Læknablaðið - 01.06.1954, Blaðsíða 20
96
LÆKNABLAÐIÐ
3. mynd.
á stórum svæðum. Auk þess
sjást innanum bandvefsfláka
typiskir berklahnútar með
epitbeloid frumusveipum og
Langhans risafrumum.“
Þ. 6. 10. ’53 sá ég hana síð-
ast. Hún var þá óþægindalaus.
Notar handlegg að fullu og
þreytist ekki óeðlilega. Vantar
5° upp á fulla extension, aðr-
ar hreyfingar eðlilegar, sárs-
aukalausar. Örið reaktions-
laust, hefir verið gróið síðan
hún fór úr spítalanum.
Það var með hálfum liuga að
ég gerði þetta og sagði ég sjúkl.
að líklegra væri, að ekki yrði
komizt hjá resection þó lið-
fóðrið væri tekið, en við vild-
um hæði lialda i liðinn, ef þess
væri nokkur kostur. Það hafði
og sýnt sig að berklalyfin
höfðu verkað vel á þessa bólgu
þó ekki hefðu þau enst til að
evða henni með öllu. Það þótti
líka sennilegt og reyndist svo
við aðgerð, að liðhrjósk væri
lítt eða ekki skaddað.
Það er of fljótt enn, að segja
hér vera fullan hata. Þó berkl-
ar hafi breytzt er rétt að trúa
þeim varlega enn. En með því
að hún liefur verið fullfrísk í
hálft annað ár og notað hönd-
ina í vaxandi mæli þann tíma
án þess að kenna sér meins,
en þrjú ár áður var hún aldrei
lieil þó stundum sýndist batna
i bili, þá finnst mér leyfilegt
að vera bjartsýnn og vona það
bezta.
Fyrir tíma berklalyfjanna
nýju befði þessi aðgerð verið
kórvilla.
SUMMARY.
An account of a synoviecto-
my performed on a tubercul-
ous elbow joint 12. V. 1952.
There is full range of motion
in the elbow, the pat. has no
complaints and has been us-
ing her hand in an increasing
degree for tlie last eighteen
months.
Uppprentun úr Læknablaðinu er bönnuð nema að fengnu leyfi höfunda.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.