Læknablaðið - 01.11.1952, Blaðsíða 6
50
LÆKNABLAÐIÍ)
alltaf varhugaverður. Skrásetn-
ingarvenjur o. 11. ræður þar ol'l
miklu um. Enda sést, þeg-
ar nánar er að gáð, að
nokkur hluti af mismuninum
stafar af. mismunandi skrásetn-
ingarvenjum hér og í Dan-
niörku. A umræddú tímabili eru
hér taldir 72 dánir úr krabba i
lifur og gallvegum, lífhimnu og
öðrum ótilgreindum líffærum í
kviðarholi. Þetta verða 0,6% af
öllum dauðsföllum úr illkynja
sjúkdómum. 1 Danmörku eru
1978 eða 4,3% taldir dánir úr
krabba í mjógirni, þörmum án
nánari tilgreiningar, lifur
primert og án tilgreiningar,
liengi, lífhimnu og öðrum ótil-
greindum líffærum kviðarhols.
Þó þetta skýrði ekki allan
mismuninn gæti fleira komið
til greina.
Þegar þcss vegna 95 eru taldir
dánir úr krabbameini í þörmum
á 0 árum eða því sem næst 10
á ári, er þetta lágmarkstala.
Sennilega eru þeir allmiklu fleiri
eða 20—25 á ári, því hér verður
einnig að taka tillit til fólks-
fjölgunar og hækkandi meðal-
aldurs á undanförnum árum.
Það vekur einnig athygli, að
skv. dönsku krabhameinsskrán-
um finnst krabbamein í svo til
sama fjölda í ristli og enda-
þarmi í Danmörku, en skv. ís-
lenzku dánarskýrslunum er
krabbi í ristli hér á landi talinn
hartnær 3 sinnum tíðari en
krabbi í endaþami. Af hverju
þessi mismunur stafar, verður
ekki sagt með fullri vissu. Nokk-
urri ónákvæmni getur það þó
valdið, að þótt ristill teljisl
hyrja við genus recto-romanum
ca 15 cm. frá anus, eru engin
glögg anatomisk takmörk. Þótt
það sé í l'lestum tilfellum engum
vafa undirorpið hvar sjúkdóm-
urinn skuli teljast, geta þó vafa-
tilfellin orkað æði mikið á lilut-
fallið. Enn skal þess getið, að
af 101 sjúkling, sem vistaðir
voru hér í 3 sjúkrahúsum á 10
ára tímabilinu 1942—51, og ég
mun nánar tala um síðar, voru
35 með krabhamein í endþarmi
en 66 í ristli, og verður því hlut-
fallið þar liðlega 1 á móti 2.
Flestir sem ritað hafa um
þessa hluti telja krabbamein
í körlum allmiklu tíðara en i
konum. Hlutfallið er venjulega
talið 2 á móti 1. Skv. dönsku
krabbameinsskránni er þessi
munur þó ekki ýkja mikill. 3700
karlar, 3183 konur.
Af 101 sjúklingi hér voru 58
konur, 43 karlar.
Sjúkdómurinn er talinn byrja
fyrr í konum. Algengasti aldur
þeirra er talinn 40—60 ára.
Hjá körlum 60—80 ára. Hér
eru hlutfallslega fleiri konur en
karlar yfir sextugt.
Þótt krabbi í þessu líffæri sé
algengastur í miðaldra og gömlu
fólki, er hann þó ekki sjaldgæfur
í ungu fólki. Um 8% er undir