Læknablaðið - 01.09.1954, Qupperneq 5
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON og ÞÓRARINN GUÐNASON.
38. árg. Reykjavík 1954 8. tbl. *
Fyrstn keisaraskurðir á Islandi
Fyrir nokkru var skýrt frá
því í útvarpserindi, að hinn
fyrsta keisaraskurð, er gerður
hefði verið hér á landi með
þeirri heppni, að hæði móðir og
barn liéldu lífi, hefði gert Stein-
grímur Matthíasson á Akureyri
hinn 2. júlí 1911, en barnið,
sem þá var bjargað í heiminn,
væri þjóðkunnur maður, Stein-
grímur Þorsteinsson prófessor.
Var að einhverju leyti til min
vitnað um þetta, og reyndar
mundi ég ekki betur, þá er
þetta var borið undir mig, en
hafði þó um það allan fvrir-
vara. Víst mun prófessor Stein-
grímur hyggja þetta sjálfur, og
af því að hér á nafnkunnur
maður i hlut, er ekkert lik-
legrá en þetta festist sem
læknasöguleg staðreynd. Með
því að mér hefur nú lieimzt
önnur og áreiðanlegri vitn-
eskja um mál þetta, tel ég mér
skylt að festa hana á blað, og
vænti ég, að Læknablaðið sjái
ekki eftir rúmi undir þá
fræðslu.
Fyrrverandi yfirljósmóðir
Landspitalans, frk. Jóhanna
Friðriksdóttir, minnti mig á
það, sem mér hafði gleymzt,
að Þórunn Björnsdóttir ljós-
móðir skýrði frá þvi i bók
sinni: Nokkrar sjúkrasögur
(RejLjavík 1929), bls. 276 og
áfram, að Matthías Einarsson
hefði hinn 29. ágúst 1910 gert
keisaraskurð á konu á St.
Jósefsspítala í Reykjavik og
bjargað bæði móður og barni.
Frá þessari aðgerð mun ekki
vera annars staðar skýrt
opinberlega, og Heilbrigðis-
skýrslur þegja um hana. Svo
einkennilega vill til, að um
keisaraskurð Steingríms er
ekki beldur neinn fróðleik að
sækja í Heilbrigðisslcýrslur, og
er þó ýtarlega skýrt frá aðgerð-
inni i ársskýrslu Akureyrar-
héraðs fyrir árið 1911. 1 Ileil-
brigðisskýrslu'm 1911—1920 er
þess aðvísu getið (bls.XCVIII),
að tveir keisaraskurðir hafi
verið gerðir á landinu á þeim
áratug. Á skrá um helztu hand-
læknisaðgerðir á sjúkrahúsum
1911—1920 (bls. 182) er aðeins