Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.1950, Síða 18

Læknablaðið - 01.05.1950, Síða 18
28 L Æ K N A B L A Ð I Ð Eins og nafnið bendir til, eru hinir meöfæddu gallar ferns konar: 1) Stenosis arteriae pul- monalis. 2) Dextroposition á aorta. 3) Gat efst uppi í septum interventriculare. 4) Hyper- trofi á hægri ventriculus. — Blóðrásin: Þaö sem fyrst ber að athuga, er að nokkur hluti blóðsins þrýstist sökum pul- monalstenosis frá hægri ventri- culus út í gegn um aorta, sem ríður klofvega yfir septum int- erventriculare svarandi til septum gallans, og nokkur hluti blóðsins frá h. ventric- ulus fer gegnum hinn þrönga truncus art. pulm. í aorta blandast því blóð frá báðum afturhólfum hjartans, eða ven- öst og arterielt. Af þessari blóð- blöndun kemur hinn blái litar- háttur þessara sjúklinga, hinn svokallaði „morbus coeruleus“. Eins og gefur að skilja, er lungnablóðrásin að miklum mun minni en undir venjuleg- um kringumstæðum, en sá litli hluti blóðsins, sem kemst gegn um hina þröngu lungnaslag- æð, berst til lungnanna á venjulegan hátt, hleðst þar súr- efni, fer svo með lungna-ven- unum til vinstra framhólfs og þaðan út í aorta. Af almennum einkennum er það fyrst og fremst cyanosis, sem er áberandi. Blái litur- inn er oft mjög missterkur cg sést stundum fyrst eftir að barnið stækkar eða við lungna- sjúkdóma. Hippokratesar-fing- ur sjást sjaldnast fyrr en eftir 2. aldursár. Börnunum getur liðið furðanlega vel þrátt fyrir töluverða cyanosis, en sé hún mikil, fara þau að þjást af mœði og þá eykst einnig poly- globuli. Þessir cyanotisku sjúklingar geta fengið yfirlið og krampa, eins og raunar allir sjúkl. með meðfædda hjartasjúkdóma. Við steth. cordis heyrist langt frá alltaf neitt sérkennandi ó- hljóð, stundum er það dauft, en oftast er það hátt, en heyr- ist þó hærra við aðra með- fædda hjartasjúkdóma (t. d. isoleraða pulmonalstenosis eða septum-galla). Óhljóðið er syst- olisk og með grófum hljómi, maximalt yfir pulmonal-staðn- um, breiðist víða, heyrist einn- ig á baki og út í hálsæðar. Oft finnst „fremissement“ yfir art- eria pulmonalis, stundum „voussure“ og mikil pulsation í præcordium. Röntgen-myncL af hjarta: Hjá þeim sjúklingum sem art- eria pulm. er lítt þroskuð og þröng, sést á röntgenmyndinni bugða inn á við í vinstri hjarta- brúnina, þar sem pulmonal- boginn sést undir venjulegum kringumstæðum. í sumum til- fellum vantar þetta sérkenn- andi röntgen-einkenni, þegar conus pulmonalis er mjög víkk- aður. Hjartað er oft stækkað til beggja hliða og við hina

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.