Læknablaðið - 01.09.1954, Qupperneq 6
114
LÆKNABLAÐIÐ
talinn einn keisaraskurður, og
er liann gerður á St. Jósefs-
spítala á árabilinu 1916—1920.
Ekki er að vænta, að keisara-
skurðar Steingríms sé getið á
skrá þessari, því að liann fór
ekki fram á sjúkrahúsi, held-
ur á heimili móðurinnar, shr.
fyrr nefnda ársskýrslu Akur-
eyrarhéraðs og Læknaldaðið
1920, íjIs. 68—69, þar sem Stein-
grímur minnist aðgerðarinnar.
En víst má telja, að hún sé
annar keisaraskurðurinn af
tveimur, er Heilbrigðisskýrsl-
ur lelja gerða á áratugnum
1911—1920. Gegnir nokkurri
furðu, að lians skuli ekki frek-
ara getið í skýrslunum, ekki
sízt þegar j)ess er gætt, að þar
eru í sérstökum kafla (hl. 8*—
9*) taldar nokkrar handlækn-
isaðgerðir utan sjúkrahúsa og
jieirra á meðal einn liolskurð-
ur Steingríms sjálfs (í Reyk-
dælahéraði).
Yfirlæknir St. Jósefsspítala
i Reykjavík, dr. Halldór Han-
sen, liefur góðfúslega athugað
fyrir imig dagbók sjúkrahúss-
ins, og fer ekki á milli mála,
að Þórunn Ijósmóðir slcýrir
rétt frá um keisaraskurð Matt-
híasar Einarssonar. í dagbók-
inni er skráð, að Sigríður Ei-
ríksdóttir, 35 ára, Mýrargötu
1 i Reykjavík, liggi á sjúkra-
liúsinu 29. ágúst—21. septem-
ber 1910 og að gerður hafi ver-
ið á lienni keisaraskurður
vegna grindarþrengsla. Hug-
hoð kvaðst dr. Halldór iiafa
iiaft um jænna sögulega keis-
araskurð, enda lætur hann
j)ess getið í minningargreiu
sinni um Matthías i Lækna-
blaðinu 1949, hls. 20 (neðan-
máls), að liann hafi „vafalítið
(gerl) j)ann fyrsta (keisara-
skurð) hér á landi, þar sem
móðir og harn lifðu af aðgerð-
ina“.
Samkvæmt fraananskráðu
mætti ætla, að ekki væri á-
stæða til að efast um, hverjir
væru fyrstu þrír keisaraskurð-
ir liér á landi; þeir væru ör-
ugglega:
1. Hinn kunni keisaraskurð-
ur Jóns Hjaltalíns landlæknis
í Reykjavík, hinn 24. júní 1865:
Móðir, mjög smávaxinn krypp-
lingur, dó af afleiðingum að-
gerðarinnar; barn lifði, en
komst ekki til aldurs. Er ná-
kvsdm greinargerð um aðgerð
j)essa í fylgiriti með Heilbrigð-
isskýrslum 1942, hls. 231—239.
2. Fyrrnefndur keisaraskurð-
ur Malthiasar Einarssonar i
Reykjavik, hinn 29. ágúst 1910:
Aðgerðin slysalaus; móðir lifði,
og' harn lifði og komst til aid-
urs.
3. Fyrrnefndur keisaraskurð-
ur Steingríms Matthiassonar á
Akureyri, hinn 2. júli 1911:
Aðgerðin slysalaus; móðir
lifði, og barn lifði og komst til
aldurs.
Um flest fer á milli mála,
j)egar nokkuð er frá liðið, og