaupm.höfn,
Blegdams-spítalans, og fann
þar 2,6%o af börnunum, en tek-
ur þó fram, að þetta sé „grovt
skön“. Eftir þessu reiknast hon-
um, að af börnum frá 1—14 ára
í allri Danmörku hafi um 2000
meðfæddan hjartasjúkdóm.
Tilsvarandi tala hér á landi
yrði þá um 50.